Fréttablaðið - 19.12.2009, Qupperneq 4
4 19. desember 2009 LAUGARDAGUR
FRÁBÆRLEGA
UNNIN ÆVISAGA
saga Runólfs Sveinssonar
sandgræðslustjóra og
algerðar Halldórsdóttur
tir Friðrik G. Olgeirsson.f
læsileg bók um merka G
frumkvöðla.
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
10°
-4°
-10°
-2°
-1°
-8°
-9°
-2°
-2°
22°
2°
11°
1°
18°
-3°
0°
15°
-4°
Á MORGUN
Víðast 8-15 m/s en
hvassara SA-lands.
MÁNUDAGUR
Hvöss norðanátt SA-til,
annars mun hægari.
-2
-2
-2
-3
-3
-4
-4
-4
-2
-1
-8
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
-1
-3
-4 -4
-3
-4
-3
-3
-3
-3
STÍF NORÐANÁTT
UM HELGINA
Það verður stíf
norðanátt ríkjandi
á landinu um helg-
ina og það kólnar
hressilega um allt
land. Í dag verður
ofankoma og sums
staðar stormur
um austanvert
landið og því lítið
ferðaveður en það
dregur heldur úr
vindi til morguns.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
NEYTENDUR Tæplega tveggja metra
normannsþinur er ódýrastur í Blóma-
vali en ekki í Byko eins og misritað-
ist í grein um verð á jólatrjám í
fimmtudagsblaði Fréttablaðsins.
Hann kostar 6.990 í Blómavali
eins og fram kemur í meðfylgj-
andi töflu sem einnig birtist
í fimmtudagsblaðinu. Það er
tæplega 30 prósentum ódýr-
ara en á dýrasta staðnum
af þeim sem kannaðir
voru, Garðheimum.
Byko eru næstódýr-
astir í þessum stærðar-
flokki, selja tæplega
tveggja metra tré á
7.850 krónur.
GENGIÐ 18.12.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
237,2829
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,17 127,77
206,20 207,20
182,92 183,94
24,577 24,721
21,776 21,904
17,503 17,605
1,4090 1,4172
199,84 201,04
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Tæplega tveggja metra normannsþinur er ódýrastur í Blómavali en ekki Byko.
Stærri jólatrén ódýrust í Blómavali
VERÐ Á TRJÁM
Hringt var á nokkra staði og fengið verð á normannsþin. Verð á
jólatrjám ræðst af stærð þeirra og hlaupa stærðarflokkar á 25 til
50 sentímetrum á sölustöðum. Hér er birt verð á trjám í milli-
stærðum. Þar sem eru tvö verð miðast verðflokkar verslunar-
innar við 25 sentimetra. Hringt var á sölustaðina og því ekki lagt
mat á gæði trjánna. Könnunin er hugsuð til viðmiðunar enda
tré seld víðar á landinu.
Norðmannsþinur
Verslun 100-150 cm 151-200 cm
Blómaval 5.990 kr. 6.990 kr.
Flugbjörgunarsveitin 5.900 kr. 7.900 kr.
Garðheimar 4.850 / 5.850 kr. 7.450 / 8.950 kr.
Byko 5.350 kr. 6.550 / 7.850 kr.
Jólatréssalan Landakoti 4.990 / 5.990 kr. 7.290 / 8.290 kr.
SKIPULAGSMÁL „Hver vill bera
ábyrgð á óhappi og manntjóni?
Það getur hæglega orðið hér eins
og erlendis,“ segir Magnús Sædal
byggingarfulltrúi, sem í gær lét
fella stórt samkomutjald í garð-
inum við Hressingarskálann í
Austurstræti.
Magnús hafði boðað komu sína í
Hressingarskálann klukkan tíu og
mætti þá. Daginn áður höfðu eig-
endur staðarins vísað frá verktaka
sem sendur var til að fella tjaldið.
Tjaldið var sett upp í október og
segjast eigendurnir hafa hugs-
að það sem aukasal fyrir ýmsar
sjálfstæðar uppákomur. Slökkvi-
lið sagði hættu kunna af skapast
í tjaldinu og byggingarfulltrúinn
benti á að nauðsynleg leyfi skorti
en eigendurnir neituðu að verða við
tilmælum um að fella tjaldið.
Vinnuflokki byggingarfulltrúa
var synjað um aðgang að veitinga-
staðnum til að komast í garðinn.
„Við hleyptum reyndar bygging-
arfulltrúanum sjálfum inn en svo
vildi hann ekki fara út aftur fyrr
en lögreglan kom og talaði hann
til,“ segir Einar Sturla Möinichen,
annar tveggja eigenda Hressingar-
skálans.
Ákvörðun byggingarfulltrúa um
niðurrif tjaldsins hafði verið kærð
til úrskurðarnefndar skipulags- og
byggingarmála. Samkvæmt bráða-
birgðaúrskurði, sem barst frá
nefndinni eftir að byggingarfulltrúi
mætti á staðinn, voru aðgerðir hans
ekki stöðvaðar þar sem mögulegir
almannahagsmunir vægju þyngra
en hagsmunir eigendanna. Einar
segir að þá hafi eigendurnir ekki
sett sig upp á móti því að tjaldið
yrði fellt. Þeir hafi þó ekki viljað
auðvelda verkið með því að hleypa
vinnuflokkunum í gegnum staðinn.
„Þeir tóku þá stiga og klifruðu yfir
hlið í portinu,“ segir hann.
