Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.12.2009, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 10.12.2009, Qupperneq 16
 10. desember 2009 FIMMTUDAGUR DALVÍK 114 milljóna króna afgang- ur verður á rekstri A hluta Dal- víkurbyggðar á næsta ári. Að teknu tilliti til halla á B hlutanum verður afgangur bæjarfélagsins 95 milljónir, samkvæmt fjárhags- áætlun 2010. Var hún til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi á þriðju- dag. Stendur öll bæjarstjórnin að henni. Fjárfest verður í Dalvíkurbyggð fyrir 324 milljónir á næsta ári. Ber þar hæst lok framkvæmda við nýja íþróttamiðstöð og búnað- arkaup vegna hennar. Þá verður nokkru fé varið til gatna og gang- stétta og ýmissa umhverfisverk- efna, að því er fram kemur í frétt frá Dalvíkurbyggð. Fyrirtæki sveitarfélagsins, svo sem Vatnsveita og Hafnarsjóður, munu einnig framkvæma nokkuð á nýja árinu auk þess sem viðhaldi verður sinnt. Reiknað er með að skatttekjur verði nítján milljónum króna lægri á næsta ári en 2009. Helgast það af lægri framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga en útsvar og fasteigna- skattar breytast ekki milli ára. Lántaka upp á rúmar hundrað milljónir vegna framkvæmdanna við íþróttamiðstöðina er fyrirhug- uð en heildarkostnaður vegna henn- ar verður þá kominn í 544 milljónir. Skuldir Dalvíkurbyggðar munu við lok næsta árs nema rúmum millj- arði króna. Tæpur helmingur er til- kominn vegna félagslegra íbúða. - bþs Fjárhagsáætlun Dalvíkur ráðgerir samdrátt í skatttekjum en 95 milljóna afgang: Samstaða um fjárhagsáætlun FRÁ DALVÍK Fiskidagurinn mikli laðar þúsundir gesta til bæjarins ár hvert. GJÖF VÍS hefur veitt Mænuskaða- stofnun Íslands þriggja milljóna króna styrk vegna undirskrifta- söfnunar stofnunarinnar sem nú fer fram á Norðurlöndunum. Þar er fólk hvatt til að skrifa undir áskorun til Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar um að beita sér fyrir alþjóðlegu átaki til að leita lækningar á mænuskaða. Segir í tilkynningu frá VÍS að mænuskaði kosti þjóðir heims tugi milljarða króna á hverju ári. VÍS hafi ákveðið að leggja mál- efninu lið vegna þess að fyrir- tækið hafi til fjölda ára starf- rækt forvarnadeild, sem meðal annars hefur það að markmiði að koma í veg fyrir slys sem valdið geta mænuskaða. VÍS veitir styrk: Mænuskaða- stofnun fær þrjár milljónir TRYGGINGAR Neytendastofa bannar áframhaldandi birtingu auglýs- inga um að svokallaðar Elísabet- artryggingar séu allt að 30 pró- sentum lægri fyrir heimili en hjá öðrum tryggingafélögum. „Í auglýsingunum er ekki greint frá því að um mismunandi trygg- ingar er að ræða og því eru þær villandi,“ segir í ákvörðun Neyt- endastofu sem skoðaði málið eftir ábendingar frá neytend- um um að í tryggingum Elísa- betar væru færri vátrygg- ingaþættir en hjá öðrum tryggingafélögum. Það er Tryggingamiðstöð- in sem rekur tryggingafé- lagið Elísabet. Neytendastofa óskaði eftir að færðar yrðu sönnur á fullyrðinguna um að heimilin spöruðu 30 prósent með því að kaupa tryggingar Elísabetar. Þá var spurt hvort tekið hafi verið tillit til sjálfsá- byrgðar og þeirra vátrygginga- þátta sem keppinautar Elísa- betar bjóða eða hvort einungis hafi verið litið til verðs. Elísabet svaraði með því að vísa í verðdæmi á vefsíðu sinni. Í samanburði þar við Vátrygg- ingafélag Íslands kæmi fram hver vátryggingafjárhæðin væri og að hvaða leyti trygging Elísabetar hefði takmarkaðra bótasvið en tryggingar VÍS. „Neytendastofa hefur vegna máls þessa borið saman skilmála á fasteignatryggingum Elísa- betar og skilmála samanburð- arfélagsins. Við þá skoðun hefur komið í ljós að í tryggingu sam- anburðarfélagsins eru ábyrgð- arliðir sem ekki eru í tryggingum Elísabetar,“ segir Neytendastofa sem telur Tryggingamiðstöðina hafa brotið gegn lögum um eftir- lit með viðskiptaháttum og mark- aðssetningu. „Í auglýsingum Elísabetar er með almennum hætti fullyrt að neytendur geti lækkað kostnað við heim- ilistryggingar um allt að 30 pró- sent. Eins og að framan hefur verið rakið eru í auglýsingunum bornar saman tryggingar Elísa- betar við tryggingar keppinauta þó þær innihaldi til dæmis ekki sömu ábyrgðarliði,“ segir Neytendastofa og minnir á að viðskiptahættir séu óréttmætir ef þeir raski veru- lega eða séu líklegir til að raska verulega fjárhags- legri hegðun neytenda. Viðskiptahættir teljist villandi ef þeir séu lík- legir til að blekkja neyt- endur. „Er það mat Neyt- endastofu að auglýsing- ar Elísabetar með full- yrðingu um allt að 30% lækkun á verði heimil- istrygginga séu til þess fallnar að hafa áhrif á fjárhagslega hegðun neytenda. Þá er neyt- endum að mati stofnun- arinnar gefnar villandi upplýsingar um verð þjónustunnar þar sem ekki er greint frá því að færri ábyrgðarliðir eru í tryggingum Elísabetar en tryggingum keppi- nauta.“ gar@frettabladid.is Elísabet blekkti með villandi auglýsingum Neytendastofa segir auglýsingar Elísabetar um 30 prósenta lækkun trygginga fyrir heimili vera villandi og bannar frekari birtingu. Neytendur væru blekktir með samanburði við umfangsmeiri tryggingar Vátryggingafélags Íslands. AUGLÝSING ELÍSABETAR Þessi auglýsing og aðrar með sömu fullyrðingu hafa verið bannaðar frá og með næsta föstudegi.Vát ryggjandi er Tryggingamiðstöði n hf. betri kjör á tryggingum fyrir heim ilið og bílinn lækkaðu tryggingarnar fyrir heimilið um allt að 30% DAGSKRÁ 12.00 Setning 39. fundar mannréttindaráðs Marta Guðjónsdóttir, formaður mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar 12.05 Ávarp Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri 12.15 Konur og völd dr. Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur 12.25 Fulltrúi Framsóknarflokks Vigdís Hauksdóttir 12.30 Fulltrúi Samfylkingar Guðrún Ögmundsdóttir 12.35 Fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs Anna Ólafsdóttir Björnsson 12.40 Fulltrúi F-lista frjálslyndra og óháðra Ásta Þorleifsdóttir 12.45 Fulltrúi Sjálfstæðisflokks Sólveig Pétursdóttir 12.50 Pallborðsumræður með þátttakendum Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir Boðið verður upp á súpu, brauð og kaffi ÁHRIF KVENNA Í STJÓRNMÁLUM OG ATVINNULÍFI Opinn fundur mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar þann 10. des kl. 12.00 -13.30 í Iðnó
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.