Fréttablaðið - 10.12.2009, Blaðsíða 102
82 10. desember 2009 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. berjast, 6. fæddi, 8. vefnaðarvara,
9. kóf, 11. skammstöfun, 12. tjón,
14. æxlunarfæri blóms, 16. sjó, 17.
dorma, 18. gröm, 20. tveir eins, 21.
tegund.
LÓÐRÉTT
1. drykkur, 3. tveir eins, 4. ef til vill, 5.
for, 7. endurbæta, 10. fley, 13. fugl,
15. veiði, 16. sæti, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. etja, 6. ól, 8. tau, 9. kaf,
11. fr, 12. ógagn, 14. fræva, 16. sæ,
17. sef, 18. erg, 20. ll, 21. tagi.
LÓÐRÉTT: 1. kókó, 3. tt, 4. jafnvel, 5.
aur, 7. lagfæra, 10. far, 13. gæs, 15.
afli, 16. set, 19. gg.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Leki á drögum að samkomulagi
um samdrátt í losun koltvísýrings.
2 Þau eru svipuð og verðmæti
þorskútflutnings fyrstu níu
mánuði ársins, 57,5 milljarðar
króna.
3 Í fjárlaganefnd Alþingis.
Frétt Fréttablaðsins
um að ofurstjarnan
Kylie Minogue hefði
samið við íslenska
tískumerkið Gyðju
vakti mikla athygli
á dögunum. Nú
heyrist að Sigrún
Lilja Guðjóns-
dóttir, hönnuður
og framkvæmda-
stjóri Gyðju, og eiginmaður hafi
fengið boð frá sjálfum Sir Elton
John um að mæta á árlegt vetrar-
ball hans í London. Stærstu stjörn-
ur heims mæta á ballið – David og
Victoria Beckham láta sig til dæmis
aldrei vanta og breska konungsfjöl-
skyldan er á meðal heiðursgesta.
Sigrún verður hins
vegar að hafna boði
Eltons þar sem hún
kynnir nýja línu í
Kringlunni á laugar-
daginn. Sérstakt
Hollywood-
þema verður
á kynn-
ingunni
og gestir
myndaðir á rauða dreglinum. Loks
tekur Edda Heiðrún Backman
við styrktarsamningi frá Gyðju og
Steinari Waage fyrir hönd átaksins
Á rás fyrir Grensás.
Auglýsingatextar eru misjafnir,
en þegar þeir eru sérstaklega
skemmtilegir vekja þeir athygli.
Bæklingur Tiger-verslananna þykir
óvenjuskemmtilegur en
ástæðan fyrir því er
einföld: Rithöfundur-
inn og lífskúnstnerinn
Auður Haraldsdóttir
sér um að skrifa í hann
og leysir það með
glans. - afb
FÓLK Í FRÉTTUM
Fyrirtækið Hljóðbók.is hefur tekið
upp á þeirri nýjung að hljóðskreyta
þrjár hljóðbækur sem gefnar verða
út fyrir jólin. Hljóðskreyttu bæk-
urnar þrjár eru Útkall við Látra-
bjarg eftir Óttar Sveinsson, Kaf-
bátasaga eftir Örnólf Thorlacius og
Pétur poppari eftir Kristján Hreins-
son.
„Við notum hljóðeffekta til að
auka áhrif sögunnar. Í upphafi bók-
arinnar Útkall við Látrabjarg heyr-
ist brimrót og hvernig sjómennirn-
ir berjast fyrir lífi sínu og eykur
þetta áhrifamátt frásagnarinnar.
Kafbátasaga er skreytt með ýmsum
kafbátahljóðum og ævisaga Péturs
poppara er hljóðskreytt með tónd-
æmum frá hljómsveitum Péturs,“
útskýrir Gísli Helgason, annar eig-
andi Hljóðbókar.is.
Fyrsta hljóðskreytta bókin,
Flóttinn frá Heimaey, kom út í
fyrra og að sögn Gísla voru viðtök-
urnar það góðar að ákveðið var að
gefa út fleiri hljóðskreyttar bækur
nú í ár. „Viðbrögðin hafa verið góð
og fólk hefur sagt við okkur að það
hafi farið hrollur um það þegar það
hlustaði til dæmis á Útkallið við
Látrabjarg.“
Gísli segir hljóðbækurnar vera
fyrir alla þá sem hafa gaman af því
að hlusta á góða sögu og segir fólk
hlusta á sögurnar í bílnum, líkams-
ræktinni og heima hjá sér. „Sumir
hlusta á sögurnar fyrir svefn og
finnst gott að sofna út frá lestrinum
þannig að hljóðbækurnar er hægt að
nota við öll tækifæri,“ segir hann.
Hljóðbækurnar fást í flestum
bókabúðum auk þess sem hægt er
að panta þær á heimasíðunni www.
hljodbok.is. - sm
Áhrifamiklar hljóðbækur
Fjölmiðlakonan Ragnhildur Magnúsdóttir
hefur fengið handritsstyrk frá Kvikmynda-
sjóði Íslands vegna heimildarmyndarinnar
Fíkill.
„Ég fékk lítinn, sætan handritsstyrk í
sumar og var að dútla mér við þetta en hug-
myndin var búin að veltast um í hausnum á
mér lengi,“ segir Ragnhildur. Myndin fjall-
ar á óhefðbundinn hátt um nokkra einstakl-
inga sem áttu við fíkniefnavanda að stríða en
náðu að snúa lífi sínu við. Áður hefur Ragn-
hildur búið til heimildarmyndina From Oak-
land to Iceland sem fékk fínar viðtökur. Hún
fjallar um ferðalag plötusnúðsins Dj Platurn,
bróður Ragnhildar, til Íslands eftir 25 ára
búsetu í Bandaríkjunum. „Ólíkt fyrstu mynd-
inni þá ætla ég ekki að framkvæma þessa
mynd fyrr en ég fæ framleiðslustyrk. Ég er
búin að gera mynd með engum styrkjum. Það
var frábær reynsla og ég lærði ofboðslega
mikið af því en ég ætla að gera þetta í réttri
röð ef ég ætla að gera þetta aftur,“ segir
Ragnhildur.
