Fréttablaðið - 19.12.2009, Side 2
2 19. desember 2009 LAUGARDAGUR
MENNTAMÁL Yfirstjórn Háskólans á
Bifröst rannsakar nú meintan rit-
stuld lögfræðings sem útskrifaðist
frá skólanum árið 2008. Maðurinn
er grunaður um að hafa stolið loka-
ritgerð í lögfræði við háskólann.
„Það hefur komið upp mál sem
hefur aldrei gerst hér áður og við
erum að skoða það,“ segir Ágúst
Einarsson, rektor Háskólans á Bif-
röst. Málið kom upp í sumar og
stendur rannsókn háskólans enn
yfir. Ágúst telur líklegt að niður-
stöður fáist bráðlega, en vill ekki
tímasetja þær nánar.
„Það er grunur um ritstuld sem
þarf að skoða mjög vandlega, og
það er það sem við erum að gera,“
segir Ágúst. „Þetta tekur bara
sinn tíma, það er farið mjög vand-
lega yfir þetta og gætt að öllum
formreglum.“
Ágúst vill ekki segja til um hverj-
ar afleiðingarnar gætu orðið komi í
ljós að um ritstuld sé að ræða. „Ég
get ekki gefið mér neitt á þessu stigi
málsins. Þetta hefur aldrei komið
upp hjá okkur aftur, en við tökum
þetta föstum tökum og lítum þetta
alvarlegum augum,“ segir Ágúst.
Spurður hvort ekki sé alvarlegt
mál ef maður starfi sem lögfræð-
ingur á meðan mál hans séu í rann-
sókn segir Ágúst: „Við lítum málið
alvarlegum augum, ég get ekki
orðað það neitt öðruvísi. Við tökum
líka á því þannig.“
Ágúst bendir á að hliðstæð mál
hafi komið upp í öðrum skólum.
Mál af þessu tagi séu farin að verða
meira vandamál í háskólum hérlend-
is og erlendis með vaxandi netnotk-
un. Það breyti þó engu um alvarleika
málsins. brjann@frettabladid.is
9.900 kr.
FULLT HÚS JÓLAGJAFA
Anna, eru dvergstjörnur minni
en jólastjörnur?
„Fyrst að jólastjarnan birtist skyndi-
lega á næturhimninum við fæðingu
Jesú þá hefur hún verið sprengi-
stjarna. Þær verða til úr þyngri
stjörnum en þeim dvergstjörnum
sem ég er að fást við.“
Anna S. Árnadóttir stjarneðlisfræðingur
er komin heim til Íslands að halda jól
eftir að hafa varið doktorsritgerð sína um
dvergstjörnur í Svíþjóð.
Meintur ritstuldur á
Bifröst í rannsókn
Nemandi sem útskrifaðist frá Háskólanum á Bifröst í fyrra er grunaður um rit-
stuld við lokaritgerð. Rannsókn hefur staðið frá því í sumar en lýkur væntanlega
bráðlega segir rektor. Málið er litið alvarlegum augum og er tekið föstum tökum.
Viðbrögð við ritstuldi nem-
enda geta verið mismun-
andi eftir því hvort um er
að ræða einkaháskóla eða
opinberan háskóla, segir
Björg Thorarensen, forseti
lagadeildar Háskóla Íslands.
Í lögum um opinbera
háskóla og í lögum um
Háskóla Íslands gilda skýrar
reglur um hvernig taka ber
á ritstuldi nemenda, segir
Björg. Í einkaskólum gildi
siðareglur hvers skóla.
Björg man eftir einu tilviki á
undanförnum áratugum þar sem
sambærilegt mál kom upp í Háskóla
Íslands, fyrir níu árum. Þá var loka-
ritgerð laganema úrskurðuð ógild af
deildarfundi lagadeildar.
Vilhjálmur fékk að skila
nýrri ritgerð og starfar í
dag sem héraðsdóms-
lögmaður.
Björg telur líklegt að sá
úrskurður skapi ákveðið
fordæmi komi slík mál
upp aftur í skólanum.
