Fréttablaðið - 19.12.2009, Qupperneq 82
19. desember 2009 LAUGARDAGUR4
Verkefnasjóður sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytisins, deild um
sjávarrannsóknir á samkeppnissviði,
auglýsir eftir umsóknum um styrki
til rannsókna- og þróunarverkefna.
Sjóðurinn mun fyrst og fremst styrkja rannsóknir á
sjávarlífverum sem nú eru nytjaðar eða sem mögu-
legt væri að nytja. Áhersla verður lögð á verkefni
sem efl a rannsókna- og þróunarstarf á lífríki sjávar
umhverfi s Ísland og efl a til lengri tíma litið sjálf-
bæra nýtingu auðlinda hafsins og samkeppnishæfni
sjávarútvegs, grunnslóðarannsóknir, þorskrann-
sóknir og verkefni sem tengjast þróun aðferða við
nýtingu á lífverum sjávar, s.s. líftækni.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur
ákveðið að framlag til deildar sjóðsins um sjávar-
rannsóknir á samkeppnissviði verði hækkað um 25
m.kr. á árinu. Framlag til sjóðsins verður því 100
m.kr. á árinu 2009.
Við mat umsókna verður lögð áhersla á nýnæmi
verkefnisins m.t.t. nýrrar þekkingar og/eða aukinna
nýtingarmöguleika á lífríki sjávar. Veittir verða
styrkir til stærri verkefna að upphæð 6 m.kr. að
hámarki hvert og til smærri verkefna að hámarki 2
m.kr. hvert. Hver styrkur nemur að hámarki 50% af
áætluðum heildarkostnaði viðkomandi verkefnis.
Allir geta sótt um styrki; einstaklingar, fyrirtæki,
rannsókna- og háskólastofnanir. Í stærri verkefnum
er sérstaklega hvatt til samstarfs mismunandi aðila
með þátttöku vísindamanna víða af landinu.
Umsóknarfrestur er til 17. janúar 2010 og skulu
umsóknir sendar til sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík.
Umsóknirnar skulu einnig berast á rafrænu formi á
netfangið: hulda@slr.stjr.is.
Umsóknir sem berast eftir 17. janúar 2010 verða
ekki teknar gildar nema póststimpill sýni að
umsóknin hafi verið póstlögð ekki síðar en þann dag.
Þeir sem hafa fengið styrk úr sjóðnum við síðustu
úthlutun og hyggjast sækja um framhaldsstyrk
skulu skila skýrslu um stöðu verkefnisins, ella
koma viðkomandi umsóknir ekki til greina við
úthlutun.
Nánari upplýsingar um sjóðinn og leiðbeiningar
um frágang umsókna er að fi nna á heimasíðu
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins
www.sjavarutvegsraduneyti.is
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
Styrkir til sveitarfélaga vegna
aukinnar þjónustu við langveik börn
og börn með ADHD
Auglýst er eftir umsóknum frá sveitarfélögum um
styrki til verkefna sem ætlað er að efl a stuðnings-
og nærþjónustu við langveik börn og börn með
ofvirkni og athyglisbrest. Styrkir verða veittir á
grundvelli samstarfssamnings félags- og trygg-
ingamálaráðuneytis, mennta- og menningarmála-
ráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og Sambands
íslenskra sveitarfélaga. Sveitarfélög geta sótt um
styrki vegna verkefna á eigin vegum eða sem unnin
eru í samstarfi við einstaklinga eða félagasamtök.
Styrkhæf verkefni eru:
I. Verkefni sem fela í sér félagslega stuðnings-
þjónustu, svo sem liðveislu og skammtímavistun
til samræmis við það sem fötluð börn eiga kosta á
samkvæmt lögum um málefni fatlaðra.
II. Verkefni sem hafa það markmið að gera lang-
veikum börnum á leik- og grunnskólaaldri kleift
að fá sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og/eða talþjálfun í
skólum sínum þegar fagleg rök mæla með því.
III. Verkefni sem fela í sér faglega leiðsögn sérfræð-
inga fyrir langveik börn á leik- og grunnskólaaldri
sem ekki geta sótt skóla heilsu sinnar vegna.
