Fréttablaðið - 10.12.2009, Side 66

Fréttablaðið - 10.12.2009, Side 66
46 10. desember 2009 FIMMTUDAGUR menning@frettabladid.is kl. 21 á Græna hattinum Í kvöld eru styrktartónleikar fyrir Tónminjasafnið á Akureyri. Forkólf- ar safnsins efna til styrktartónleika svo koma megi þessu merkilega safni fyrir. Helena Eyjólfsdóttir, Kristj- án Edelstein, Inga Eydal, Rúnar Eff, Cantabile, Krossbandið, Óskar Pét- ursson og Húsbændur og hjú koma fram. Kynnir er Sigurður Gunnars- son. Húsið verður opnað kl. 20. For- sala er í Eymundsson á Akureyri. > Ekki missa af Jólatónleikum kl. 20 í Laugar- neskirkju. Þá munu þær Erla Björg Káradóttir sópran, Hanna Þóra Guðbrands dóttir sópran og Sólveig Samúelsdóttir mezzósópran flytja hugljúfa jólagleði í tónum. Meðleikari á tónleikunum er Antonía Hevesi. Óhætt er að segja að efnisskráin verði fjölbreytt, allt frá íslenskri jólatónlist til léttra amerískra jóladægurlaga ásamt klassískum perlum. Þannig ættu allir að geta fund- ið eitthvað við sitt hæfi. Í kvöld verður sveiflan allsráðandi á Kaffi Rosenberg þegar Tómas Einarsson, bassaleikari og for- göngumaður um tónleikahald og spilamennsku með meiru, kallar til fríða sveit samferðamanna og heldur útgáfutónleika. Tilefnið er margfalt: Fagnað verður útgáfu á tónleikadiski Tómasar, LIVE!, sem kom út fyrir skömmu, sem og útgáfu á latínsafninu Reykjavík-Havana, en það inniheldur plöturnar Kúbanska, Havana, Romm Tomm Tomm og LIVE! og eru þar komnar í eitt knippi plötur Tómasar frá Kúbutúrum hans. Hljóðfæraleikarar eru auk bassaleikarans Tómas- ar, Óskar Guðjónsson saxófónn, Kjartan Hákonar- son trompet, Samúel J. Samúelsson básúna, Ómar Guðjónsson gítar, Davíð Þór Jónsson hljómborð, Pétur Grétarsson kóngatrommur og Matthías MD Hemstock, trommur og slagverk. Latínplötur Tómasar R. hafa notið mikilla vinsælda hérlendis og selst samtals í meira en átta þúsund eintökum. Tón- leikadiskurinn LIVE! hefur að geyma níu lög frá tónleikum í Reykjavík, Moskvu og Havana, en nýjustu upptökurnar eru frá sveittum og afar líflegum tónleikum í Iðnó á Jazzhátíð Reykjavíkur í haust sem leið. Tónlist Tómasar R. hefur hlotið lofsamlega dóma í helstu tímaritum lat- íntónlistarinnar og lög hans hafa setið á vinsældalistum latínútvarpsstöðva í Bandaríkjun- um, Kólumbíu, Perú og á Ítalíu. Þá hefur hann með sókn sinni suður á bóginn glætt íslenskt tónlistarlíf djúpum og hröðum töktum suðrænna sálna og þannig glatt geð guma og freyja hér á norðurslóð- inni. Hefur ekki síðan suðurameríska danssveiflan settist hér að fyrir tíma tvists og rokks fyrir atbeina dansáhugamanna nokkur maður sinnt sálgæslu okkar þumbaranna með suðrænum ákafa hins prúða og stillta dalamanns. - pbb Tómas á Rosenberg TÓNLIST Tómas Einarsson reykir bara heima Réttur hálfur mánuður er í frumsýningu á Óliver! eftir Lionel Bart í Þjóðleikhúsinu og sýningin er að skríða saman eins og það kallast á leikhúsmáli: fyrstu æfingar, allt með öllu, hefjast í byrj- un næstu viku. Þótt margir hafi vökult auga á því hvernig svona stórt verkefni kemur saman er það hausinn á