„Ritstuldur er gróft
brot á siðareglum allra
háskóla og eitt versta brot
sem hægt er að fremja,“
segir Björg. Ritstuldur á
lokaverkefni sé þó ekki refsiverður,
nema sá sem á höfundarétt á upp-
runalega textanum kæri málið sem
brot á höfundaréttarlögum.
BJÖRG
THORARENSEN
ALVARLEGT Ritstuldarmál eru að verða sífelt algengari í íslenskum og erlendum
háskólum með aukinni netnotkun, segir Ágúst Einarsson, rektor við Háskólann á
Bifröst. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VERSTA BROTIÐ Á SIÐAREGLUM HÁSKÓLA
SLYS Tveir menn létust og einn
slasaðist alvarlega í umferðar-
slysi norðan við Arnarnesbrú á
Hafnarfjarðarvegi um klukkan
tíu í gærmorgun.
Slysið varð með þeim hætti að
ökumaður jepplings á leið í suð-
urátt missti stjórn á bíl sínum
með þeim afleiðingum að bíllinn
fór yfir grasbalann milli aksturs-
stefna, tókst á loft og lenti ofan
á leigubíl á leið í suður. Bílstjór-
ar beggja bílanna létust og far-
þegi leigubílsins slasaðist alvar-
lega. Klippa þurfti alla mennina
úr bílunum.
Hinir látnu eru fæddir árin
1950 og 1947. Ekki er unnt að
greina frá nöfnum þeirra að svo
stöddu. Sá slasaði er fæddur árið
1975. Hann hlaut höfuðáverka og
var honum í gærkvöld haldið sof-
andi á gjörgæsludeild.
Nokkur hálka var á veginum
þegar slysið varð en þó er ekki
ljóst hvort rekja megi slysið til
hennar.
Krufning á eftir að fara fram
sem hugsanlega gæti leitt í ljós
hvort ökumaður jepplingsins
missti stjórn á honum af öðrum
ástæðum, til dæmis veikindum.
Loka þurfti Hafnarfjarðarvegi
í báðar áttir í vel á þriðju klukku-
stund vegna slyssins.
- sh
Tveir menn um sextugt létust og maður á fertugsaldri slasaðist alvarlega í hörðum tveggja bíla árekstri:
Tveir létust í bílslysi á Hafnarfjarðarvegi
AF SLYSSTAÐ Bílarnir eru báðir gjörónýtir eftir slysið. Slysarannsóknarmenn voru á
vettvangi í dágóða stund í gær, meðal annars til að reyna að grafast fyrir um orsakir
slyssins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Lentu á ljósastaur
Kona og þrjú börn voru flutt á slysa-
deild í gær eftir að bíll þeirra lenti á
ljósastaur við JL-húsið í Vesturbænum.
Konan missti stjórn á bílnum í hálku.
Ekkert þeirra slasaðist alvarlega.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ALÞINGI Frumvarp um sameiningu níu skattum-
dæma og ríkisskattstjóra í eitt embætti varð að
lögum í gær. Tekur nýtt fyrirkomulag gildi um ára-
mót. Ríkisskattstjóri fer með öll skattamál í landinu
og starfrækir eina skattstofu í hverjum landsfjórð-
ungi.
Stjórnarandstaðan lagðist gegn breytingunni.
Í vikunni urðu sextán frumvörp að lögum. Fjalla
þau meðal annars um almannatryggingar, atvinnu-
leysistryggingar, skaðabætur, lyf og innflutning
svínasæðis.
Alls hafa átján mál orðið að lögum á haustþingi.
Miklar umræður urðu um frumvarp um umhverf-
is- og auðlindaskatta í þinginu í gær. Stjórnarand-
stæðingar töldu málið óhæfu og vildu vísa því frá en
stjórnarliðar lögðu áherslu á nauðsyn þess að afla
ríkinu tekna með nýju sköttunum.
Þingfundur verður í dag auk þess sem fundað
verður í fjölda nefnda.
