Fréttablaðið - 10.12.2009, Side 6

Fréttablaðið - 10.12.2009, Side 6
6 10. desember 2009 FIMMTUDAGUR Glösin sem gera góð vín betri www.fastus.is 580 3900 Síðumúla 16 Rauðvínsglas 55 cl. 1.295 Hvítvínsglas 40 cl. 1.195 Kampavínsglas 20 cl. 1.095 Ekta Egils Malt og Appelsín blandað að hætti íslenskra heimila DÓMSMÁL Tveir fyrrverandi starfs- menn Kaupþings hafa verið dæmd- ir í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir alvarlega markaðs- misnotkun. Hinir dæmdu eru Daníel Þórð- arson, fyrrverandi sjóðsstjóri pen- ingamarkaðssjóðs hjá bankanum, og Stefnir Ingi Agnarsson, fyrr- verandi skuldabréfamiðlari. Mennirnir voru í Héraðsdómi Reykjavíkur fundnir sekir um að hafa í sameiningu lagt fram óeðli- lega há tilboð í skuldabréf Existu sex sinnum á mánaðartímabili í ársbyrjun í fyrra. Tilboðin voru öll lögð fram í dagslok og þótti sann- að að með þessu hafi mennirnir reynt að hafa áhrif á verð bréf- anna í Existu, til að styrkja stöðu peningamarkaðssjóða Kaupþings. Í þeim voru um 65 milljarðar, þar af fimm milljarðar af bréfum í Existu. Mennirnir neituðu sök, báru meðal annars við vanþekkingu á lögunum og að þeir hefðu verið að leiðrétta óeðlilega lágt gengi bréf- anna í Existu. Til grundvallar nið- urstöðunni liggja hins vegar hljóð- rituð samtöl og tölvupóstar milli mannanna. Segir í dómnum að brotin hafi verið ítrekuð og alvarleg og þótt mennirnir hafi ekki haft persónu- legra hagsmuna að gæta af brot- unum hafi þeir verið fagmenn, og að háttsemin sýni styrkan og ein- beittan brotavilja. - sh Tveir menn fá átta mánaða fangelsisdóm fyrir að hífa upp verð skuldabréfa: Fyrrum Kaupþingsmenn í fangelsi DANÍEL ÞÓRÐARSON Fjölskipuðum héraðsdómi þykir Daníel og Stefnir ekki eiga sér miklar málsbætur. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI GJALDEYRISMÁL Seðlabanki hefur sent Fjármálaeftirlitinu (FME) tilkynningu um mál 22 lögaðila af þeim 110, sem bankinn hefur tekið til athugunar vegna meintra brota á lögum og reglum um gjaldeyr- ismál. Alls hefur Seðlabankinn tekið mál 110 lögaðila og 134 einstakl- inga til athugunar vegna gruns um brot á lögum um gjaldeyris- mál. Viðskiptin nema samtals 57,5 milljörðum króna, þar af um 53 milljörðum hjá lögaðilum. Með- alfjárhæð viðskipta lögaðila er því um 520 milljónir króna en hjá einstaklingum er meðalfjárhæð- in um 34 milljónir króna. Skoðun á málum 100 lögaðila og einstakl- inga til viðbótar er í undirbún- ingi. Hvorki FME né Seðlabankinn vilja veita upplýsingar um fjár- hæðir, meinta brotamenn eða málsatvik í einstökum málum. Upplýsingafulltrúi FME segir í tölvuskeyti til Fréttablaðsins að niðurstöður úr málunum 22 verði birtar „í fyllingu tímans“. Þeir sem kærðir eru komi úr mis- munandi starfsgreinum. Það gæti spillt rannsókn að veita upplýsing- ar. Ríkir rannsóknarhagsmunir séu í húfi. Um leið og gjaldeyrishöftin voru sett eftir bankahrunið voru viðurlög við brotum hert. Seðla- bankinn er eftirlits- aðili og er skylt að tilkynna Fjár- málaeftirlitinu vakni grunur um gjaldeyrisbrot. Brot geta varð- að stjórnvaldssektum eða allt að tveggja ára fangelsi. Heimilt er að gera beinan og óbeinan hagnað upptækan að fenginni dómsniðurstöðu. Stjórnvaldssektirnar geta numið allt að 75 milljónum króna á lögað- ila og en 20 milljónum á einstakl- inga. Sektirnar verða aðfararhæf- ar, það er innheimta má þær með fjárnámi og nauðungarsölu án sér- stakrar dómsmeðferðar. Við rann- sókn er FME heimilt að krefjast kyrrsetningar á eignum bæði ein- staklinga og lögaðila. Ef brot eru talin varða bæði stjórnvaldssektum og refsingu er FME heimilt að meta hvort ein- göngu er beitt sektum eða