IV. Verkefni sem fela í sér fræðslu og/eða
stuðning fyrir kennara og annað starfsfólk skóla vegna
nemenda með ADHD.
V. Verkefni sem miða að bættri þjónustu leik- og
grunnskóla við börn með ADHD.
VI. Önnur verkefni sem lögð er áhersla á í skýrsl-
um tveggja starfshópa frá febrúar og apríl 2008 um
þjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og
athyglisbrest.
Gert er ráð fyrir að þeim verkefnum sem hljóta styrk
að þessu sinni ljúki fyrir 1. júlí 2011.
Frestur sveitarfélaga til að sækja um styrki rennur
út 15. janúar 2010.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu félags- og
tryggingamálaráðuneytisins eða á heimasíðu þess:
http://www.felagsmalaraduneyti.is
Nánari upplýsingar veitir Björn Sigurbjörnsson,
sérfræðingur í félags- og tryggingamálaráðuneytinu.
Sími: 545 8100, netfang: bjorn.sigurbjornsson@fel.stjr.is
Verkefnisstjórn
Innritun fatlaðra nemenda
í framhaldsskóla 2010
Innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skóla-
vist á starfsbrautum framhaldsskóla, fer fram fyrr
en innritun almennt í framhaldsskóla. Þetta er gert
til þess að framhaldsskólar, nemendur og foreldrar
fái meira svigrúm til að undirbúa framhaldsskóla-
vistina. Innritað verður frá 18. janúar til 26. febrúar
2010. Tímamörk almennrar innritunar gilda þó fyrir
þær umsóknir sem berast seinna.
Upplýsingar um starfsbrautir er að fi nna á
heimasíðum framhaldsskóla og hjá forsvarsfólki
starfsbrauta. Einnig má fi nna upplýsingar í vefritinu
Nám að loknum grunnskóla sem aðgengilegt er á
vef mennta- og menningarmálaráðuneytis,
www.menntamalaraduneyti.is
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um á
eyðublöðum viðkomandi framhaldsskóla. Á
umsóknareyðublaðið skal einnig tilgreindur
annar skóli til vara.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti,
17. desember 2009.
menntamálaráðuneyti.is
Auglýsing um starfsleyfi stillögur
Dagana 19. desember 2009 til 18. janúar 2010 mun starfsleyfi stillögur
fyrir neðanskráða starfsemi, ásamt tilheyrandi starfsreglum, skv. 1.
málsgr. 9. gr. reglugerðar nr. 785/1999, með síðari breytingum, liggja
frammi á skrifstofu heilbrigðiseftirlits að Garðatogi 7, Garðabæ og á
skrifstofu viðkomandi bæjarfélags. Einnig er hægt að skoða gögnin á
heimasíðu heilbrigðiseftirlitsins, http://www.heilbrigdiseftirlit.is.
Hjá Hafnarfjarðarbæ, Þjónustuver að Strandgötu 6, Hafnarfi rði
Nafn Starfsemi Staðsetning
Bergplast ehf. Plastiðnaður Breiðhella 2, Hafnarfi rði
Partar ehf. Bílapartasala Kaplahraun 11, Hafnarfi rði
Rafpolering ehf. Meðferð og húðun málma Stapahraun 3, Hafnarfi rði
Hjá Kópavogsbæ, Þjónustuver að Fannborg 2, Kópavogi
Nafn Starfsemi Staðsetning
S. Helgason hf. Grjótnám og landmótun Lækjarbotnar, Kópavogi
Hundahreysti ehf Fóðurblanda Smiðjuvegur 4c, Kópavogi
Rétt til athugasemda hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvarsmenn og starfs-
menn tengdrar eða nálægrar starfsemi.
2. Íbúar þess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum
vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar.
Skrifl egar athugasemdir skal senda til heilbrigðisnefndar Hafnarf-
jarðar- og Kópavogssvæðis, pósthólf 329, 212 Garðabær. Frestur til að
gera athugasemdir er til 18. janúar 2010
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis
StyrkirTilkynningar
Auglýsingasími
– Mest lesið