Fréttablaðið - 19.12.2009, Page 44

Fréttablaðið - 19.12.2009, Page 44
44 19. desember 2009 LAUGARDAGUR A llt þar til efnahagshrun- ið dundi yfir síðastliðið haust hafði þróunarsam- vinna verið aukin ár frá ári. Eftir að gengi krón- unnar hrundi og himin- háar skuldbindingar ríkisins kölluðu á niðurskurð í ríkisfjármálum voru verk- efni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands skorin við trog. Allt frá því Afríkuríkið Namibía fékk sjálfstæði og losnaði úr umsjá Suður- Afríku árið 1990 hafa Íslendingar komið að þróunaraðstoð á ýmsum svið- um í landinu. Síðastliðið sumar var til- kynnt að samstarfssamingur ríkjanna verði ekki endurnýjaður þegar hann rennur út í árslok 2010. Tuttugu ára þróunarsamvinnu Íslands og Namibíu verður þá sjálfhætt. Starfsmenn Þróunarsamvinnustofn- unar í Namibíu höfðu í nokkurn tíma fyrir hrun undirbúið stórt verkefni á sviði leikskóla. Áformað var að þjálfa allt að eitt þúsund leikskólakennara á meðal fátækra hópa í landinum. „Við hefðum þurft tvo mánuði í viðbót til að koma verkefninu af stað, en þegar kreppan skall á í október í fyrra stöðv- uðust öll verkefni sem voru í pípunum, þar á meðal þetta verkefni,“ segir Vil- hjálmur Wiium, umdæmisstjóri Þróun- arsamvinnustofnunar Íslands í Namib- íu. „Við skulum bara orða það þannig að ég hafi gert margt skemmtilegra en að segja við konur sem bjuggust við að fá þjálfun, námsefni og námsgögn að því miður væri þetta búið.“ Verkefni Íslendinga í Namibíu snér- ust fyrsta einn og hálfa áratuginn fyrst og fremst um sjávarútveg. Íslending- ar fóru til Namibíu til að stunda haf- rannsóknir, koma á veiðikerfi og kenna heimamönnum sjósókn. Þegar sjávarút- vegurinn í landinu þótti kominn á beinu brautina var ákveðið að beina kröftun- um frekar að félagslegum verkefnum meðal fátækra. Stærsta félagslega verkefnið hefur snúist um menntun heyrnarlausra, með stuðningi við skóla og þjálfun kennara og túlka. Einnig hefur verið stutt við félagsmiðstöðvar og borað eftir vatni á svæðum Himba-fólksins í norðarlega í Namibíu. Frá hruninu síðasta haust hefur öll áherslan verið á að ljúka þeim verkefnum sem farin voru í gang í Nam- ibíu fyrir árslok 2010 segir Vilhjálmur. Þrátt fyrir kostnaðarauka sem fylgir óhjákvæmilega útgjöldum í erlendri mynt eftir hrun krónunnar þótti ekki boðlegt að svíkja gefin loforð. Vilhjálmur felur þó ekki að honum þyki afar leitt að leikskólaverkefnið, sem hafði verið í undirbúningi lengi, verði ekki að veruleika. „Þrátt fyrir að verkefnið hafi verið slegið af náðist að þjálfa einn hóp af leikskólakennur- um, og prenta eitthvað af námsefni. En auðvitað var þetta langt frá því sem við höfðum ætlað okkur.“ Þrátt fyrir að endalok þróunarsam- vinnunnar séu ekki með þeim hætti sem áformað var segist Vilhjálmur sannfærður um að starfið í landinu hafi verið þess virði. „Við höfum aukið lífsgæðin hjá mjög mörgum. Þetta var að mínu mati mjög vel þess virði, og mér finnst persónu- lega leiðinlegt að við séum að draga okkur út úr Namibíu,“ segir hann. „Af hverju erum við að aðstoða fátækar þjóðir? Er það af því við viljum fá eitthvað út úr því, eða er það vegna þess að okkur finnst að af því við erum betur sett þá beri okkur skylda til að veita aðstoð þar sem við getum?