Icesave-mál verða til umræðu í utanríkismála-
nefnd og viðskiptanefnd en fjárlög og málefni þrota-
bús Landsbankans eru á dagskrá fjárlaganefndar.
Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefnd-
ar, kvaðst í samtali við Fréttablaðið reikna með að
ljúka umfjöllun um fjárlagafrumvarpið í dag og
gæti það því komið til þriðju umræðu á mánudag.
- bþs
Sextán frumvörp hafa orðið að lögum á síðustu dögum:
Landið verður eitt skattumdæmi
FRÁ ALÞINGI Átján mál hafa orðið að lögum á haustþingi, þar
af sextán á allra síðustu dögum. Þingfundur verður í dag, á
laugardegi, auk þess sem fundað verður í mörgum nefndum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
JAPAN Bankastjórn japanska
seðlabankans ákvað í gær að
halda stýrivöxtum óbreyttum í
0,1 prósenti. Vaxtastig í landinu
hefur haldist óbreytt í eitt ár.
Bankastjórn japanska seðla-
bankans sagði í tilkynningu
eftir vaxtaákvörðun í gærmorg-
un að íslenskum tíma áherslu
lagða á að að koma í veg fyrir að
verðhjöðnun geri vart við sig í
efnahagslífinu. Bankinn hefur
gripið til ýmissa ráða í viðleitni
sinni gegn henni, svo sem dælt
tugmilljörðum jena inn í efna-
hagslífið.
Breska ríkisútvarpið, BBC,
hefur eftir Adrian Foster, sér-
fræðingi hjá Rabobank í Hong
Kong, að bankastjórnin hafi
ekki lagt fram nein plön í áætl-
un sinni gegn váboðanum. Bank-
inn og fjármálaráðherra lands-
ins séu sammála um hvert skuli
stefna, sem sé jákvætt. - jab
Óbreyttir stýrivextir í Japan:
Vilja forðast
verðhjöðnun
FRÁ JAPAN Japanski seðlabankinn vill
gera allt til að komast hjá verðhjöðnun.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐSKIPTI Tólf þúsund kröfum hefur
verið lýst í bú Kaupþings og er gert
ráð fyrir að lánardrottnar bank-
ans verði í hópi helstu kröfuhafa
auk þeirra fjárfestingarsjóða sem
umsvifamestir hafa verið í kaupum
á kröfum gömlu bankanna.
Gera má ráð fyrir að kröfum í bú
Kaupþings muni fjölga verulega en
í tilviki Glitnis og Landsbankans
skilaði meirihluti þeirra sér á síð-
ustu dögunum áður en kröfulýsing-
arfrestur rann út.
Frestur til að lýsa kröfum í bú
Kaupþings rennur út á miðnætti
30. desember næstkomandi, eftir
fimm virka daga. Kröfuskrá verð-
ur birt kröfuhöfum 22. janúar á
næsta ári.
Til samanburðar var 12.053 kröf-
um lýst í bú gamla Landsbankans
og 8.685 í bú Glitnis. - jab
Tólf þúsund lýsa kröfum:
Flestar kröfur
hjá Kaupþingi
STJÓRNMÁL Þingmenn Hreyfingar-
innar eru fylgjandi auðlindagjöld-
um en gagnrýna að það sem er
kallað auðlinda-
skattur hjá fjár-
málaráðherra sé
í raun skattur á
neytendur.
Með sömu
aðferð á inn-
heimtu auð-
lindaskatts á
fiskveiðiauð-
lindinni „þá
yrðu fiskflök og fiskbollur í borð-
um kjörbúða skattlagðar en ekki
aflaheimildirnar,“ segir í tilkynn-
ingu frá Hreyfingunni.
Ýmsar leiðir hafi staðið til boða
þegar ákveðið hafi verið að skatt-
leggja notkun almennings. Hreyf-
ingin varar við því að þetta verði
að fordæmi fyrir allri löggjöf um
auðlindagjöld. - kóþ
Hreyfingin um auðlindaskatt:
Skattleggja flök
en ekki kvóta
BIRGITTA
JÓNSDÓTTIR
SPURNING DAGSINS