Selmu Björnsdóttur sem er undir. Næsta vika verður áreitisfull, þá tekur hún loks að sjá hvernig framkvæmd- in tekur sig út á sviðinu, hljómsveit verður á staðnum og raunar ræður tónlistin ferðinni, allt annað verður að falla að henni eins og er í söng- leikjum. Selma er brött þegar við náum í hana fyrir níu á fimmtudagsmorg- un. Hún er enn heima við og barn gambrar á bak við: „Það gengur bara ljómandi vel,“ segir hún, „hljóm- sveitin kom inn í þessari viku og við verðum með allt saman í næstu vinnuviku.“ Þá fara ljós að birtast á fullbúnu sviði og leikarar taka að festa hreyfingar nákvæmar í leik- mynd Vitasar Narbutas, allir verða komnir í sína búninga og sýningin fer að taka á sig lit. Selma er vön stórum sýningum þar sem saman fer tónlist og hreyf- ing, bæði sem stjórnandi og flytj- andi. Reyndist Óliver! stærri en hún átti von á? „Ég vissi að þetta yrði mikið, en það var samt ögn stærra. Það eru mest fjörutíu manns á svið- inu og mörg númer stór, strákarnir að biðja um matinn, markaðsnúmer, þú krækir þér í, morgunsöngurinn, þetta eru allt stór númer með fimmt- án til fjörutíu flytjendum á sviði.“ Leikmyndin er á tveimur hæðum: „Það er eiginlega nauðsynlegt í verki eins og þessu að hafa tvær hæðir til að geta deilt hreyfingunni, hún sé ekki bara á einu plani heldur líka upp og niður.“ Selma fékk sér til samstarfs breska danshönnuðinn Allette Coll- ins, en hún vann á sínum tíma Rent í Loftkastalanum með Baltasar og Regínu, dansmyndina, með Maríu Sigurðardóttur. Collins fær það erf- iða verkefni að semja sporbrautir fyrir leikara og óvana krakka, mest unga stráka: stór hópur af drengj- um kemur fram í sýningunni og þar verða tveir drengir um stóru hlut- verkin, Hrapp og Óliver: „Það er mikið álag fyrir þessa drengi sem eru búnir að vera hér alla daga und- anfarið, sá sem fer með hlutverk Óli- vers er næstum inni á sviðinu alla sýninguna. Þeir Ari Óli og Sigur- bergur standa sig vel.“ Jólasýningar Þjóðleikhússins eru alltaf sérstakar í vinnuferli. Öllum verkum verður að vera lokið fyrir Þorláksmessu, sem er hinn hefð- bundni lokaæfingardagur. Svo kemur tveggja daga hlé en frum- sýning er að kvöldi annars dags jóla. Það er Rúnar Freyr sem verður með jólaundirbúning og matseld hjá frú Selmu þessi jólin. pbb@frettabladid.is Gengur bara ljómandi vel FR ÉTTA B LA Ð IÐ /A N TO N B R IN K LEIKLIST Selma Björnsdóttir leik- stýra með meiru frumsýnir Oliver! annan í jólum. 1 3 5 7 9 2 4 6 8 10 Svörtuloft Arnaldur Indriðason Jólasyrpa 2009 Walt Disney Karlsvagninn Kristín Marja Baldursdóttir 1001 okkur Hugleikur Dagsson Auður Vilborg Davíðsdóttir Vigdís Páll Valsson Meiri hamingja Tal Ben-Shahar Jöklar á Íslandi Helgi Björnsson Horfðu á mig Yrsa Sigurðardóttir Snorri Óskar Guðmundsson METSÖLULISTI EYMUNDSSON SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT 02.12.09 – 08.12.09 Hvað er eiginlega að gerast á Íslandi? Er allt að verða vitlaust? „... feikna stílisti ... fyndinn og beittur í gegn ...“ Hrund Ólafsdóttir, Morgunblaðið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.