Tjaldið umdeilda var síðan tekið
niður. Lögreglumennirnir fylgd-
ust með að sögn Einars Sturlu
enda hleypti hann þeim í gegnum
veitingastaðinn.
Magnús Sædal segir ekki hafa
verið sótt um leyfi fyrir tjaldinu
og að fyrir því sé ekki nauðsynleg-
ur byggingarreitur. „Þá þyrfti að
kynna þetta fyrir nágrönnum og
ég er ansi hræddur um að það yrði
þungur róður enda veldur þetta
hávaða í umhverfinu,“ segir bygg-
ingarfulltrúinn.
Einar Sturla segir málinu ekki
lokið. „Við erum að teikna upp
tjaldið og ætlum að sækja um
bráðabirgðaleyfi.“
gar@frettabladid.is
Samkomutjaldið féll
að lögreglu ásjáandi
Byggingarfulltrúanum í Reykjavík var vísað út úr Hressingarskálanum er hann
mætti með flokk manna og lögregluna að bakhjarli til að fella samkomutjald í
bakgarði staðarins. Notaður var stigi til að komast inn í garðinn og tjaldið féll.
ÞÓF Í PORTINU Einar Sturla Möinichen, eigandi Hressingarskálans, og Magnús
Sædal byggingarfulltrúi rökræða tjaldmálið undir vökulu augu laganna varðar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
ÚTILOKAÐIR TJALDIÐ FELLUR
VIÐSKIPTI Íbúðalánasjóður er
hættur við útgáfu á nýjum flokki
íbúðabréfa á þessu ári og fyrri
hluta næsta árs. Gert var ráð
fyrir því að flokkurinn yrði til
lengri tíma en nú er.
Íbúðalánasjóður bendir á það í
tilkynningu að hann hafi aðeins
varið fjórtán milljörðum króna
til kaupa á lánasöfnum banka og
sparisjóða í stað hundrað millj-
arða, auk þess sem áhrif van-
skila, frystingar lána og annarra
greiðsluerfiðleikaúrræða séu enn
sem komið er ekki mikil.
Gert er ráð fyrir að ákvörðunin
verði endurskoðuð á seinni hluta
næsta árs. - jab
ÍLS hættir við íbúðabréfaflokk:
Skoðar málið
aftur að ári
HÚS Í BYGGINGU Íbúðalánasjóður ætl-
aði að gefa út nýjan flokk íbúðabréfa til
lengri tíma en nú er. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hringt til vanskilafólks
Kjósarhreppur notar ekki innheimtu-
fyrirtæki til að ganga eftir greiðslu
fasteignagjalda en treystir þess í stað
á greiðsluvilja gjaldenda, að því er
segir á heimasíðu hreppsins. Þessa
dagana eru starfsmenn hreppsins
einfaldlega að hringja í þá sem eru
enn í vanskilum.
KJÓSARHREPPUR
Opin kerfi styrkja börnin
Opin kerfi ehf. gefa í ár tölvu og skjá
til Heimils fyrir fötluð börn að Móa-
vaði, í stað þess að senda út jólakort.
LÍKNARMÁL
SAMFÉLAGSMÁL Sorpa bs. varði tíu
milljónum til góðgerðamála í gær.
„Hjálpum fólki til sjálfshjálpar“
var yfirskrift styrkjanna, en með
þeim var leitast við að styðja efna-
minni börn og ungmenni.
Félag lesblindra var styrkt til
útgáfu og Jerico til að vinna gegn
einelti í skólum. Hugarafl til geð-
fræðslu, ásamt Framtíðarsjóði
Hjálparstarfs kirkjunnar fengu
einnig styrki.
Þá fékk Rauða kross-húsið,
Hringsjá-lesgreining og Starfs-
menntasjóður bandalags kvenna
styrki. Heilsuhýsi á hjólum, Eyja-
slóð og Konukot nutu einnig góðs
af. - kóþ
Gaf alls átján milljónir á árinu:
Sorpa styrkir
ýmis samtök
GÓÐI HIRÐIRINN Bágstödd börn voru
meðal þeirra sem fengu styrk.
DÓMSMÁL Karlmaður á sjötugs-
aldri hefur verið dæmdur í Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra til
að greiða 200 þúsund króna sekt
vegna vörslu barnakláms. Skal
sektin greiðast innan fjögurra
vikna frá uppsögu dómsins að
telja, en maðurinn sæta fangelsi í
fjórtán daga ella.
Maðurinn játaði fyrir dómi að
hafa haft á heimili sínu frá því í
júní til október á þessu ári fjór-
tán hreyfimyndir sem sýna börn
á kynferðislegan og klámfenginn
hátt. Hann var með efni sem tók
samtals um eina og hálfa klukku-
stund í spilun. Maðurinn hafði
ekki sætt refsingu fyrr en nú. - jss
Karlmaður á sjötugsaldri:
Dæmdur fyrir
barnaklám
SAMFÉLAG Steypustöðin ehf. hefur
fært Fjölskylduhjálp Íslands pen-
ingagjöf í stað þess að senda við-
skiptavinum jólakort eða glaðning.
Í tilkynningu frá stöðinni segir
að á miðvikudaginn síðasta hafi
fimm hundruð fjölskyldur, sem
eigi um sárt að binda, komið til
Fjölskylduhjálparinnar og þegið
matargjafir.
Með því að vekja athygli á fram-
takinu vonast Steypustöðin til þess
að önnur fyrirtæki feti í fótspor
hennar á erfiðum tímum og leggi
sitt að mörkum til þessa málefnis.
- kóþ
Sendir ekki jólakort í ár:
Steypustöðin
gefur fátækum