Fréttablaðið - 10.12.2009, Blaðsíða 68
48 10. desember 2009 FIMMTUDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 10. desember 2009
➜ Tónleikar
20.00 Kirkjukór Hveragerðis- og
Kotstrandarsókna, Brokkkórinn,
Borgarkórinn og Sönghópur Hvera-
gerðiskirkju koma fram á tónleikum í
Hveragerðiskirkju við Hverahlíð.20.00
Erla Björg Káradóttir sópran, Hanna
Þóra Guðbrandsdóttir sópran og Sólveig
Samúelsdóttir mezzósópran verða með
tónleika í Laugarneskirkju við Kirkjuteig.
Á efnisskránni verður jólatónlist og
klassík.
20.00 Jólatónleikar til styrktar Fjöl-
skylduhjálp fara fram í Víðistaðakirkju
við Hraunbrún í Hafnarfirði. Meðal
þeirra sem fram koma eru Dísella, Soff-
ía Karlsdóttir, Guðrún Árný Karlsdóttir
og Margrét Árnadóttir.
20.00 Jólatónleikar Glæðanna, kórs
kvenfélags Bústaðakirkju og Vorboð-
anna, kórs eldri borgara í Mosfellsbæ,
verða haldnir í Bústaða-
kirkju við Tunguveg.
20.30 Jólatónleikar
Sigríðar Beinteins-
dóttur fara fram á
Grafarvogskirkju við
Fjörgyn.
20.30 Snigla-
bandið leikur lög af
plötunni „Jól meiri
jól“ á útgáfutón-
leikum í Salnum
við Hamraborg í
Kópavogi.
21.00 Útgáfutónleikar
Borgarinnar fara fram
á NASA við Austurvöll.
Fram koma Hjaltalín,
Megas og senuþjófarnir,
Hjálmar, Baggalútur,
Snorri Helgason, Bernd-
sen og Sigríður Thorl-
acius og Heiðurspiltar.
Húsið verður opnað kl. 20.30.
21.00 Ellen Kristjánsdóttir heldur
útgáfutónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík.
21.00 Í Græna hattinum við Hafnar-
stræti á Akureyri verða haldnir tónleikar
til styrktar Tónminjasafninu á Akueyri.
Meðal þeirra sem fram koma eru Hel-
ena Eyjólfsdóttir, Kristján Edelstein, Inga
Eydal, Krassbandið og Húsbændur og
hjú. Húsið verður opnað kl. 20.
22.00 Latínband Tómasar R. Einarsson-
ar heldur útgáfutónleika á Kaffi Rosen-
berg við Klapparstíg.
22.00 Hreimur Örn Heimisson verður á
Pósthúsinu Vínbar við Pósthússtræti 13.
22.00 Eldhúspartý FM957 fer fram á
Sódóma Reykjavík við Tryggagötu. Fram
koma Ingó og Veðurguðirnir, Alan Jones
og Í svörtum fötum. Sérstakur gestur
kvöldsins er Bubbi Morthens. Húsið
verður opnað kl. 21.
➜ Sýningar
Davíð Örn Halldórsson sýnir málverk í
Menningar- og listamiðstöðinni Hafn-
arborg við Strandgötu í Hafnarfirði.
Þar stendur einnig yfir sýningin
„Úrvalið - Íslenskar ljósmyndir
1866-2009“.
Sveinbjörg Ásgeirsdóttir hefur opnað
sýninguna „Á meðan ég svaf“ á Café
Karólínu við Kaupvangsstræti á Akur-
eyri. Opið mán.-fim. kl. 11.30-01, fös. og
lau. kl. 11.30-03 og sun. kl. 14-01.
Æja hefur opnað sýninguna „Saga“ í
Gallerí List við Skipholt 50A. Opið virka
daga kl. 11-18 og lau. kl. 11-16.
➜ Síðustu forvöð
Hjá Listasafni ASÍ við Freyjugötu lýkur á
sunnudaginn sýningum Jóhönnu Helgu
Þorkelsdóttur og Halldórs Ragnarssonar.
Opið alla daga nema mánudaga kl. 13-
18. Enginn aðgangseyrir.
➜ Markaðir
Opin vinnustofa og
jólamarkaður fer fram í
Hönnunarsafni Íslands
að Lyngási 7-9 (efri hæð)
í Garðabæ. Fyrir mark-
aðnum standa Lúka
Art & Design, Hring eftir
hring, S. Anna Nikulásdóttir
og Þórdís Jóelsdóttir.
➜ Dagskrá
Kínó ör-kvikmyndaklúbburinn stendur
fyrir dagskrá hjá Listasafni Reykjavíkur
við Tryggvagötu. Nánari upplýsingar á
www.listasafnreykjavikur.is.
➜ Upplestur
20.00 Í veitingastofu Þjóðarbókhlöð-
unnar við Arngrímsgötu verður boðið
upp á upplestur úr nýútkomnum
bókum. Fram koma Sölvi Björn Sig-
urðsson, Vilborg Davíðsdóttir, Ragna
Sigurðardóttir, Steinar Bragi, Oddný Eir
Ævarsdóttir og Sigurður Gylfi Magnús-
son. Enginn aðgangseyrir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.i.