“ spyr Vilhjálmur. „Það er ekkert eitt svar við þessu, en ég get í það minnsta sagt að við höfum skilið eftir okkur spor í Namibíu sem munu ekki hverfa þó við förum þaðan. Hvort peningunum sem farið hafa í þetta hefur verið vel varið verða aðrir að svara.“ Í lok næsta árs má áætla að íslensk stjórnvöld hafi varið samtals 25,6 millj- ónum bandaríkjadala í þróunarsam- vinnu í Namibíu. Það jafngildir um það bil 2,1 milljörðum króna á gengi hvers árs. Namibía er eitt af betur settu lönd- um Afríku, með háar þjóðartekjur á mann miðað við álfuna, og talsverðar náttúruauðlindir á borð við demanta og úran. Því er eðlilegt að velta því fyrir sér hvort réttara hefði verið að beina aðstoð Íslands annað. Vilhjálmur segir það alltaf matsat- riði, en bendir á að þó Namibía sé ríkt land á afrískan mælikvarða sé mikið af mjög fátæku fólki þar. „Í Namibíu eru mörg héruð þar sem fátækt er mikil. Eigum við að láta fólk í þeim héruðum líða fyrir misskiptingu Skildu eftir spor sem ekki hverfa Undirbúningur fyrir nýtt verkefni Þróunarsamvinnustofnunar fyrir leikskólabörn í Namibíu var á síðustu metrunum þegar ákveðið var að hætta við verkefnið í kjölfar efnahagshrunsins hér á landi síðastliðið haust. Brjánn Jónasson fer yfir það sem áunn- ist hefur með starfinu í landinu með Vilhjálmi Wiium, sem er sannfærður um að tveggja áratuga vinna sitji eftir í samfélaginu. BÖRN AÐ LEIK Fyrirhuguð uppbygging leikskóla og þjálfun leikskólakennara fyrir Himba-börnin í Norður-Namibíu er eitt af því sem varð að skera niður í kjölfar íslenska fjármálahrunsins. FRÉTTABLAÐIÐ/BRJÁNN VILHJÁLMUR WIIUM Namibía er trúlega ekki fyrsta landið sem íslenskum ferða- mönnum dettur í hug ef sú hugmynd kviknar að heimsækja Afr- íku. Stefán Jón Hafstein, umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofn- unar í Malaví, hefur lýst Namibíu sem „Afríku fyrir byrjendur“, og segja má að þar hafi hann hitt naglann á höfuðið. Namibía dregur nafn sitt af Namib-eyðimörkinni, sem þekur stóran hluta landsins, þar með talið strandlengjuna. Kalahari- eyðimörkin teygir einnig anga sína inn í landið. Nyrst í Namibíu, nærri landamærunum við Angóla, má svo finna regnskóga með jafnvel enn fjölbreyttara dýralífi en annars staðar í landinu. Landið hefur það fram yfir mörg önnur lönd álfunnar að stjórnarfar þar er og hefur verið stöðugt frá því það fékk sjálfstæði. Enska er þjóðartungumálið, og þó það sé sjaldnast fyrsta tungumál landsmanna tala það margir. Þá státar Namibía af mjög góðu vegakerfi, sem þjónar jafnt heimamönnum sem ferðamönnum. Ekki veitir af, enda landið eitt það strjálbýlasta í heimi. Náttúrufegurð, dýralíf og mannlífið er trúlega það sem dregur flesta ferðamenn til Namibíu. Þjóðverjar eru manna duglegastir að ferðast til landsins, enda var Namibía nýlenda Þjóðverja þar til Suður-Afríka réðist þar inn í fyrri heimstyrjöldinni, og tengslin enn sterk. Namibía var fyrsta land heims til að setja ákvæði um nátt- úruvernd inn í stjórnarskrá, sem tók gildi þegar landið losnaði undan yfirstjórn Suður-Afríku árið 1990. Gríðarstórir þjóðgarðar með fjölbreyttum gróðri og dýralífi einkenna enda landið. AFRÍKA FYRIR BYRJENDUR „Namibíumenn eru ekki sjófarendur í eðli sínu, það er heilmikið eyðimerkurbelti með- fram ströndinni, svo þeir eru frekar bændur en fiskimenn,“ segir Vilmundur Víðir Sigurðs- son, kennari við Tækniskólann og fyrrverandi