Vegferð From Oakland to Iceland er ekki
lokið. Myndin hefur verið sýnd á MTV-vef
Skandinavíu, í Kanada og á Íslandi og nú er
plakatið sem var gert fyrir myndina ofarlega
á lista í nýrri íslenskri könnun yfir bestu bíó-
myndaplaköt áratugarins. „Þetta kom mér
mjög mikið á óvart því það vita flestir að
þessi mynd var gerð fyrir mjög lítinn pening
og fjármagnið fyrir plakatið var líka lítið,“
segir Ragnhildur, sem átti hugmyndina að
plakatinu. Þórdís Claessen annaðist síðan
grafíska hönnun þess.
Ragnhildur hætti sem útvarpskona á
Bylgjunni í október eftir nokkurra ára starf.
„Ég fór í stutt endurhæfingarfrí vegna bíl-
slysameiðsla en sagði upp verktakasamningi
mínum við Bylgjuna í kjölfarið. Ég fann að
mig langaði ekki aftur í akkúrat þetta starf
þegar ég fer aftur að vinna. Það var bara
kominn tími á breytingar.“ - fb
Ragnhildur gerir mynd um fíkla
RAGNHILDUR MAGNÚSDÓTTIR Fjölmiðlakonan hefur
fengið handritsstyrk vegna heimildarmyndarinnar
Fíkill. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÁHRIFARÍK FRÁSÖGN Gísli Helgason,
eigandi Hljóðvinnslunar, gefur út hljóð-
skreyttar hljóðbækur fyrir jólin.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
„Ég hlusta mest á músík í
skriftörnum og fer þá úr einu
í annað. A Night in Tunisia
með Charlie Parker og Dizzy
Gillespie, Zombie með Fela Kuti,
Paper Planes með MIA og Imm-
igrant Song með Led Zeppelin
eru til dæmis fjórar plötur sem
hafa verið í gangi.“
Þórarinn Leifsson rithöfundur.
Saga Film hefur tryggt sér kvik-
myndaréttinn að bók Stefáns
Mána, Ódáðahraun. Samning-
urinn er til átján mánaða og því
greinilegt að framleiðslufyrir-
tækið ætlar að setja nokkurn
kraft í þetta verkefni. Ragnar
Agnarsson mun leikstýra mynd-
inni en Ragnar og Stefán munu
að öllum líkindum einnig skrifa
handritið. Þetta er þriðja bók
Stefáns sem er seld á þennan
hátt, ZikZak á réttinn að Skip-
inu og Svartur á leik ásamt Film-
us. „Við skrifuðum undir í dag og
erum mjög spenntir, þetta er bara
fyrsta skrefið af mörgum en von-
andi verða þau fleiri,“ segir Ragn-
ar í samtali við Fréttablaðið.
Ragnar segist fyrst hafa
heillast af myndrænum texta Stef-
áns, söguþráður bókarinnar sé
pottþéttur og svo séu persónurn-
ar forvitnilegar. „ Aðalpersónan,
Óðinn, er alveg ferlega skemmti-
legur, karakter sem ákveður níu
ára gamall að verða glæpamaður,
það er svolítið ný sýn. Svo dreg-
ur bókin ekkert undan í lýsingum
sínum á ofbeldinu,“ segir Ragnar
en ef af líkum lætur verður þetta
fyrsta kvikmyndin hans í fullri
lengd. „Ég hef verið að gera mikið
af auglýsingum og svo er ég nýbú-
inn að klára eina stuttmynd og er
með aðra í vinnslu.“
Stefán Máni var að vonum
ánægður með samninginn og var
glaður með hversu mikinn kraft
Saga Film ætli að setja í myndina.
„Það er samið til átján mánaða
með möguleika á framlengingu
en þeir eru brattir og það væri
gaman ef þetta gengi allt saman
eftir á þessu tempói,“ segir Stef-
án. Eins og áður segir eru tvær
aðrar kvikmyndir á teikniborð-
inu hjá íslenskum framleiðslufyr-
irtækjum eftir bókum Stefáns og
rithöfundurinn hefur varla mátt
stinga niður penna án þess að
kvikmyndafyrirtækin séu kom-
inn í símann. Samlíkingin við
Dan Brown, bandaríska metsölu-
rithöfundinn er því einhvern veg-
inn óhjákvæmileg en hann virð-
ist vera í svipuðum sporum. „Ég
er miklu gæfulegri en hann, ég
er svona Dan Brown með sál,“
segir Stefán og hlær. Og höfund-
urinn er alveg með það á hreinu
hver ætti að leika aðalhlutverkið
í myndinni. „Draumurinn er að
fá Ólaf Darra. Hann er valkostur
númer eitt enda myndi hann rúlla
þessu upp.“ freyrgigja@frettabladid.is
STEFÁN MÁNI: ER DAN BROWN MEÐ SÁL
Saga Film kaupir
Ódáðahraun Stefáns
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
ÞRJÚ NÚLL
Saga Film hefur keypt
kvikmyndaréttinn að
Ódáðahrauni Stefáns
Mána en þetta er þriðja
bók höfundarins sem fer
þessa leið. Kvikmynda-
rétturinn að bæði Skipinu
og Svörtum á leik hafa
verið seldar. Stefán vill sjá
Ólaf Darra í aðalhlut-
verkinu í Ódáðahrauni.