Fréttablaðið - 19.12.2009, Side 56

Fréttablaðið - 19.12.2009, Side 56
56 19. desember 2009 LAUGARDAGUR HRUNIÐ 2008 „Ris og hrun bankanna á Íslandi yfirgnæfir allt annað markvert í landinu á þessum áratug. Í framtíðinni verður ártalið 2008 jafn eftirminnilegt í Íslandssögunni og aðrar stikur sem krakkar hafa þurft að læra og margir muna: 930, 1262, 1918, 1944 og þar fram eftir götunum.“ „Á eftir að hafa áhrif á daglegt líf landsmanna næstu árin. Fer í sögubækurnar sem eitt mesta klúður Íslandssögunnar. Allir bankar landsins féllu og landið var á barmi gjaldþrots. Rúmu ári síðar erum við enn að vonast til að landið fari ekki fram af brúninni en það munu mörg ár líða þar til við munum skilja hvað gerðist og læra af mistökunum.“ „Stærsti atburðurinn í íslensku efnahagslífi síðastu áratugi. Hrun fjármálakerfis heillar þjóðar telst stórtíðindi á hvaða mælikvarða sem er.“ Ris og hrun bankanna yfirgnæfir allt 2000-2009: Menningarsigrar „Að loknum þessum áratug hinna brostnu peningavona standa eftir fjölmargir sigrar Íslendinga á menningar- sviðinu, innanlands sem utan.“ 2000-2009: Fjölgun fólks af erlendum uppruna Á örfáum árum hefur ásýnd Íslands breyst til muna með mikilli fjölgun fólks af erlendum uppruna sem hefur sest hér að. 2000: Lög um fæðingarorlof „Eitt stærsta skrefið sem stigið hefur verið hér á landi í átt til jafnréttis kynjanna.“ 2000: Stofnun Samfylkingarinnar og VG 2001: Verðbólgumarkmið sett „Sönnuðum að það eru til of lítil hag-/myntkerfi fyrir verðbólgumarkmið með frjálsum fjármagnsflutningum.“ 2001: Stofnun Vesturports „Leikhópurinn sem myndar Vesturport er eitt það ferskasta sem gerst hefur í leik- húsi í mörg ár.“ 2001: Fréttablaðið stofnað Þótt tvær tilraunir þyrfti til að koma blaðinu úr starthol- unum sýndi það sig fljótt að það var sprettharðara en keppinautarnir. Fríblað varð meira lesið en gamla veldið Mogginn og undir lok áratugarins var Morgunblaðið komið á kné. 2003: CCP-setur Eve online á markað „CCP setur sýndarheiminn EVE-Online á markað, en sex árum síðar eru EVE-áskrifendur orðnir álíka margir og Íslendingar, og CCP í fararbroddi í þróun og rekstri sýndarheima í veröldinni.“ 2004: FARICE-1 sæstrengurinn er tekinn í notkun. „Gjörbyltir nettengingu Íslands við umheim- inn.“ 2005: Unnur Birna verður Miss World. „Guði sé lof að við þurftum ekki að fara í gegnum heilan áratug án íslenskrar Miss World.“ 2006: Draumalandið eftir Andra Snæ kemur út. 2009: DANICE-sæstrengurinn er tekinn í notkun. „Færir Íslendingum enn áreiðanlegri og hraðvirkari nettengingu við umheim- inn.“ 2009: Þingkosningarnar „Mörkuðu margvísleg tímamót, meðal annars að vinstri flokkarnir fengu meirihluta í fyrsta skipti.“ 2009: Jóhanna Sigurðardóttir verður forsætisráðherra. Fleira merkilegt á árunum 2000 til 2009 BÚSÁHALDABYLTINGIN Kemst á blað sem einn merkilegasti atburð- urinn 2000 til 2009. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BROTTFÖR BANDARÍKJAHERS 2006 „Nánast frá stríðslokum hafði erlend herseta á Íslandi skipt þjóðinni í tvennt og klofið fjölskyldur og vinahópa. Svo hvarf hann einn daginn að eigin frumkvæði, næstum þegjandi og hljóðalaust. Og skildi eftir ráðvillta þjóð sem varð að finna sér nýtt deiluefni.“ „Sámur frændi fór og eftir urðu tómar byggingar með rangri rafmagnsspennu, verra atvinnuástand á Suðurnesjum og lofthelgigæsla í uppnámi. Meira en hálfrar aldar vera hersins á Miðnesheiði hafði fært þjóðinni tekjur og ákveðna stöðu á taflborði heimsveldanna, sem margir sjá eftir.“ STUÐNINGUR VIÐ INNRÁS BANDARÍKJAHERS Í ÍRAK 2003 „Straumhvörf urðu þegar ríkisstjórnin studdi innrás í Írak snemma árs 2003. Forráðamenn hennar höfðu sínar ástæður til þess að taka þessa ákvörðun. Í sögulegu ljósi skaut stuðn- ingurinn þó skökku við, til dæmis ef miðað er við þá ákvörðun stjórnvalda á sínum tíma að lýsa ekki yfir stríði á hendur öxul- veldunum þótt það þýddi að Ísland yrði ekki meðal stofnríkja Sameinuðu þjóðanna. Fróðlegt verður að sjá bandarísk skjöl um þessa ákvörðun þegar þar að kemur.“ UMSÓKN UM AÐILD AÐ EVRÓPUSAMBANDINU 2009 „Markaði tímamót að því leyti að meirihluti þings samþykkti að sækja um aðild og sennilega voru, eftir kosningarnar 2009, þeir þingmenn í meirihluta sem töldu aðild æskilega (þótt það gilti ekki um ýmsa stjórnarliða sem engu að síður greiddu málinu atkvæði).“ Bankahrunið er merkilegasti atburður síðustu tíu ára í sögu Íslands og ríkir um það einhugur meðal álits- gjafa Fréttablaðsins. Brotthvarf bandaríska hersins, framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun, synjun forseta á undir- ritun fjölmiðlalaga og einkavæðing bankanna fylgja í kjölfarið. Sigríð- ur Björg Tómasdóttir rýndi í svör við spurn- ingunni: Hver var markverðasti atburður- inn á Íslandi á árunum 2000 til 2009? FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VILH ELM FR ÉTTA B LA Ð IÐ /A N TO N 1 2 4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.