Fréttablaðið - 10.12.2009, Blaðsíða 84
64 10. desember 2009 FIMMTUDAGUR
BLÓÐUGUR LADDA-BARDAGI
Guðmundur Franklín og Eyþór Ingi keppa um titilinn
besti Laddinn en þeir sem hafa reynt án árangurs
eru allir „Strákarnir“, þeir Pétur Jóhann, Auddi og
Sveppi, Hemmi Gunn, Ómar Ragnarsson, Steinn
Ármann, Helgi Seljan og útvarpsmaður-
inn Freyr Eyjólfsson, sem stakk upp á
Ladda-eftirhermukeppninni við Dodda
litla og Andra Frey.
Bókaforlagið Veröld hélt útgáfufagnað á Kaffi Sólon fyrir skömmu. Þar glöddust rithöfundar og fleiri valinkunnir ein-
staklingar yfir góðu útgáfuári núna fyrir jólin. Ekki var annað að sjá en að bæði gestir og gangandi væru í góðu stuði.
Veröld með útgáfufagnað
BREGÐA Á LEIK Eiríkur Bergmann Einarsson, höfundur
bókarinnar Frá Evróvisjón til evru, og rithöfundurinn
Hallgrímur Helgason bregða á leik. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BRYNDÍS OG SINDRI Bryndís Schram
og rithöfundurinn Sindri Freysson sem
gaf fyrir jólin út bókina Dóttir mæðra
minna.
SAMAN Á SÓLON Framsóknarmaðurinn Guðni Ágústsson og veður-
fræðingurinn Sigurður Ragnarsson, eða Siggi stormur, sátu á Sólon
ásamt konum sínum.
Í útvarpsþættinum Litla hafmeyjan á
Rás 2 hafa Doddi litli og Andri Freyr
Viðarsson staðið fyrir eftirhermu-
keppninni Laddinn síðustu vikurn-
ar. Á föstudagskvöldið er komið að
úrslitarimmunni sjálfri þegar Eyþór
Ingi og Guðmundur Franklín takast á.
„Það kemur mér mikið á óvart hvað ég er
kominn langt í þessu enda hef ég bara verið
að fíflast meðal vina með þessar eftirherm-
ur,“ segir Guðmundur. „Ég veit eiginlega ekki
hverju er að þakka. Ég hef allavega ekki verið
að safna saman fólki til að hringja inn!“
Keppnin fer þannig fram að tveir fara með
Ladda-eftirhermur að eigin vali í hverjum þætti
og svo ákveða hlustendur hver hefur staðið sig
betur. Alls konar lið hefur reynt sig í Ladda-
gríninu, frægir grínarar jafnt og óþekktir
„menn úti í bæ“ - Pétur Jóhann, Steinn Ármann,
Bjarni töframaður, Sveppi, Steini sleggja,
Hemmi Gunn og Ómar Ragnarsson, svo ein-
hverjir séu nefndir.
„Ég vil þakka ömmu minni fyrir þennan
árangur,“ segir Eyþór Ingi. Hann er ekki óvan-
ur keppnum í fjölmiðlum og sigraði í Band-
inu hans Bubba sem kunnugt er. „Amma setti
Ladda-plötu á fóninn þegar ég
var smábarn. Laddi er búinn að
vera í uppáhaldi síðan. Þetta varð
meira að segja svo slæmt að það
voru keyptar teiknimyndir ef ég
vissi að hann var að lesa inn á þær.“
Eyþór er enn forfallinn Ladda-
maður og á stórt safn. Hann veit ekki
alveg hvaða Ladda-gaurar munu birtast
á föstudaginn. „Ég hef aldrei undirbúið
mig fyrir þetta. Ég man bara eftir ein-
hverjum karakterum og prófa þá. Ég hef
fíflast með nokkra áður og veit að ég næ þeim
ágætlega.“
Eyþór segist ekkert stressaður fyrir keppn-
ina – „en ég er þó skíthræddur við andstæðing-
inn!“
Guðmundur ber sig vel: „Eyþór er nokkuð
góður, þetta verður hörkukeppni. Ég fer engar
nýjar leiðir enda kann ekki góðri lukku að stýra
að breyta út af vananum. Þórður húsvörður og
yfirstrumpur eru þeir tveir sem mér finnst auð-
veldast að taka,“ segir hann. Guðmundur vinn-
ur í verkstæðismóttökunni hjá Bílabúð Benna.
Hann sér ekki fram á frekari afrek í skemmt-
anabransanum þrátt fyrir gott gengi í Laddan-
um. „Ég er bara að herma eftir skemmtikrafti
Besti Laddinn krýndur á föstudag
en er nú ekki beinlínis skemmtikraftur sjálf-
ur!“
Litla hafmeyjan hefst kl. 19.30 á föstudags-
kvöld en úrslit Laddans um hálftíma síðar.