Kristinn Sigmundsson óperusöngvari verður ein-
söngvari á árlegum jólatónleikum Kórs Bústaða-
kirkju á þriðjudagskvöldið kemur hinn 15. desem-
ber en þeir hefjast kl. 20.
Jólatónleikar í kirkjunni eru árlegur viðburður
og hafa þangað sótt gestir úr sókninni og víðar að.
Yfirskrift tónleikanna að þessu sinni er „Yfir fann-
hvíta jörð“. Miklu verður kostað til við tónleikana og
mun Hljómsveit Björns Thoroddsen ásamt strengja-
kvarttet sjá um allan undirleik undir stjórn kórstjór-
ans Renötu Ivan. Glæsileg efnisskráin verður að
mestu hugljúf jólatónlist, bæði íslensk og frá ýmsum
öðrum löndum ásamt einhverjum vel völdum aríum
af óperusöngvaranum Kristni Sigmundssyni.
Undanfarin ár hefur Kór Bústaðakirkju alltaf
fengið góðan gest með sér á þessa árlegu tónleika,
eins og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur (Diddú), Jóhann
Friðgeir Valdimarsson, Kristján Jóhannsson og
Stefán Hilmarsson. Mikil eftirvænting er með að
fá Kristin Sigmundsson, en hann er okkar allra
merkasti óperusöngvari á erlendri grund um þess-
ar mundir.
Miðasala er hafin á tónleikana, en aðeins 300
miðar verða seldir á þessa glæsilegu tónleika og er
miðasalan í Bústaðakirkju. Tónleikarnir verða ekki
endurteknir.
Kristinn í Bústaðakirkju
TÓNLIST Kristinn Sigmundsson verður einsöngvari á jólatón-
leikum í Bústaðakirkju á þriðjudag í næstu viku og er miðasala
hafin FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Bókmenntir ★★★
Auður
Vilborg Davíðsdóttir
Vilborg Davíðsdóttir sótti þegar á
sögumið þegar hún var búin að skóla
sig í sagn- og mannfræði og tók
fyrir þrítugt að gefa út sögur sem
voru byggðar á skörpum afmörk-
uðum tímabilum í norrænni sögu.
Eftir því sem á leið feril hennar
stækkuðu viðfangsefnin, sögurnar
tóku að heimta ítarlegri og víðtæk-
ari rannsóknir, oft á þeim sviðum
sögu norrænna manna sem heim-
ildir voru fáar um, og reyndi því æ
meir á innsæi hennar í frásögn og
djúpa þekkingu á söguefninu.
Í nýrri bók, sem ég tel að verði
líkastil þríleikur, leitar hún að upp-
hafi Auðar djúpúðgu, þeirrar sögu-
frægu konu, á eyjunum milli Írlands
og Skotlands, byggðinni sem varð
til undir 800, ólgandi átakatíma
milli aðkomumanna frá Norður-
löndunum; Noregi og Danmörku,
sem áttu landfestar í norðureyjun-
um, á Mön og á vesturströnd Skot-
lands. Þetta voru þjóðarbrotin sem
eyddu byggðum Pikta og uppruna-
legum landnámsmönnum Orkneyja
og eyjaskarans við norðurbrún
Skotland. Hér takast á frumkristni
Kelta og heiðindómur, þetta er heill-
andi tími.
Vilborg hefur oftast eytt þreki
sínu og stílgáfu til að greina og
segja örlagasögur af konum; eins er
það hér. Karlar eru fjarlægir í sög-
unni, hún er kvennamegin. Sagan af
Auði er raunar spennandi og sápu-
kenndur róman, eins og lunginn af
sagnaskáldskap sem reynir að end-
urskapa horfna tíma. það skiptir ekki
máli þótt helstu söguhetjur hafi geð
nútímamanna, við eigum ekki annan
inngang að þeim hvort eð er.
Margt er fallega hugsað og orðað
í sögu af Auði, gífurlegt magn heim-
ilda rennur um söguna, sviðsetning
er prýðileg, en persónusköpun nokk-
uð klisjukennd. Vilborg beitir víða
fornum orðmyndum en alltaf af gát,
hún verður ástfangin af stöku orðum
en í heild verður að segja að saga
hennar sé skrifuð af mikilli smekk-
vísi.
Og hér er margt sem vekur áhuga,
þótt kristinn munkur, Gilli, sem
verður mikill örlagavaldur í sögunni,
taki nokkuð pláss og trúboðsstell-
ingar hans séu langdregnar í fyrsta
parti sögunnar. En hann hverfur úr
sögunni þegar þolinmæði lesanda er
komin að mörkum. Sagan eftir það
verður bærilegasta afþreying.
Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða: Vel grunduð þroskasaga
frá upphafi níundu aldar, spennandi
og forvitnilegum tíma.
Auður djúpúðga verður til
BÓKMENNTIR Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur hefur sent frá sér þroskasögu stúlku á
níundu öld sem síðar verður kölluð Auður djúpúðga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN