Fréttablaðið - 10.12.2009, Blaðsíða 40
10. desember 2009 FIMMTUDAGUR
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu
vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari
leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn
er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni.
UMRÆÐAN
Rósa Kristjánsdóttir og
Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir
skrifa um sorgarferli
Lífið tekur miklum breytingum þegar sorgin vitjar og staðið
er frammi fyrir andláti ástvin-
ar. Ekkert er eins og áður og það
reynir á að læra að lifa með þeirri
reynslu sem sorgin er. Sorgin
lætur engan ósnortinn og er hluti
af mannlegu lífi. Allar manneskj-
ur mæta sorginni fyrr eða síðar á
lífsleiðinni, það er einungis spurn-
ing um tíma eða stund.
Þjóðkirkjan sinnir eftirfylgd
við syrgjendur og starfsfólk henn-
ar veitir sérhæfða sálgæslu og
stuðning til þess að takast á við þá
sáru reynslu sem sorgin er. Þess
má jafnframt geta að ýmsar ein-
ingar á Landspítala og Hjúkrunar-
og ráðgjafaþjónustan Karitas hafa
skipulagt eftirfylgd sem hluta af
þeirri þjónustu sem verið er að
veita. Eftirfylgdin felst í því að
syrgjendum er fylgt eftir í ákveð-
inn tíma eftir andlát ástvinar með
ýmsum hætti og m.a. er boðið til
samverustunda reglubundið.
Undanfarin ár hefur sérstök
samvera verið haldin á aðventu
fyrir syrgjendur að frumkvæði
fagfólks innan heilbrigðisþjónust-
unnar í samstarfi við þjóðkirkj-
una en slík samvera var hald-
in í fyrsta skipti fyrir tíu árum í
Grensáskirkju.
Samveran er ætluð þeim sem
eiga um sárt að binda og er þeim
boðið til kirkju á aðventu. Mark-
miðið er að koma saman fyrir
jólin til að veita stuðning í tengsl-
um við undirbúning jólanna og
jólahald. Í samverunni er áhersla
lögð á samfélagið og gildi þess
að koma saman til þess að hljóta
stuðning, uppörvun og styrk. Tón-
listin skipar stóran sess, jólasálm-
ar eru sungnir, hugvekja er flutt
og tónlistarfólk bæði leikur á
hljóðfæri og syngur. Hápunktur
samverunnar er minningarstund
þar sem tendruð eru ljós um alla
kirkjuna til að minnast látinna
ástvina.
Ljósið, Jesús Kristur, sem jóla-
hátíðin vitnar um er þungamiðj-
an og ítrekað er mikilvægi þess
að horfa til ljóssins, leyfa því að
varða vegferðina og vísa leiðina í
myrkri sorgar og erfiðleika.
Samveran hefur fest sig í sessi
og er orðin fastur liður í starfi
þjóðkirkjunnar í samstarfi við
Landspítala og Hjúkrunar- og ráð-
gjafarþjónustuna Karitas. Hvatn-
ing og undirtektir þeirra sem sótt
hafa samveruna hefur orðið til
þess að þetta starf hefur vaxið og
er orðið ómissandi þáttur fyrir
marga. Sumir koma á hverju ári
og margir hafa tjáð sig um gildi
þess að safnast saman með fólki
sem er að takast á við sambæri-
lega reynslu. Við sem höfum frá
upphafi tekið þátt í undirbún-
ingi þessa starfs höfum fengið að
heyra vitnisburði syrgjenda um
samveruna og þeir vitnisburðir
hafa hvatt okkur til þess að halda
áfram þessu starfi ár eftir ár.
Það er sterkt að heyra setningar
og orð eins og: „Þetta er í fyrsta
skipti sem ég hef farið í kirkju
frá því útför ástvinar míns fór
fram,“ eða: „Ég kveið því að fara
í kirkju á aðfangadagskvöld, en
þessi samvera hefur hjálpað mér
að mæta þeim kvíða,“ og „Mér
finnst svo gott að fá tækifæri til
þess að syngja jólasálmana áður
en jólin koma og búa mig þannig
undir komu þeirra.“ Einnig hafa
sumir syrgjendur sagt „að það
sé svo gott að fá tækifæri til að
hitta aftur fólkið sem sinnti fjöl-
skyldunni á þessum erfiða tíma í
lífinu“.