Allar keppnir hafa verið teknar upp á mynd-
band og er hægt að sjá afraksturinn á Youtube.
com með því að leita eftir „Laddinn“.
drgunni@frettabladid.is
Fyrrverandi Playboy-fyrirsæt-
an og kærasta Hughs Hefner,
Holly Madison, og rokkarinn
Benji Madden eru nýjasta parið
í Hollywood. Benji er tvíbura-
bróðir Joels Madden, eiginmanns
Nicole Richie, og miðað við að
hann átti áður í sambandi við hót-
elerfingjann Paris Hilton er ekki
að furða að hann hafi fallið fyrir
Holly.
Holly viðurkenndi á Twitter-
síðu sinni að hún væri hrifin af
rokkaranum. „Það mætti segja
að ég væri að hanga með ein-
hverjum sem ég er skotin í. Benji
er einhver sem ég er skotin í...
eins og er.“ skrifaði hún. Einnig
sást til parsins fyrir stuttu á veit-
ingastað þar sem þau létu vel að
hvort öðru. „Það var greinilega
eitthvað á milli
þeirra. Benji
hélt utan um
mittið á henni
og hún hékk
í handleggn-
um á honum.
Þau hlógu og
döðruðu
allan tím-
ann.“
Hrifnæm
kanína
SKOTIN Holly Madison
viðurkennir að hún sé
skotin í Benji Madden.
Söngvari hljómsveitarinnar
Weezer, Richard Cuomo, slasaðist
nokkuð eftir að rúta hljómsveit-
arinnar rann til á hálkubletti og
endaði ofan í skurði. Söngvar-
inn var fluttur á sjúkrahús eftir
að hann hafði kvartað undan
verkjum í brjósti og rifbeinum.
Eiginkona hans og tveggja ára
dóttir voru einnig farþegar í rút-
unni en sluppu báðar ómeidd-
ar. Hljómsveitin var á leið heim
til New York eftir að hafa komið
fram á hljómleikum í Toronto í
Kanada.
Slasaðist
í árekstri
ÁREKSTUR Rúta hljómsveitarinnar Weez-
er ók út af í hálku.
Annað kvöld, föstudagskvöldið 11.
desember, munu þrjár af bestu
tónleikasveitum Íslands heiðra
íbúa Reykjanesbæjar með nær-
veru sinni. Hljómsveitirnar Kim-
ono, Morðingjarnir og Bárujárn
ætla þá að leika á eðalbúllunni
Paddy’s. Ókeypis er inn á tónleik-
ana og hefjast þeir stundvíslega
klukkan 23.30.
Allar sveitirnar sendu frá sér
plötu á þessu ári. Kimono var að
senda frá sér þriðju plötu sína,
Easy Music for Difficult People og
Morðingjarnir komu með Flóttann
mikla en Bárujárn var að senda
frá sér sína fyrstu þröngskífu, sem
ber nafn sveitarinnar. Tónleikar
sveitarinnar eru ekki fyrir við-
kvæma. Hægt er að hlusta á tón-
list sveitanna á Gogoyoko og þeir
sem vilja spara jólagjafainnkaupin
geta keypt diskana af böndunum í
Paddy‘s með rosalegum afslætti.
Morðingjar í Keflavík
MORÐINGJARNIR Í Keflavík á morgun.
Leikarinn Rupert Everett
hvetur unga, samkynhneigða
leikara til að halda sig inni
í skápnum. Hinn fimmtugi
leikari heldur því fram að
það hafi eyðilagt frama hans
að koma út úr skápnum því
síðan þá hafi hann aðeins
fengið aukahlutverk í
kvikmyndum og aldrei
aðalhlutverkið.
„Það er ekki ráðlegt.
Þetta er aldrei auðvelt og
ég mundi aldrei ráðleggja
neinum leikara að koma út
úr skápnum. Staðreyndin
er einfaldlega sú að það
gengur ekki upp að vera
ungur samkynhneigður leikari
sem ætlar sér að komast áfram
í kvikmyndaiðnaðinum.“ Þrátt
fyrir þessi orð segist Everett
trúa því að hann sé hamingju-
samari en þær stórstjörnur
sem enn húka inni í skápn-
um af ótta við að missa
vinnuna. „Ég held að
ég sé líklega ham-
ingjusamari en þeir.
Ég er ekki jafn ríkur
en ég get þó verið ég
sjálfur.“
Verið inni í skápnum
EKKI KOMA ÚT Rupert
Everett segir það hafa
slæm áhrif á feril leikara
komi þeir út úr skápnum.
Leikkonan
Jennifer Gar-
ner prýðir
forsíðu jan-
úarheftis tíma-
ritsins W og í
viðtalinu ræðir
hún um hjóna-
band sitt og
leikarans Bens
Affleck. „Við vorum saman í
ár og svo byrjuðum við bara að
fjölga okkur. Við hugsuðum með
okkur „eignumst barn!“ og átta
dögum síðar...“ sagði leikkonan
um barneignir þeirra hjóna.
Ákváðu að
fjölga sér