Fréttablaðið - 10.12.2009, Blaðsíða 2
2 10. desember 2009 FIMMTUDAGUR
Arnar, þurfa menn líka að
hafa fimm háskólagráður til
að komast í bíó?
„Nei, það þarf ekkert próf fyrir
þetta.“
Arnar Freyr Sigurðsson hefur ásamt félaga
sínum stungið upp á því við Sambíóin að
þeir sem mæta í gervi Georgs Bjarnfreð-
arsonar á frumsýningu kvikmyndarinnar
Bjarnfreðarsonar fái ókeypis á myndina.
NEYTENDUR Um 160 þúsund lítrar eru seldir af jóla-
bjór í ár sem er um 60 prósenta söluaukning miðað
við sama tíma í fyrra. Nokkrar tegundir eru upp-
seldar hjá birgjum en engin enn sem komið er í Vín-
búðunum að því er Örn Stefánsson innkaupastjóri
segir. Hann segir sölu á venjulegum bjór hafa dreg-
ist saman á sama tíma, sem er nýtt, áður hafi jóla-
bjórinn verið sem hrein viðbót í bjórsölu.
Vinsælustu tegundirnar eru Tuborg jólabjór í
flösku, Egils maltbjór og stórar dósir af Víking jóla-
bjór, þær eru uppseldar hjá birgjum. Einnig er lítið
eftir af Kalda og Víking í gleri að sögn Arnar.
Framboðið á jólabjór hefur aukist jafnt og þétt og
nú má fá sextán tegundir af jólabjór í Ríkinu. Verð á
litlum flöskum og dósum er frá 239 krónum og upp í
790 krónur. Sá dýrasti er belgískur og 10 prósent að
styrk. Verð á stórum bjór er á bilinu frá 289 krónum
og upp í 549 krónur, flestir kosta þó um 300 krón-
urnar.
Sölutímabil jólabjórs lýkur 6. janúar og því gæta
framleiðendur þess að gera ekki of mikið af bjórn-
um, því þeir sitja uppi með það sem eftir er eftir að
sölu lýkur.
Töluverðar verðhækkanir hafa orðið á áfengi und-
anfarið ár, nær 30 prósent svo dæmi séu tekin frá
Hagstofunni á hálfs lítra dós af Becks frá nóvem-
ber 2008 til nóvember 2009. Örn bendir á að bjór-
sala hafi og dregist saman í nóvember í ár og í fyrra
en það er í fyrsta sinn sem það gerist. Áfengisgjald
hækkaði 21. desember í fyrra og síðan þá hefur
Tuborg í dós til dæmis hækkað um 14 prósent, Kaldi
um rúm níu prósent og stór dós af Egils um þrjú
prósent. - sbt
Metsala á jólabjór dregur úr sölu á venjulegum bjór:
60 prósenta söluaukning á jólabjór
VINSÆLIR Komu jólabjórsins var fagnað á öldurhúsum í ár eins
og stundum áður.
ALÞINGI Ástæða þess að Siv Frið-
leifsdóttir var ekki viðstödd
atkvæða-
greiðslu um
ábyrgðir vegna
Icesave er að
hún var pöruð
út á móti Helga
Hjörvar. Helgi
var staddur á
vegum þings-
ins erlendis og
hefði för hans
verið aflýst ef
Siv hefði ekki vikið af þingfundi.
Löng hefð er fyrir slíku á
Alþingi.
Í yfirlýsingu Framsóknar-
flokksins vegna málsins segir að
það sé gert til að valdahlutföll
raskist ekki vegna lögmætra for-
falla þingmanna.
Mörg dæmi séu um að þing-
menn annarra flokka hafi verið
paraðir út á móti þingmönnum
Framsóknarflokks, á meðan hann
var í ríkisstjórn. Þetta hafi ekk-
ert með afstöðu Sivjar til máls-
ins að gera og hafi þegar komið
fram. - kóp
Siv Friðleifsdóttir:
Var pöruð út
á móti Helga
NOREGUR Dularfullt ljós á himni
vakti mikla athygli íbúa í Norður-
Noregi í gærmorgun. Í norskum
fjölmiðlum upphófust þegar mikl-
ar vangaveltur um hugsanlegar
orsakir þess.
