Fréttablaðið - 19.12.2009, Qupperneq 12
12 19. desember 2009 LAUGARDAGUR
MÁLAR FÖTURNAR RAUÐAR Þessi
maður í Allahabad á Indlandi fékk það
verkefni að mála þessar fötur rauðar
sem slökkviliðsmenn nota til að bera
sand á eld. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSTÓLAR Gæsluvarðhald var í
gær framlengt til 15. janúar í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur yfir mann-
inum sem skaut með haglabyssu
á útidyrahurð íbúðarhúss í Selja-
hverfi.
Krafa lögreglustjórans á höfuð-
borgarsvæðinu um framlengingu
byggir á almannahagsmunum.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins er litið á atvikið sem til-
raun til manndráps.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um var bankað upp á í húsi í Selja-
hverfi aðfaranótt sunnudagsins
15. nóvember. Þegar íbúinn kom
til dyra stóð maðurinn vopnaður
haglabyssu fyrir utan og sló til
hans með byssuskaftinu. Íbúinn
náði að loka útidyrahurðinni en
þá hleypti maðurinn fimm hagla-
byssuskotum af. Þau höfnuðu í
hurðinni auk þess sem gluggi í for-
stofu brotnaði.
Með byssumanninum var kær-
asta hans, sem er fyrrverandi
starfsmaður íbúans. Hann hafði
skömmu áður sagt henni upp störf-
um í bakaríi þar sem hann er yfir-
maður.
Úrskurðurinn um framlengingu
gæsluvarðhaldsins var kærður til
Hæstaréttar í gær. - jss
Byssumaðurinn í Seljahverfi áfram inni til 15. janúar:
Talin tilraun til manndráps
GÆSLUVARÐHALD Maðurinn var leiddur
fyrir dómara í gær.
DÝRAHALD „Ég hefði viljað sjá
koma fram kröfu frá ákæruvald-
inu þess efnis að viðkomandi bóndi
yrði sviptur leyfi til dýrahalds.
Og ég hefði viljað sjá dómstólinn
staðfesta hana.“
Þetta segir Halldór Runólfs-
son yfirdýralæknir um niður-
stöðu máls, sem rekið var á hend-
ur bóndanum á Stórhóli í Álftafirði
vegna brota á lögum um dýravernd
og búfjárhald. Auk vanfóðrunar á
sauðfé taldi ákæruvaldið umgengn-
inni á jörðinni mjög ábótavant.
Á þriðja tug lambshræja, sjö
kindahræ, tvö hundshræ í kerru
og hluti af beinagrind af hrossi
var það sem blasti við augum
dýralæknis, sem var í eftirlitsferð
á býlinu.
Málinu lauk með dómssátt, þar
sem bóndanum var gert að greiða
áttatíu þúsund krónur í ríkissjóð. Á
annað þúsund fjár eru á bænum.
„Það er skiljanlegt að menn fyll-
ist reiði yfir því hve lág sektin er,“
segir yfirdýralæknir. „En ég held
að líta verði á þá hlið að dómur
hefur fallið. Auðvitað er stóra
málið það að koma í veg fyrir að
það ástand skapist aftur sem lýst
er í ákæru.“
Halldór segir tvo dýralækna,
héraðsdýralækni og fulltrúa yfir-
dýralæknis, hafa farið að Stórhóli
í síðustu viku. Því sé búið að gera
nýja úttekt á stöðu mála, sem sé
verið að vinna úr þessa dagana.
Málinu sé því engan vegið lokið.
Spurður til hvaða ráðstafana sé
unnt að grípa til að stemma stigu
við að ástandið endurtaki sig
segir yfirdýralæknir þær vera
fyrst og fremst þær að koma í
veg fyrir að sá mikli fjöldi fjár,
sem sé á jörðinni, verði óbreytt-
ur og umfram það sem ábúandi
ráði við.
„Ákveðnar reglur gilda um
hversu mikið rými og jötupláss
skuli vera fyrir hvern grip.
Vandamálið í þessu tilviki er það
að fólkið ræður ekki við allan
þennan fjölda. Það þarf að fækka
þarna mjög verulega. Í reglugerð-
um og lögum eru úrræði þar að
lútandi. En það skín ákveðið dóm-
greindarleysi í gegn, að fólk held-
ur að það sé eitthvað betra að búa
með svona margt fé, og meira en
það kemst yfir.“
Halldór segir endurskoðunar-
vinnu standa yfir á lögum um
dýravernd og búfjárhald. Vonir
standi til að með breytingum á
þeim gangi hraðar að ná árangri
í þeim fáu málum sem upp komi.
Hvað varðar manneldissjónar-
mið, þegar vanhirt fé á í hlut,
segir Halldór afar öflugt eftir-
litskerfi í sláturhúsum. Ekkert
fari þar í gegn sem teljist ekki
hæft til neyslu. jss@frettabladid.is
AÐKOMAN Á þriðja tug lambshræja, sjö kindahræ, tvö hundshræ í kerru og hluti af
beinagrind af hrossi var það sem blasti við augum dýralæknis, sem var í eftirlitsferð
á býlinu.
Vildi sviptingu
dýrahalds
Halldór Runólfsson yfirdýralæknir kveðst hafa
viljað sjá Héraðsdóm Austurlands svipta bóndann á
Stórhóli í Álftafirði leyfi til dýrahalds.
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í fangelsi í fjóra mánuði,
skilorðsbundið fyrir að misþyrma
þáverandi unnustu sinni í þrígang.
Í apríl síðastliðnum réðst mað-
urinn á konuna á dansgólfi í Sjall-
anum og kýldi hana í magann.
Skömmu síðar sló hann hana
með bol á heimili þeirra á Akur-
eyri, síðan með flötum lófa í
andlitið og tók hana kverkataki.
Konan slapp frá honum en hann
henti henni aftur inn í íbúðina og
misþyrmdi henni hálfu verr en
fyrr. Loks réðst maðurinn á kon-
una á Kaffi Akureyri og gekk í
skrokk á henni, meðal annars
þegar hún lá á gólfi salernisins. - jss
Ofbeldismaður dæmdur:
Misþyrmdi
unnustu sinni
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Auð-
vitað
er stóra málið
það að koma í
veg fyrir að það
ástand skapist
aftur sem lýst
er í ákæru.
HALLDÓR RUNÓLFSSON
YFIRDÝRALÆKNIR