skólastjóri Stýrimannaskólans í Reykjavík. Vilmundur bjó í rúmlega sex ár í Namibíu og kom að endurskipulagningu sjómanna- skólans í Walvis Bay frá miðju ári 2000. „Verkefnið var að koma af stað sjómanna- skóla fyrir stýrimenn og vélstjóra. Það voru búnir að vera Íslendingar í skólanum þegar ég kom þangað, en þeir voru aðallega í kennslu,“ segir Vilmundur. Mikil óvissa var um framtíð sjómannaskólans þegar Vilmundur var sendur út, en í kjölfarið tókst að breyta stefnu skólans, og snúa þróuninni til betri vegar. „Við lögðum meiri áherslu á að vinna með heimamönnum, og ráða þá sem kennara í skólanum,“ segir Vilmundur. Kennararnir hafi fengið góða þjálfun, og oft erlenda kennara með sér til aðstoðar. Hann telur tvímælalaust mikið sitja eftir í Namibíu eftir starf hans og annarra við skólann. Sambandið haldist þótt stuðningi Íslands við skólann sé lokið. Til dæmis sé kennari frá skólanum nú að afla sér þekkingar um meðferð á afla hér á landi, með það að markmiði að bjóða upp á námskeið þegar heim er komið. ÁHERSLA Á VINNU MEÐ HEIMAMÖNNUM VILMUNDUR VÍÐIR SIGURÐSSON ■ Höfuðborg: Windhoek ■ Flatarmál: 825.418 ferkílómetrar ■ Strandlengja: 1.572 kílómetrar ■ Landamæri: Að Angóla, Sambíu, Simbabve, Botsvana og Suður-Afríku ■ Mannfjöldi: 2.171 þúsund ■ Stjórnarfar: Þingræði ■ Þjóðhöfðingi: Forseti ■ Opinbert tungumál: Enska ■ Önnur tungumál: Afrikaans, herero, oshivambo og þýska ■ Gjaldmiðill: Namibískur dollari (suð- urafrísk rönd einnig notuð samhliða) ■ Helstu útflutningsvörur: Demantar, kopar, gull, sink, úran, búfé ■ Helstu trúarbrögð: Um 80 prósent eru kristin ■ Lífslíkur karla: 50,9 ár. ■ Lífslíkur kvenna: 52,2 ár ■ Læsi 15 ára og eldri: 85 prósent ■ Sjálfstæði: Frá Suður-Afríku 21.mars 1990 ■ Nýlendutíminn: Undir stjórn Þýska- lands frá 1884 til 1915 ■ Fyrstu samskipti við Evrópubúa: Við portúgalska landkönnuði árið 1486 ➜ NAMIBÍA – LANDIÐ Í HNOTSKURN DÝRALÍF Etosha er stærsti þjóðgarðurinn í Namibíu. Þar má finna flest þau dýr sem ferðamenn vilja sjá þegar farið er til Afríku, til dæmis fíla, ljón, blettatígra og antílópur af öllum stærðum og gerð- um. FRÉTTABLAÐIÐ/BRJÁNN Við höf- um aukið lífsgæðin hjá mjög mörgum. Þetta var að mínu mati mjög vel þess virði, og mér finnst persónulega leiðinlegt að við séum að draga okkur út úr Nam- ibíu. auðs í landinu? Eigum við ekki að hjálpa þeim af því stjórnmálamenn jafna ekki tekjudreyfinguna?“ Starfsmenn Þróunarsamvinnustofn- unar hafa lært margt á starfinu í Nam- ibíu, segir Vilhjálmur. Fyrstu verkefnin hafi, eftirá að hyggja, verið lítið und- irbúin og því oft erfitt að koma þeim í hendur heimamanna án þess að óttast að uppbyggingarstarf undanfarinna ára glatist. Vilhjálmur óttast að verðmæt reynsla af verkefnum sem þessu tapist komi langt tímabil þar sem Þróunarsam- vinnustofnun reyni einungis að ljúka verkefnum og taki ekki að sér ný verk- efni. Slík stefna muni á endanum leiða til þess að starfsmenn flytjist í önnur störf og reynslan tapist. 300 250 200 150 100 50 0 19 90 19 92 19 94 19 96 19 98 20 00 20 02 20 04 20 06 20 08 20 10 ÚTGJÖLD TIL ÞRÓUNAR- STARFS Í NAMIBÍU Tölur eru í milljónum króna. Útgjöldin eru umreiknuð úr bandaríkjadölum miðað við meðalgengi hvers árs. HEIMILD: ÞRÓUNARSAMVINNUSTOFNUNFramhald á síðu 44
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.