Í ár verður samvera á aðventu
fyrir syrgjendur haldin í Grens-
áskirkju 10. desember klukkan
20.00. Vandað hefur verið til dag-
skrár að venju og leggja margir
hönd á plóg til að gera samveruna
að veruleika. Björg Þórhallsdótt-
ir söngkona syngur og enn fremur
flytur Hamrahlíðarkórinn nokk-
ur lög undir stjórn Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur.
Árni Arinbjarnarson, organ-
isti Grensáskirkju, leikur á orgel
en hann hefur ásamt félögum úr
kór kirkjunnar tekið þátt í þessu
starfi frá upphafi.
Samveran er öllum opin sem
eiga um sárt að binda og vilja
leggja leið sína í Grensáskirkju.
Rósa Kristjánsdóttir er djákni.
Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir er
sjúkrahúsprestur.
Samvera á aðventu fyrir syrgjendur
RÓSA
KRISTJÁNSDÓTTIR
GUÐLAUG HELGA
ÁSGEIRSDÓTTIR
Samveran er ætluð þeim sem
eiga um sárt að binda og er
þeim boðið til kirkju á að-
ventu. Markmiðið er að koma
saman fyrir jólin til að veita
stuðning í tengslum við undir-
búning jólanna og jólahald.
UMRÆÐAN
Eiður Guðnason skrifar
um Lottó
Framkvæmdastjóri Golf-sambands Íslands send-
ir mér svolitla kveðju í
Fréttablaðinu, mánudaginn
7. desember, vegna greinar,
sem ég skrifaði í það ágæta
blað um aðdraganda Lottó-
sins á sínum tíma. Þar var
þeirri skoðun lýst að tímabært væri nú að endur-
skoða skiptingu hagnaðar af þessari lögvernduðu
peningamaskínu, sem beinir gríðarlegu fjármagni
meðal annars til íþróttahreyfingarinnar. Hann segir
að ég hafi vondan málstað að verja. Ef tekið er mið
af því hve margir hafa þakkað mér fyrir þessa litlu
grein, þá hlýt ég að telja málstaðinn nokkuð góðan
og mig í góðum félagsskap. Ekkert er hrakið af því
sem fram kom í grein minni.
Lögverndað einkaleyfi til lottóreksturs jafngildir
beinum ríkisstyrk. Íþróttafélögin nota verulega fjár-
muni til að greiða íþróttamönnum, erlendum og inn-
lendum, laun eða bónusa eða hvað það nú er nefnt.
Ungmennafélag Íslands hefur staðið í heldur vafa-
sömu braski í tengslum við fyrirhugað hótel í mið-
bænum, þótt það mál kunni að hafa verið sett í salt
um sinn.
Ég er eindregið þeirrar skoðunar, að golf eigi ekki
að njóta ríkisstyrkja eins og lottóhagnaðurinn í raun
og veru er. Ef menn vilja spila golf, þá eiga þeir að
borga það úr eigin vasa. Það er engin ástæða til að
niðurgreiða golfiðkun með þeim hætti sem fram-
kvæmdastjórinn tíundar.
Það linnir ekki kveðjunum frá þeim sem starfa
við að veita þeim samtökum forystu sem njóta lott-
ógróðans, sjálfsagt eru þeir ólaunaðir áhugamenn. Í
Fréttablaðinu 8. desember fæ ég aðra kveðju frá for-
manni Öryrkjabandalagsins, formanni Ungmenna-
félagsins og forseta Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands, samanber fyrirsögnina: Mikið um eyður.
Minna má það ekki vera. Grein þeirra byggist eink-
um á því að snúa út úr nafninu mínu. Eiður = eyður.
Gagnrýni minni á miðbæjarbrask Ungmennafélags-
ins er ekki svarað fremur en gagnrýni á háar launa-
greiðslur til íþróttamanna erlendra og innlendra
sem ég setti fram í grein minni. Ekkert af því sem
fram kom í grein minni er hrakið.
