Fréttablaðið - 10.12.2009, Blaðsíða 24
24
FRÉTTASKÝRING: Málþóf
Mikið hefur verið rætt
um málþóf síðustu vikur í
kjölfar maraþonumræðna
stjórnarandstöðunnar um
Icesave. Málþóf er alda-
gömul aðferð til að stöðva
mál og á rætur sínar að
rekja til Rómaveldis. Þó
tíðkast það aðeins í örfáum
löndum í dag og þekkist
ekki hjá öðrum Norður-
landaþjóðum.
Kató yngri er fyrsti skráði mál-
þófsmaðurinn. Árið 60 fyrir
Krist kom hann í veg fyrir að
Júlíus Sesar kæmi máli í gegn-
um rómverska þingið með því að
tala fram á kvöld, en Rómverjar
höfðu lög um að öllum ákvörðun-
um þingsins yrði að ljúka í birtu.
Árið eftir ætlaði hann að leika
sama leikinn, en Sesar sá sitt
óvænna og lét taka hann hönd-
um og varpa í dýflissu. Það varð
Sesari þó ekki til framdráttar
og þótti til marks um valdníðslu
hans. Þingmenn höfðu samúð
með Kató og Sesar neyddist til
að láta hann lausan.
Þingmenn í dag eiga ekki á
hættu að vera varpað í steininn
þótt þeim liggi mikið á hjarta.
Öll takmörkun á ræðutíma hefur
orðið til þess að umræða fer af
stað um málfrelsi. Þegar regl-
um á Alþingi Íslendinga var síð-
ast breytt, árið 2008, lögðu þing-
menn Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs ríka áherslu á
rétt sinn til málfrelsis. Á hann
mætti ekki ganga. Þó varð sam-
staða um að breyta reglunum
og löggjafinn ætlaði með því að
málþóf væru úr sögunni. Annað
hefur komið á daginn.
Önnur umræðan
Samkomulag náðist á milli flokk-
anna um að skerpa rétt stjórnar-
andstöðunnar í ýmsum málum
gegn því að ræðutími yrði skert-
ur. Áður höfðu reglur verið
þannig að ræðutími var ótak-
markaður við aðra og þriðju
umræðu. Hann er nú takmark-
aður en þingmenn mega, eftir
aðra ræðu, koma eins oft í pontu
og þeir vilja og tala í fimm mín-
útur. Það hefur stjórnarandstað-
an nú nýtt sér óspart, en þar að
auki hafa þingmenn farið í and-
svör hver gegn öðrum. Þannig
hefur mátt heyra stjórnarand-
stöðuþingmenn hrósa hver öðrum
fyrir ræður í andsvörum og jafn-
vel spyrja hver annan um hvað
viðkomandi telji að þessi eða hin
stjórnarþingmaðurinn eigi við
með ummælum sínum.
Stjórnarliðar hafa margir
gagnrýnt stjórnarandstöðuna
fyrir framferði sitt. Þeir ættu þó
ekki að gleyma því að á síðustu
árum beittu þingmenn Vinstri
grænna og Samfylkingarinnar
málþófi oftar en einu sinni. Og
voru gagnrýndir fyrir af núver-
andi stjórnarandstöðu. Þeir héldu
hins vegar fast í þann lýðræð-
islega rétt sinn að fá að tjá sig
um mál eins og þá lysti. Líkt og
stjórnarandstaðan gerir nú.
Forseti Alþingis getur þó
úrskurðað að ræðutími hvers
þingmanns sé takmarkaður. Þá
getur hann lagt til að umræðum
sé hætt og eru greidd atkvæði
um þá tillögu og einfaldur meiri-
hluti ræður. Sömuleiðis geta níu
þingmenn krafist þess að greidd
séu atkvæði um að ljúka umræð-
unni.
