Fréttablaðið - 10.12.2009, Blaðsíða 76
56 10. desember 2009 FIMMTUDAGUR
Tónlist ★★★
Belafonte
Belafonte
Sérlundað popp
Belafonte er söngkonan Sara Marti Guð-
mundsdóttir sem var með Jóhanni Jóhanns-
syni og Pétri Hallgrímssyni í LHOOQ og
lagasmiðurinn Styrmir Sigurðsson, sem hefur aðallega unnið við kvikmynda-
gerð síðustu ár. Þessi fyrsta plata þeirra er búin að vera nokkur ár í smíðum.
Tónlistina á henni mætti kalla skemmtilega sérlundað popp. Lagasmíðarn-
ar eru undir áhrifum frá sígildum dægurlögum frá síðustu öld, stundum
nokkuð djassskotnar. Hljóðfæraleikurinn samanstendur af hefðbundnum
hljóðfærum – bassa, gítar, trommum og hljómborðum sem blandast
ýmsum rafgjörningum og hljóðeffektum Styrmis sem oft skapa skemmtileg-
ar andstæður við poppaðar lagasmíðarnar og kraftmikinn og öruggan söng
Söru.
Það er frísklegur og svalur blær yfir þessari plötu. Sara sýnir að hún er fín
söngkona, lögin eru góð og þessar tilraunakenndu hljóðskreytingar setja oft
mjög skemmtilegan blæ á tónlistina. Það eina sem mér finnst ekki alveg
nógu gott á plötunni er hljóðið. Það kemur ágætlega út ef maður lætur
hana malla í tölvunni, en ef maður setur hana í alvöru græjur vantar svolítið
meiri dýpt í hljóminn; það er of mikil hátíðni og ekki nógur botn.
Á heildina litið er Belafonte samt mjög áhugaverð og skemmtileg poppplata
frá sveit sem vonandi er bara rétt að byrja.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Frískleg og fersk plata sem blandar saman sígildu poppi og
tilraunakenndum hljóðheimi.
Tímaritið OK! hefur greint frá því að söngkonan Jessica Simpson
og Billy Corgan, forsprakki hljómsveitarinnar Smashing Pump-
kins, séu mögulega að draga sig saman. Þetta ólíklega par á að hafa
dregið sig saman í veislu í byrjun nóvember og samkvæmt vinum
Simpson er hún afskaplega hrifin
af Corgan. „Hún féll gjörsam-
lega fyrir Billy og áhyggju-
lausu viðhorfi hans gagnvart
lífinu. Hún hefur gefið í skyn
að hún vilji fara með samband-
ið á næsta stig. Við höfum
þó áhyggjur af því að hún
sé að leita að ástinni á
röngum stöðum. En
hún er fullorðin kona
og getur tekið eigin
ákvarðanir.“
Músíkalskt par
ÓLÍKLEGT PAR Billy
Corgan, forsprakki Smas-
hing Pumpkins, og Jessica
Simpson.
Fjöldi heimsþekktra tónlistarmanna kom fram á hinu
árlega Jingle Bell Ball á 02 Arena í London um helgina.
Tónleikarnir marka upphaf jólahátíðarinnar hjá mörgum
Lundúnabúanum og rennur hluti af ágóða af miðasölu í að
aðstoða börn sem minna mega sín í borginni. Meðal þeirra
sem komu fram voru Lady Gaga, The Sugababes, La Roux,
Ne-Yo, Shakira og Janet Jackson.
Miley Cyrus söng Party in the USA á 02
Arena við góðar undirtektir.
Ne-Yo kom fram á Jingle bell ball
í London um helgina.
Ungstirnið Pixie Lott söng við góðar
undirtektir tónleikagesta.
Þær Amelle og Heidi úr Sugababes komu fram á 02 Arena með nýjum meðlim
sveitarinnar, Jade Ewen.
Tvíburasysturnar í The Veronicas komu
fram á Jingle bell ball.
Shakira
klæddist
stuttum
kjól og
háum
stígvél-
um.
Eleanor
Jackson
úr La Roux
kom fram á
tónleikun-
um, en hún
hefur vakið
athygli fyrir
sérstæðan
stíl.
Stjörnurnar í
jólastuði í London
www.lapulsa.is