Á endanum virtust þó flestir
sættast á að ljósið hafi komið frá
rússnesku flugskeyti, sem hafi
borið af leið og sprungið. Ein-
kennilegt spíralmyndað ljós, sem á
tímabili sást, hafi líklega stafað af
skini sólar á flugskeytið.
Svipað ljós sást á norðurhimni
í Noregi í byrjun nóvember, sem
olli miklum heilabrotum þangað
til ljóst þótti að þar hafi rússneskt
flugskeyti verið á ferð. - gb
Dularfull ljós yfir Noregi:
Líklegast rúss-
neskt flugskeyti
SVEITARFÉLÖG Fjárhagsáætl-
un Dalabyggðar 2010 gerir ráð
fyrir 9 milljóna króna afgangi af
rekstri sveitarfélagsins.
Fyrri umræða um áætlunina
fór fram á þriðjudag. Gert er ráð
fyrir að rekstrarniðurstaða fyrir
fjármagnsliði verði jákvæð um
38,9 milljónir
Tekjur eru áætlaðar 592,7
milljónir en gjöld 553,7 milljón-
ir, auk 29,9 milljóna króna í fjár-
magnsliði.
Sveitarfélagið mun fullnýta
útsvarsheimildir sínar og gerir
ráð fyrir 8 prósenta almennri
gjaldskrárhækkun en fimm pró-
senta hækkun launa.
Hækkun tryggingagjalds úr
5,37 prósentum í 8,6 prósent
hefur í för með sér 8,9 milljóna
króna hækkun útgjalda fyrir
Dalabyggð. - pg
Fjárhagsáætlun 2010:
Níu milljónir í
rekstrarafgang
SIV
FRIÐLEIFSDÓTTIR
NÝSKÖPUN Í Múlalundi er nú verið
að framleiða hugarsmíð Ástu
Kristrúnar Ragnarsdóttur. Þar er
um að ræða standa fyrir tölvur,
bækur og dagblöð sem hafa fyrir-
byggjandi áhrif á heilsu þeirra sem
þá nota. Ásta hefur hannað stand-
ana, í samvinnu við Hörpu Helga-
dóttur sjúkraþjálfa, en hún er að
ljúka doktorsverkefni um háls- og
axlamein í Háskóla Íslands.
Vörurnar, sem hafa hlotið heitið
NEMAvörur, eru unnar í náinni
samvinnu við lækna og iðjuþjálfa.
Um er að ræða bretti eða stand, á
hverju fólk lætur bækur hvíla við
lestur, eða tölvur við vinnu. Þá
er með einföldum hætti hægt að
breyta vörunni í dagblaðabretti og
notkun standanna því margþætt.
Sótt hefur verið um styrk til
Impru til að markaðssetja vör-
urnar í Norður-Evrópu. Þegar eru
komnir samstarfsaðilar í Noregi
og Svíþjóð og einnig hafa framleið-
endur verið í sambandi við Worka-
bility Europe Business, sem eru
Evrópusamtök sem staðsett eru í
Hollandi.
Eftir miklu er að slægjast; í
Þýskalandi einu er námsmanna-
markhópur NEMAvara um 35
milljónir króna og á Norðurlönd-
um 9 til 10 milljónir.
Markópurinn er fartölvunotend-
ur, fólk sem vinnur samtímis með
tölvu og ritað mál og þá fólk sem
stundar lestur, til dæmis náms-
menn og sá hópur sem á í erfiðleik-
um með að halda á og fletta blaði
eða bók, til dæmis eldri borgarar.
Ásta segir sérstaklega skemmti-
legt að vörurnar séu framleiddar í
Múlalundi. Þar sé stærsti öryrkja-
vinnustaður landsins og hann
standi höllum fæti og sé á ákveðn-
um tímamótum. Búið sé að selja
húsið við Hátún og vinnustaður-
inn flytji í húsnæði Reykjalund-
ar, sem nýverið hætti starfsemi.
Hönnunar- og þróunarferlið hefur
tekið um eitt ár og þegar hún var
komin með mótaða hugmynd hafði
hún samband við Múlalund. Þar
hófst þróunar- og prófunarstarf
snemma árs 2009.