hvort mál er kært til lögreglu og fær þar meðferð að hætti opinberra sakamála. Þó er skylt að kæra til lögreglu ef brot er meiri- háttar. Skilgreining lag- anna á meiriháttar brotum er að það lúti „að verulegum fjár- hæðum“ eða sé framið „með sérstaklega víta- verðum hætti eða við aðstæður sem auka mjög á saknæmi brots- ins“. Þórólfur Matthíasson hagfræði- prófessor áætlaði í Fréttablaðinu í gær út frá gengi krónunnar á af landsmarkaði að hagnaður af þessum viðskiptum gæti mest numið um helmingi viðskiptanna, en líklega mun lægri fjárhæð í flestum tilvikum. peturg@frettabladid.is Tæp tíu prósent af málunum til FME Fjármálaeftirlitið segir að upplýsingar um gjaldeyrissvikamál verði birtar „í fyllingu tímans“ en geti nú teflt rannsókn í tvísýnu. Seðlabankinn skoðar 110 mál lögaðila og 134 mál einstaklinga. 22 mál af 224 hafa verið send til FME. SEÐLABANKINN Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor áætlaði í Fréttablað- inu í gær að miðað við aflandsgengi krónunnar gæti hagnaður af gjaldeyr- issvikunum numið allt að helmingi viðskipta en oftast mun lægri upphæð. Meðalviðskipti lögaðila nema um 500 milljónum en hámarksstjórnvaldssektir eru 75 milljónir, auk þess sem gera má beinan og óbeinan hagnað upptækan með dómi. AKUREYRI Bæjaryfirvöld á Akureyri gera ráð fyrir hallalausum rekstri samstæðunnar þrátt fyrir tekjusamdrátt og útgjaldaaukningu, samkvæmt fjárhagsáætlun bæjarins fyrir næsta ár, sem lögð hefur verið fram í bæjarstjórn. „Við vorum með halla á rekstrinum í ár, en sett- um okkur það markmið að ná rekstrinum í núllið árið 2010,“ segir Hermann Jón Tómasson, bæjar- stjóri á Akureyri. Hann segir að ekki hafi verið farið út í verulegar breytingar til að ná rekstrin- um í jafnvægi, en allra smærri leiða leitað til að draga saman útgjöld. Útsvarið verður áfram í leyfilegu hámarki, 13,28 prósentum, og gert er ráð fyrir að gjald- skrár bæjarins hækki í takti við verðlagshækkan- ir almennt. Útgjöld bæjarins verða áfram skorin niður, en ekki er gert ráð fyrir uppsögnum starfsmanna bæjarins, þótt skoðað verði vandlega hvort ráða þurfi í störf sem losni, að því er fram kemur í til- kynningu frá Akureyrarbæ. Lán verða greidd niður um 2,3 milljarða króna á næsta ári, en sambærileg upphæð tekin að láni. Hermann segir að með þessu verði skuldir bæjar- ins óbreyttar. Fjárhagsáætlunin verður tekin til annarrar umræðu 22. desember, og reiknar Hermann með því að hún verði afgreidd á fundi bæjarstjórnar. - bj Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar gerir ráð fyrir hallalausum rekstri á næsta ári: Tókst að ná rekstrinum á núllið KYNNING Fjárhagsáætlun bæjarins var kynnt á blaðamanna- fundi þar sem viðstaddir voru oddvitar allra flokka í bæjar- stjórn. MYND/RAGNAR HÓLM GRIKKLAND George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, segir að ríkisstjórnin ætli að grípa til allra ráða til að skera niður halla á fjárlögum hins opinbera. Halli á fjárlögum ríkisins nemur 12,7 prósentum af landsfram- leiðslu, tvöfalt meira en áætlað var. Ummælum forsætisráðherrans var sjónvarpað á landsvísu í kjöl- far lækkunar alþjóðlega matsfyrir- tækisins Fitch Ratings á langtíma- skuldbindingum gríska ríkisins. Matið fór úr A- í BBB+ með nei- kvæðum horfum og er ekkert land innan evrusvæðisins með lægra lánshæfismat, að sögn netútgáfu bandaríska tímaritsins Forbes. - jab Gríska stjórnin tekur sig á: Versta lánshæfi á evrusvæðinu KJÖRKASSINN Styrkir þú góðgerðarsamtök fyrir jólin? Já 65,7% Nei 34,3% SPURNING DAGSINS Í DAG: Sækir þú jólatónleika? Segðu þína skoðun á vísir.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.