Viðurkennt tæki
Óvíða er málþófi beitt með jafn-
skipulögðum hætti og í Banda-
ríkjunum. Þar hafa þingmenn
stjórnarandstöðunnar beitt mál-
þófi óspart til að stöðva mál og
tefja. Það hefur farið vaxandi
síðustu ár. Á sjöunda áratugn-
um voru aldrei fleiri en sjö til-
vik málþófs á hverju þingi. Síðan
árið 2000 hefur ekkert þing verið
haldið með færri en 49 málþófs til-
vik. Flest urðu þau árið 2008, en
þá beitti stjórnarandstaðan mál-
þófinu 112 sinnum.
Bandaríkjamenn hafa af og til
reynt að koma böndum á málþóf-
ið. Hver þingmaður í öldunga-
deildinni má tala eins oft og hann
vill og eins lengi og hann vill.
Þingið hefur þó þann öryggis-
ventil að ef 3/5 þingmanna greiða
með því atkvæði, er umræðunni
lokið. Það ákvæði var tekið upp
árið 1917, en þá þurftu 2/3 hluti
þingmanna að greiða atkvæði
með því að ljúka umræðu. Því
var breytt árið 1975.
Málþófið er áhrifamikið tæki
og var það sérstaklega fyrir sjö-
unda áratuginn. Þá voru reglur
nefnilega þannig að einungis var
hægt að vera með eitt frumvarp
í gangi í einu. Málþófið stöðvaði
þannig öll störf þingsins. Nú má
hafa fjölda mála í gangi í einu.
Demókratinn, sem síðar varð
repúblikani, Storm Thurmond,
hefur haldið lengstu ræðu í sögu
bandaríska þingsins. Thurmond
var frá Suðurríkjunum og ein-
arður stuðningsmaður kynþátta-
hyggjunnar sem þar var stunduð.
Hann talaði gegn öllum tilraun-
um til að auka réttindi blökku-
manna og árið 1957 talaði hann
í 24 klukkustundir og átta mín-
útur til að stöðva frumvarp um
mannréttindi.
Suðurríkjademókratar beittu
málþófinu gjarnan gegn frum-
vörpum um mannréttindi og tókst
oftar en ekki að hefta framgang
þeirra.
Málinu rænt
Alþjóðlega orðið yfir málþóf er
filibuster. Það á rætur sínar að
rekja til hollenska orðsins vri-
bjuiter, sem er samsvarandi
enska orðinu freebooter. Það er
notað yfir sjóræningja. Á fyrri
öldum var ekki óalgengt að amer-
ískir ævintýramenn, aðallega úr
Suðurríkjunum, reyndu að steypa
stjórnvöldum í Mið-Ameríkuríkj-
um af stóli. Þar var stjórnkerfið
veikt og oftar en ekki tókst mönn-
um að ræna völdum um skeið,
ekki ólíkt Jörundi hundadaga-
konungi hér á landi.
Þeir sem stunda málþóf, fili-
busterar, eru þess vegna, sam-
kvæmt orðsifjafræðinni, þeir
sem ræna umræðunni.
Íslenska orðið málþóf er gegn-
sætt, þeir sem því bæta þæfa
málið, tefja það. Í ritmálssafni
Orðabókar Háskólans kemur
fram að elsta dæmið um það er að
finna í bók Bjarna Benediktsson-
ar, Land og lýðveldi, en hún kom
út í tveimur bindum árið 1965 og
það þriðja árið 197 5.
Þekkist víðar
Þótt Bandaríkin séu mekka mál-
þófsins þekkist það víðar. Það
er hins vegar ekki algengt og
til að mynda þekkist það ekki í
nágrannalöndum okkar. Því hefur
stundum verið beitt í Bretlandi,
þó ekki oft. Elsta dæmið um mál-
þóf þar er árið 1874, en þar talaði
Joseph Gillis Biggar mikið gegn
lögum sem áttu að tryggja reglu
á Írlandi. Annar írskur þingmað-
ur, Parnell, tók undir með honum
og saman komu þeir í veg fyrir
lagasetninguna. Ekki nóg með
það, umræðan um sjálfstjórn
Írlands komst á dagskrá aftur,
þótt ekkert yrði úr henni á þeim
tíma. Þrátt fyrir velgengnina eru
aðeins skráð fjögur önnur tilvik
um málþóf á breska þinginu, það
síðasta árið 2007.