Orð mín um afkastamikla peningamaskínu stað-
festi einn af framámönnum íþróttahreyfingar-
innar við mig nokkru eftir að lottóið tók til starfa.
(„Þú sást þetta fyrir,“ sagði hann.) Ég er viss um að
hann man eftir samtali okkar um þetta í flugstöð-
inni í Keflavík. Grein þremenninganna er annars
ekki svaraverð. Það er aumt að hafa þau rök helst
að snúa út úr skírnarnafni mínu. Það er ekki mjög
íþróttamannslegt.
Auðvitað er löngu tímabært að endurskoða skipt-
ingu lottógróðans og horfa þá til þeirra leiða sem
farnar eru í grannlöndum okkar. Að kalla umræðu
um þetta ósanngjarna og villandi er í senn bæði
ósanngjarnt og villandi og ekki fallið til að efla vit-
ræna umræðu um málið. Þetta mál þarf að ræða.
Það var áreiðanlega aldrei ætlan löggjafans að
þessi skipting hagnaðarins yrði óbreytt um aldur
og ævi.
Að rúmum fjórum vikum liðnum barst mér 8.
desember svar við fyrirspurn minni um arð, skipt-
ingu arðs, rekstrarkostnað o.fl. frá framkvæmda-
stjóra Íslenskrar getspár.
Í svarinu segir framkvæmdastjórinn að hann
hafi aðeins verið í starfi tvö ár og síðan orðrétt: „ …
hef ekki fengið slíka fyrirspurn áður um upplýsing-
ar sem þessar frá fólki úti í bæ. Mér var hins vegar
bent á af mér reyndari (svo!) fólki að okkur bæri
ekki nein skylda að afhenda slíkar upplýsingar. Við
sendum allar upplýsingar til Dóms- og mannrétt-
indaráðuneytisins og Hagstofunnar eins og okkur
ber. Varðandi arðgreiðslur til eignaraðila okkar
vísa ég þér beint til þeirra. Varðandi fyrirspurn
þína um auglýsingakostnað þá ertu að biðja um við-
kvæmar viðskiptaupplýsingar á markaði sem ég er
ekki tilbúinn að veita þér.“ Spurning mín um rekstr-
arkostnað er ekki nefnd. Neitað er að svara spurn-
ingu um kostnað við gerð auglýsingar með fyrir-
sætunni, sem dvalist hefur í Búlgaríu. Ekki var
spurt um annan auglýsingakostnað.
Svo mörg voru þau orð framkvæmdastjórans.
Félagi sem lifir á lögvernduðu einkaleyfi ríkisins er
sem sé ekki skylt að svara spurningum skattborg-
ara. En auðvitað eru til aðrar leiðir til að afla þess-
ara upplýsinga. Þessi afstaða sýnir líklega betur en
margt annað hve brýnt er að taka þessi mál til end-
urskoðunar. Sú endurskoðun þarf sannarlega ekki
sjálfkrafa að fela í sér að Öryrkjabandalagið beri
minna úr býtum eftir en áður.
Höfundur er fyrrverandi alþingismaður.
Lítið eitt meira um Lottó
EIÐUR GUÐNASON
Geggjaðir aukavinningar!
Sendu SMS skeytið
ESL JOL á númerið
1900. Þú færð
spurningu og svarar
með því að senda SMS
skeytið ESL A, B eða C
á númerið 1900.
Þú gætir unnið!
Aðalvinningur:
iPhone + 10.000 kr.
inneign hjá Tónlist.is
og margt fleira...
GSM símar NÓA konfekt
DVD myndir
T.
d.
þ
es
sa
r
Kippa af Malti
og Appelsíni
T
d
T
d
T.
d.
T.
d.
þe
s
þe
s
þ
es
þ
esþ
sa
r
sa
r
sa
r
*Aðalvinningar dregnir úr öllum
innsendum skeytum 23.desember.
Vinningar verða afhentir í ELKO Lindum,
Kópavogi. Með því að taka þátt ertu
kominn í SMS klúbb. 149 kr./SMS-ið.
Þú færð 5 mínútur til að svara spurningu.
Leik lýkur 22.desember 2009
10. HVER
VINNUR!
iPhone er kominn!
Viltu eintak?