Fréttablaðið - 10.12.2009, Blaðsíða 4
4 10. desember 2009 FIMMTUDAGUR
VIÐSKIPTI Fjárfestar hafa fengið
góða ávöxtun á íslensk skuldabréf
á þessu ári, eða allt frá átján til
21 prósents að meðaltali. Þetta á
við um alla skuldabréfaflokka, að
sögn Magnúsar Harðarsonar, for-
stöðumanns viðskiptasviðs Kaup-
hallarinnar.
Skuldabréfavelta í Kauphöll-
inni hefur aukist jafnt og þétt
hér en tók kipp þegar líða tók á
síðustu viku. Að undanskildum
mánudegi, sem var afar slakur,
nam heildarveltan síðustu daga
um 24 milljörðum króna.
Seðlabankinn greiðir í dag út
um sjö milljarða króna í vexti
og verðbætur af óverðtryggðum
ríkisskuldabréfum á gjalddaga
2012 og á bilinu sex til átta millj-
arða af verðtryggðum íbúðabréf-
um á gjalddaga 2044 á þriðjudag í
næstu viku.
Erlendir fjárfestar eiga bróð-
urpartinn af styttri flokknum en
lífeyrissjóðir þann lengri sem
er á gjalddaga í næstu viku. Ein-
hver hluti fjárins í fyrrnefnda
flokknum kann að leita út fyrir
landsteina enda standa gjaldeyr-
ishöft Seðlabankans ekki í vegi
fyrir því að erlendir fjárfest-
ar geti flutt vaxtagreiðslur úr
landi. Ekki er þó útilokað að báðir
hópar endurfjárfesti í nýjum rík-
isvíxlum, sem Seðlabankinn til-
kynnti um eftir lokun markaða í
fyrradag, að sögn Magnúsar.
- jab
Skipting tímareima
Í sérblaðinu Leikur í höndum, sem
fylgdi Fréttablaðinu í gær, var sagt
að skipta ætti um tímareim á 100
þúsund kílómetra fresti. Réttara er
að skipta getur þurft um tímareim
bifreiða á 60 þúsund kílómetra fresti.
Best er að kynna sér með hverju er
mælt fyrir hverja bíltegund.
LEIÐRÉTTING
FULLT HÚS JÓLAGJAFA
9.990kr.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
9°
6°
7°
11°
11°
7°
6°
6°
23°
11°
17°
4°
18°
3°
13°
13°
4°
Á MORGUN
8-15 m/s, hvassast
SV- og V-til.
LAUGARDAGUR
5-10 m/s.
7
6
3
3
2
2
3
6
6
9
1
7
8
6
6
5
5
4
5
4
8
9
6
6
9
10
7 6
7
8
10
10
BLAUTT OG MILT
Við fáum góðan
skammt af vætu
næstu dagana
en myndarlegt
úrkomuloft gengur
yfi r landið í kvöld.
Helgin verður
einnig blaut en það
verður þó yfi rleitt
þurrt norðaust-
anlands. Útlit er
fyrir að það létti til
syðra á mánudag
og fari að kólna á
ný á þriðjudag.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
MIÐLARAR AÐ STÖRFUM Velta með
skuldabréf hefur aukist talsvert í Kaup-
höllinni upp á síðkastið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Tuttugu prósenta ávöxtun hefur verið á íslenskum skuldabréfum á þessu ári:
Fjárfestar kjósa ríkisskjólið
STJÓRNMÁL Af þeim átján fram-
bjóðendum til síðustu alþingis-
kosninga sem ekki hafa skilað upp-
lýsingum til Ríkisendurskoðunar
um kostnað við prófkjör eru tíu
úr VG.
Fimm sjálfstæðismenn eiga eftir
að skila, tveir frjálslyndir og einn
samfylkingarmaður.
Framsókn er eini flokkurinn þar
sem allir hafa skilað sínu.
Skilafrestur rann út 25. október,
en brot á lögum sem krefjast upp-
lýsinganna varða sex ára fangelsi.
- kóþ
Prófkjörskostnaður:
Langflestir
skussar í VG
FJÖLMIÐLAR Vonir standa til að
fleiri bætist í hluthafahóp eign-
arhaldsfélags
Árvakurs,
útgáfufélags
Morgunblaðs-
ins.
Óskar Magn-
ússon útgefandi
segir þó engar
breytingar hafa
átt sér stað frá
því sem síð-
ast hefur verið
frá greint.
Jón Pálmason fjárfestir sé því
ekki með í hópnum, þótt orðróm-
ur hafi verið um annað. „Hann
hefur verið mér handgenginn og
verður vonandi með síðar, eins og
fleiri, en það er ekki orðið svo,“
segir hann.
Þrír stærstu eigendur blaðsins,
með yfir helmingshlut, eru Óskar
sjálfur, Samherji og Guðbjörg
Matthíasdóttir fjárfestir, stund-
um kennd við Ísfélagið í Vest-
mannaeyjum. - óká
Eigendur Morgunblaðsins:
Vonast eftir
fjölgun síðar
ÓSKAR
MAGNÚSSON
ÍRLAND, AP Þrjár írskar konur
hafa kært fóstureyðingabannið á
Írlandi til Mannréttindadómstóls-
ins í Strassborg.
Þær saka stjórnvöld á Írlandi
um að brjóta mannréttindi á
barnshafandi konum með því að
neita þeim um viðeigandi læknis-
aðstoð og þvinga þær þar með til
að leita til annarra landa til að fá
fóstureyðingu.