NEMAvörurnar eru þegar komn-
ar á markað og hafa fengið góðar
viðtökur, að sögn Ástu. Múlalundur
og NEMA hafa borið allan kostnað
af þróunar- og markaðssetningu og
segir Ásta að ljóst sé að styrk þurfi
ef halda eigi dampi meðan varan
er fersk.
„Nú þarf að sýna nýsköpun í
verki. Við getum rétt okkur af
þegar salan eykst, en nú vantar
fjármagn til markaðssetningar.
Okkur vantar vængi til að taka á
flug.“ kolbeinn@fretabladid.is
Bókabretti stuðlar
að betra heilsufari
Í Múlalundi eru nú ekki framleiddar möppur heldur unnið að framleiðslu
standa fyrir tölvur, bækur og dagblöð. Standarnir eru íslenskt frumkvöðlaverk-
efni og hafa fyrirbyggjandi heilsuvænleg áhrif. Þeir fara á markað í Evrópu.
FRUMKVÖÐLAR Ásta Kristrún og Harpa standa að framleiðslu brettanna í samstarfi
við Múlalund, en þar eru þau framleidd. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMFÉLAGSMÁL Velferðarsjóður
barna afhenti í gær Rjóðri, hjúkr-
unarheimili fyrir langveik börn,
viðbótarhúsnæði til listmeðferðar,
með myndlistar-, nudd- og viðtals-
herbergi.
Alls nýta um 50 fjölskyldur á
landinu sér þjónustu Rjóðurs og
gjöfin því kærkomin fyrir börnin.
Í Rjóðri er rými fyrir átta langveik
börn hverju sinni. Þar fá börnin
endurhæfingu og aðhlynningu, og
foreldrar fá oft kærkomna hvíld og
tíma fyrir sjálfa sig. Velferðarsjóð-
ur barna kom Rjóðri á laggirnar
fyrir sex árum. Á þeim tíma hefur
sjóðurinn varið yfir 100 milljónum
króna til heimilisins. - bj
Velferðarsjóður barna afhenti Rjóðri viðbótarhúsnæði til listmeðferðar:
Kærkomin viðbót fyrir börnin
OPIÐ Börnin klipptu sjálf á borðann og opnuðu viðbótarhúsnæði þar sem listmeð-
ferð mun fara fram. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
UMHVERFISMÁL Starfshópur sem
umhverfisráðherra skipaði
hefur skilað af sér fyrstu drög-
um um aðgerðaáætlun loftslags-
málum. Þar eru kynntar átta
meginleiðir sem eiga að leiða til
19 til 32 prósenta minni losun-
ar gróðurhúsalofttegunda árið
2020.
Meðal þeirra aðgerða er að
breytt kerfi skatta og gjalda á
bíla og eldsneyti, notkun lífelds-
neytis á fiskiskiptaflotann, raf-
væðing fiskimjölsverksmiðja
og efling göngu, hjólreiða og
almenningssamgangna sem val-
kosts í samgöngum.
Umhverfisráðherra, Svandís
Svavarsdóttir, fer á laugardag-
inn til Kaupmannahafnar á ráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna um
loftslagsmál.
- kóp
Fyrstu drög tilbúin:
Aðgerðaáætlun
um loftslag
MYNDLIST Hafmeyja Nínu
Sæmundsson var í gær seld til
einkaaðila. Verkið var á upp-
boði á þriðjudag í Gallerí Fold
og vonaðist uppboðshaldarinn til
að Reykjavíkurborg festi kaup á
henni og setti upp við Tjörnina.
Þar var áður hafmeyjumynd eftir
Nínu en sú var sprengd í loft upp
á nýársnótt 1960.
Ekki fékkst viðunandi boð
í verkið á uppboðinu, en sam-
kvæmt upplýsingum frá gallerí-
inu keypti einkaaðili utan Reykja-
víkur styttuna. Það verði sett
upp utan borgarinnar, en verði
almenningi aðgengilegt. - kóp
Stytta Nínu Sæmundsson:
Hafmeyjan fór
til einkaaðila
SPURNING DAGSINS