Frakkland er vagga lýðræð-
isins og þar standa menn vörð
um réttindi eins og málfrelsi.
Franskir þingmenn hafa hins
vegar ekki oft beitt málþófi. Árið
2006 beittu vinstri þingmenn
í stjórnarandstöðu því bragði að
leggja fram 137.449 breytinga-
tillögur við frumvarp sem kvað
á um að selja hluta af eign ríkis-
ins í gasfélaginu Gaz de France.
Samkvæmt reglum um þingsköp
hefði tekið tíu ár að afgreiða til-
lögurnar. Eftir að kannanir sýndu
stuðning þjóðarinnar við einka-
væðinguna drógu þeir hins vegar
tillögurnar til baka.
Kanadamenn þekkja einn-
ig málþóf, en árið 1997 var lagt
fram frumvarp um að miðborg
Toronto, sem hafði notið nokkurs
sjálfstæðis, skyldi sameinuð Tor-
onto. Demókrataflokkur Ontario
lagði þá fram 11.500 tillögur um
að göturnar þar yrðu nefndar upp
á nýtt og íbúar þeirra fengju um
málið að segja á fundum. Frjáls-
lyndir í Ontario lögðu fram nokk-
ur hundruð eins tillögur og þeir
skiptust á að tala fyrir þeim á
þingi.
Tillögurnar voru allar sam-
hljóða, utan götunafnsins.
Umræður um þær hófust 2. apríl.
Fjórum dögum síðar ákvað þing-
forseti að ekki þyrfti að lesa upp
þau 220 orð sem voru eins í öllum
tillögunum, aðeins götunafnið.
Það var þó ekki fyrr en 8. apríl
að síðasta götunafnið, Zorrogata,
var afgreitt.
Einnig eru til dæmi um málþóf
á Norður-Írlandi, Suður-Ródesíu,
Ástralíu og Nýja-Sjálandi.
Málin stöðvuð með málþófi
BANDARÍKJAÞING Þing Bandaríkjanna hefur verið svo til óstarfhæft síðustu vikur
vegna málþófs repúblikana. Þingmenn tóku sér þó hlé frá umræðum þegar Angela
Merkel, forseti Þýskalands, sótti þá heim í nóvember. NORDICPHOTOS/AFP
FÁMENNT Oft var fámennt í þingsal þegar umræður um Icesave stóðu sem hæst.
Talað var fram á nótt og voru stjórnarandstæðingar mun fjölmennari á mælenda-
skrá en stjórnarliðar, svo vægt sé til orða tekið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
UMDEILD MÁL Á ALÞINGI
mál ár lengd umræðu
Icesave – seinna frumvarp (1.-2. umr.) haust 09 105 klst*
EES 92-93 101 klst.
Fjölmiðlalög 03-04 83 klst.
Sveitarstjórnarlög 97-98 74 klst.
Ríkisútvarpið 06-07 70 klst.
Stjórnskipunarlög 08-09 59 klst.
Gagnagrunnur 98-99 53 klst.
Vatnalög 05-06 52 klst.
ESB-aðildarumsókn sumar 09 48 klst
Icesave – fyrra frumvarp (sumar 09) 43 klst
SAMKVÆMT UPPLÝSINGUM FRÁ SKRIFSTOFU ALÞINGIS.
*ÞRIÐJA UMRÆÐA ER EFTIR.
FRÉTTASKÝRING
KOLBEINN
ÓTTARSSON PROPPÉ
kolbeinn@frettabladid.is