Úrskurðar er að vænta á næsta
ári. Sjö þúsund írskar konur ferð-
ast árlega til Englands eða ann-
arra landa til að fá þar fóstureyð-
ingu. Fóstureyðingar eru leyfðar
í flestum löndum Evrópu.
- gb
Fóstureyðingabann á Írlandi:
Bannið kært til
Strassborgar
BRETLAND, AP Reykingar verða að
minnsta kosti fimm milljónum
manna að aldurtila ár hvert, að
því er alþjóðaheilbrigðisstofnun-
in WHO fullyrðir í nýrri skýrslu.
Stofnunin segir að sú tala geti
hækkað ef ekki verði gripið til
harðari aðgerða í baráttunni
gegn reykingum.
Hún segir nauðsynlegt að fleiri
lönd lögleiði reykingabann, því nú
sé staðan sú að nærri 95 prósent
jarðarbúa séu varnarlaus gegn
reykingum annarra.
Talið er að óbeinar reykingar
verði um 600 þúsund manns að
bana ár hvert.
- gb
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin:
Tóbakið drepur
fimm milljónir
ALÞINGI Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra sagði á Alþingi
í fyrradag að hægt verði að
lækka höfuðstól Icesave-lánsins
um 20 prósent á næsta ári með fé
frá skilanefnd Landsbankans.
Steingrímur sagði að skila-
nefndin mundi eiga 180 milljarða
króna í lausu fé nú um áramót.
120 milljarðar bætist í búið á
næsta ári.
Af þessu fé verði hægt að
greiða 160 milljarða strax inn
á höfuðstól Icesave-lánsins og
lækka hann þannig um 20 pró-
sent. - pg
Steingrímur J. Sigfússon:
20% greidd inn
á höfuðstól
Icesave 2010
SAMFÉLAGSMÁL Reykjavíkurborg
mun greiða tekjulágum foreldrum
6.000 króna uppbót með hverju
barni á næstu dögum. Þetta var
samþykkt á fundi velferðarráðs
borgarinnar í gær.
Gagnrýnt hafði verið að
Reykjavíkurborg ætlaði sér ekki
að greiða desemberuppbót með
börnum, eins og tíðkast hjá Akur-
eyrarbæ. Jórunn Frímannsdótt-
ir, formaður velferðarráðs, segir
að þegar sú gagnrýni hafi komið
fram hafi verið farið yfir málið
og kannað hvort borgin væri eft-
irbátur annarra sveitarfélaga.
Jórunn segir Reykjavíkurborg
síður en svo eftirbát annarra
sveitarfélaga, sér í lagi í ljósi
þess að borgin borgi meira með
börnum yfir árið en önnur sveit-
arfélög.
„Við fórum yfir málið og skoð-
uðum hvort þetta rúmaðist innan
fjárhagsáætlunar velferðarsviðs,“
segir Jórunn.
Alls fengu 255 fjölskyldur með
375 börn á framfæri fjárhags-
aðstoð frá borginni í nóbember.
Því má áætla að kostnaður við
aukagreiðslur í desember sé um
2.250.000 krónur.
Velferðarráð ákvað einnig að
fjölga starfsmönnum Barna-
verndar Reykjavíkur um þrjá á
fundi sínum í gær. Ráðið sam-
þykkti tillögu borgarfulltrúa
Vinstri grænna um fjölgun starfs-
manna.
Jórunn segir engan tilgang í
að standa í pólitískum rökræð-
um um höfundarrétt á tillögunni.
Mikið álag hafi verið á starfsfólki
Barnaverndarinnar og búast megi
við áframhaldandi þunga í mála-
flokknum á næstunni. Full þörf
sé á því að bæta við starfsfólki.
brjann@frettabladid.is
Illa staddir foreldrar
fá desemberuppbót
Velferðarráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að greiða foreldrum sem fá
fulla fjárhagsaðstoð frá borginni 6.000 krónur með hverju barni í desember.
Tillaga VG um að fjölga starfsfólki hjá Barnavernd borgarinnar samþykkt.
ÁLAG Mikil ásókn er í matargjafir góðgerðarsamtaka á borð við Fjölskylduhjálp Íslands þessa dagana. Mikill fjöldi beið í rigning-
unni í gær eftir að fá aðstoð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ég er ekki sammála því að
Reykjavíkurborg eigi að fara út í
skattahækkanir,“ segir Jórunn Frí-
mannsdóttir, formaður velferðarráðs
Reykjavíkurborgar.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu í
gær mótmælir Þorleifur Gunnlaugs-
son, borgarfulltrúi Vinstri grænna,
niðurskurði á velferðarsviði borgar-
innar. Hann lagði til aukin útgjöld,
sem fjármagna megi með auknum
sköttum.
Jórunn segir enga hagræðingar-
kröfu gerða á velferðarsvið borgar-
innar, þótt framlög til sviðsins séu
vissulega ekki aukin í samræmi við
vísitöluhækkanir. Áfram verði mikið
aðhald á öllum sviðum borgarinnar.
ÁFRAM AÐHALD Á ÖLLUM SVIÐUM
GENGIÐ 10.12.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
235,4865
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,78 124,38
202,23 203,21
182,76 183,78
24,556 24,7
21,525 21,651
17,437 17,539
1,4059 1,4141
197,22 198,4
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR