Fréttablaðið - 10.12.2009, Blaðsíða 98
78 10. desember 2009 FIMMTUDAGUR
ÍÞRÓTTIR Það hefur vakið eftirtekt
að Valur hefur leikið í auglýsinga-
lausum búningum í N1-deild karla
og kvenna í handbolta nú í haust.
Aðalstyrktaraðili félagsins undan-
farin ár, Frjálsi fjárfestingabank-
inn, var tekinn til slita í júní síð-
astliðnum.
Stefán Karlsson, framkvæmda-
stjóri Vals, sagði við Fréttablaðið
í gær að Valur hefði á sínum tíma
gert samning við Frjálsa fjárfest-
ingarbankann sem gilti til 2011.
„Við höfum því gert kröfu til
slitastjórnar bankans og á meðan
það ferli er í gangi höfum við ekki
viljað setja aðra auglýsingu á bún-
ingana,“ segir Stefán. „En við
erum vissulega að skoða þessi mál
á hverjum degi og hvaða lausnir
standa mögulega til boða.“
Stefán segir að Valsmenn séu í
stöðugum samskiptum við slita-
stjórn bankans og hugsanlega
nýja styrktaraðila til að finna
lausn á málinu. „Enda er þetta
mikið hagsmunamál fyrir okkur
að finna lausn á þessu máli því
styrktaraðilar spila stórt hlutverk
fyrir íslensk íþróttafélög. Lands-
lagið er þó allt annað síðan hrunið
varð og styrktarsamningar eins og
þessi hafa breyst mjög mikið. Við
djöflumst þó áfram eins og önnur
íþróttafélög.“
- esá
Valsmenn spila í auglýsingalausum búningum eftir bankahrunið:
Með kröfu í bú styrktaraðilans
ENGIN AUGLÝSING Rebekka Skúladóttir
í leik með Val í N1-deild kvenna í haust.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Iceland Express-d. kvenna
Snæfell - Haukar 63-77 (30-45)
Stig Snæfells: Gunnhildur Gunnarsdóttir 19,
Björg Guðrún Einarsdóttir 10, Hrafnhildur Sif
Sævarsdóttir 9, Helga Hjördís Björgvinsdóttir
6, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 5, Sara Sædal
Andrésdóttir 4, Rósa Indriðadóttir 4, Hildur Björg
Kjartansdóttir 3, Ellen Alfa Högnadóttir 3.
Stig Hauka: Heather Ezell 32, Guðrún Ósk
Ámundardóttir 14, Ragna Margrét Brynjarsdóttir
12, Helena Brynja Hólm 8, Kristín Fjóla Reynis-
dóttir 6, Auður Íris Ólafsdóttir 3, Margrét Rósa
Hálfdánardótir 2.
Meistaradeild Evrópu
E-RIÐILL
Lyon - Debrecen 4-0
1-0 Bafetimbi Gomis (25.), 2-0 Michel Bastos
(45.), 3-0 M. Pjanic (59.), 4-0 A. Cissokho (77.)
Liverpool - Fiorentina 1-2
1-0 Yossi Benayoun (43.), 1-1 Martin Jörgensen
(63.), 1-2 Alberto Gilardino (92.)
STAÐAN
Fiorentina 6 5 0 1 14-7 15
Lyon 6 4 1 1 12-3 13
Liverpool 6 2 1 3 5-7 7
Debrecen 6 0 0 6 5-19 0
F-RIÐILL
Dynamo Kiev - Barcelona 1-2
1-0 Artem Milevski (2.), 1-1 Xavi (33.), 1-2 Lionel
Messi (86.)
Inter - Rubin Kazan 2-0
1-0 Samuel Eto’o (30.), 2-0 Mario Balotelli (63.).
STAÐAN
Barcelona 6 3 2 1 7-3 11
Inter 6 2 3 1 7-6 9
Rubin Kazan 6 1 3 2 4-7 6
Dynamo Kiev 6 1 2 3 7-9 5
G-RIÐILL
Sevilla - Rangers 1-0
1-0 Frederic Kanoute, víti (8.).
Stuttgart - Unirea Urziceni 3-1
1-0 Ciprian Marica (5.), 2-0 Cristian Träsch (8.),
3-0 Pavel Pogrebnyak (11.), 3-1 A. Semedo (46.).
STAÐAN
Sevilla 6 4 1 1 11-4 13
Stuttgart 6 2 3 1 9-7 9
Unirea 6 2 2 2 8-8 8
Rangers 6 0 2 4 4-13 2
H-RIÐILL
Standard Liege - AZ Alkmaar 1-1
0-1 Jermain Lens (42.), 1-1 Sinan Boltat (90.).
Olympiakos - Arsenal 1-0
1-0 Leonardo (47.).
STAÐAN
Arsenal 6 4 1 1 12-5 13
Olympiakos 6 3 1 2 4-5 10
Standard 6 1 2 3 7-9 5
AZ Alkmaar 6 0 4 2 4-7 4
Enska B-deildin
Coventry - Newcastle 0-2
Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Coventry
og var tekinn af velli á 85. mínútu.
Barnsley - Scunthorpe 1-1
Emil Hallfreðsson var á bekknum hjá Barnsley.
Sænska úrvalsdeildin
Solna - Norrköping 88-92
Helgi Már Magnússon skoraði tíu stig og tók
fjögur fráköst fyrir topplið Solna.
Norska úrvalsdeildin
Fyllingen - Haugaland 32-25
Andri Stefan skoraði fjögur mörk fyrir Fyllingen.
Ólafur Haukur Gíslason varði tíu skot í marki H.
ÚRSLIT
Fyrirtæki á Höfuðborgar svæðinu
og Akureyri.
Bjóðum upp á örugga og hraða sendingar þjónustu
fyrir jólin. Pakkar, bögglar og nafnamerkt blöð.
Nánari upplýsingar veiti r Pósthúsið
í síma 585-8300 eða
á posthusid.is
HANDBOLTI Noregur og Rúmen-
ía hafa bæði byrjað vel á HM í
kvennahandbolta sem fram fer
þessa dagana í Kína og nú er ljóst
að lið þeirra Þóris Hergeirsson-
ar og Florentinu Stanciu, mar-
kvarðar Stjörnunnar, mætast í
dag í úrslitaleik um sigurinn í C-
riðlinum.
Þórir þjálfar lið Noregs sem
vann sex marka sigur á Ungverja-
landi, 25-19, á sama tíma og Rúm-
enía, með Florentinu í góðum gír
í markinu, burstaði Túnis með
sautján mörkum, 39-22. Liðin hafa
bæði unnið fyrstu fjóra leiki sína
en Rúmenar eru ofar á aðeins
betri markatölu.
Útlitið var ekkert of bjart hjá
norska liðinu um miðjan síðari
hálfleik þegar Ungverjar skor-
uðu tvö mörk í röð og komust 17-
15 yfir. Stelpurnar hans Þóris
fóru þá í gang og tryggðu
sér flottan sigur með því
að skora fjögur næstu mörk
og vinna 17 síðustu mínút-
ur leiksins 10-2. Linn Krist-
in Riegelhuth skoraði mest
fyrir norska liðið, 6
mörk, en besti leik-
maður liðsins var
markvörðurinn Kat-
rine Lunde Harald-
sen sem varði 18
skot (49 prósent).
Florentina Stanc-
iu varði 11 af 21
skoti sem hún fékk
á sig á móti Túnis en hún
var í byrjunarliði Rúmeníu
og spilaði fyrri hálfleikinn
sem rúmenska liðið vann 23-
10. Paula Ungureanu, sem er
vanalega aðalmarkvörð-
ur liðsins, varði 9 af
21 skoti sem kom á
hana í síðari hálf-
leiknum.
Noregur og
Rúmenía eru
tvö af sex liðum
sem hafa unnið
fyrstu fjóra leiki
sína í keppninni en
hin eru Danmörk
(A-riðill), Rúss-
land (B-riðill) og
loks lið Spánar
og Suður-Kóreu
sem eru saman í
D-riðli. - óój
Lið Þóris Hergeirssonar og Florentinu í C-riðli á HM í kvennahandbolta í Kína:
Keppa um sigurinn í riðlinum
45 PRÓSENT Florentina
Stanciu er búin að verja 31
af 69 skotum sem hafa
komið á hana á HM. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Valur staðfesti á heima-
síðu sinni í gær að þær Katrín
Jónsdóttir fyrirliði og Kristín
Ýr Bjarnadóttir hefðu framlengt
samninga sína við Val fram á
næsta ár. Katrín er einnig fyrir-
liði íslenska landsliðsins.
Báðar voru í lykilhlutverki
hjá Val á síðasta tímabili er liðið
varð bæði Íslands- og bikarmeist-
ari. Kristín Ýr skoraði 23 mörk
í átján leikjum í sumar og varð
markahæst í Pepsi-deild kvenna
ásamt Rakel Hönnudóttur, Þór/
KA. Katrín skoraði alls átta mörk
í átján deildarleikjum í sumar.
- esá
Gleðitíðindi fyrir Val:
Katrín og Krist-
ín framlengja
FÓTBOLTI Evrópumeistarar Barce-
lona tryggðu sér í gær efsta sæti
síns riðils með 2-1 sigri á Dynamo
Kiev í Úkraínu en síðustu leikirnir
í riðlakeppni Meistaradeildar Evr-
ópu fóru fram í gær.
Auk þess tryggðu Inter, Stutt-
gart og Olympiakos sér sæti í sex-
tán liða úrslitum keppninnar.
Barcelona stillti upp sínu sterk-
asta liði í gær enda hafði Pep Guar-
diola gefið það út að hann ætlaði
liðinu ekkert annað en sigur og þar
með efsta sætið í riðlinum.
En Evrópumeistararnir lentu í
miklum hremmingum strax í upp-
hafi leiks. Artem Milievski skoraði
þá fyrir heimamenn í Kænugarði
með marki beint úr aukaspyrnu.
Markið skrifast þó á Victor Valdes,
markvörð Barcelona, sem missti
boltann undir sig og í markið.
Lionel Messi komst svo í gegn-
um vörn heimamanna stuttu síðar
en nýtti færið illa og lét verja frá
sér.
Eftir þetta róuðu Börsungar
leikinn og tóku öll völd á vell-
inum. Svo kom löng sókn á 33.
mínútu sem lauk með því að
Eric Abidal sendi boltann fyrir
markið þar sem Xavi var mætt-
ur og skoraði af öryggi af
stuttu færi.
En þó svo að Barce-
lona hafi stýrt leiknum
af mikilli færni var Ger-
ard Pique stálheppinn
að fá ekki rautt spjald
þegar hann stöðvaði
sókn heimamanna með
því að handleika knött-
inn. Þetta gerðist undir
lok hálfleiksins og hefðu
Kænugarðsmenn kom-
ist yfir þá hefði það
getað breytt miklu um
gang leiksins. Pique
slapp með áminningu.
Síðari hálfleikur var
að mestu leyti tíðinda-
laus þar til á 86. mínútu. Barce-
lona fékk þá aukaspyrnu og gerði
töframaðurinn Lionel Messi sér
lítið fyrir og skoraði með glæsi-
legu skoti, í slána og inn. Jafn-
tefli hefði reyndar dugað Barce-
lona til sigurs í riðlinum þar sem
Inter vann sinn leik. Úrslitin þýða
hins vegar að Rubin Kazan kemst
áfram í Evrópudeildina á kostnað
Dynamo Kiev.
Balotelli og Eto’o fóru á kostum
Það var einnig mikið undir í
hinum leiknum í F-riðli. Inter tók
á móti rússnesku meisturunum í
Rubin Kazan en stjóri Inter, Jose
Mourinho, þótti á hálum ís fyrir
leikinn. Þó svo að Inter sé á toppi
ítölsku úrvalsdeildarinnar tapaði
liðið fyrir Juventus um síðustu
helgi og hafa ítalskir fjölmiðlar
aukinheldur haldið því fram að
hann yrði látinn fjúka hefði Inter
mistekist að komast áfram í Meist-
aradeildinni.
Mourinho gat þó leyft
sér að anda léttar á
30. mínútu leiksins
er Samuel Eto’o kom
Inter yfir með föstu
skoti úr vítateig eftir að
Mario Balotelli lagði bolt-
ann út á hann.
Balotelli var svo sjálfur
á ferðinni í síðari hálfleik er hann
skoraði með þrumuskoti beint úr
aukaspyrnu af löngu færi. Þar með
innsiglaði hann góðan sigur Inter
og bjargaði starfi Mourinho, um
stundarsakir að minnsta kosti.
Besta byrjunin frá upphafi
Í Þýskalandi mættust Stuttgart
og rúmenska liðið Unirea Urziceni
í hreinum úrslitaleik um hvort liðið
myndi fylgja Sevilla í sextán liða
úrslitin. Rúmenunum dugði meira
að segja jafntefli en snemma var
ljóst að Þjóðverjarnir ætluðu að
láta mikið af sér kveða.
Þeir þýsku skoruðu þrjú mörk
á fyrstu ellefu mínútum leiksins
og er það met í Meistaradeild-
inni - ekkert lið hefur náð þriggja
marka forystu svo snemma í leik í
Meistaradeildinni. Unirea náði að
minnka muninn í upphafi síðari
hálfleiks en nær komst liðið ekki.
Þess má geta að Markus Babbel
var á dögunum rekinn sem stjóri
Stuttgart og Christian Gross,
fyrrum stjóri Tottenham, ráðinn
í hans stað. Það var greinilegt að
leikmenn tóku vel í þá breytingu
og er liðið komið áfram í næstu
umferð.
Þýðingarlaust hjá enskum
Ensku liðin Liverpool og Arsen-
al léku þýðingarlausa leiki í gær.
Liverpool var fallið úr leik og tap-
aði, 2-1, fyrir Fiorentina á heima-
velli. Alberto Gilardino skoraði
sigurmark Ítalanna í uppbótar-
tíma. Arsenal var þegar búið að
tryggja sér sigurinn í sínum riðli
og stillti Arsene Wenger yngsta
byrjunarliði nokkurs liðs í Meist-
aradeildinni frá upphafi er liðið
mætti Olympiakos á útivelli og
tapaði, 1-0.
Dregið verður í sextán liða úrslit
á föstudaginn í næstu viku.
eirikur@frettabladid.is
Barcelona og Inter stóðust prófið
Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu lauk í gær. Evrópumeistarar Barcelona tryggðu sér sigur í jöfnum F-
riðli þar sem Inter varð í öðru sæti eftir góðan sigur á heimavelli. Liverpool kvaddi keppnina með tapi.
MAGNAÐUR XAVI
Fagnar hér fyrra marki Barce-
lona gegn Dynamo Kiev í gær.
NORDIC PHOTOS/AFP
MARKAHETJUR Samuel Eto‘o og Mario Balotelli skoruðu mörk Inter í gær.
NORDIC PHOTOS/AFP