Fréttablaðið - 19.12.2009, Síða 83

Fréttablaðið - 19.12.2009, Síða 83
LAUGARDAGUR 19. desember 2009 „Það er svona sameinuðuþjóða- stemning í þessu fyrir utan hvað það er upplagt í jólaösinni að detta einhvers staðar inn með krakka- greyin og leyfa þeim að kíkja á brúðusýningu. Þau þreytast svo fljótt á búðaröltinu,“ segir Berg- steinn Jónsson, verkefnisstjóri skóla-og ungmennastarfs UNICEF á Íslandi, sem stendur fyrir sex brúðuleiksýningum á morgun í samstarfi við UNIMA. Hann tekur fram að 500 krónur kosti inn á sýn- ingarnar fyrir hvert barn en for- eldrarnir fljóti með. Heitt kakó verði líka selt á vægu verði og boðið upp á piparkökur. „Ágóðinn rennur til verkefna um allan heim í þágu bágstaddra barna,“ lofar hann. Leikritin eru þrjú og hvert og eitt verður sýnt tvisvar yfir dag- inn. Þau eru Númi sem Brúðu- leikhús Helgu Steffensen sýnir í samvinnu við Slysavarnafélagið Landsbjörgu. Það er byggt á sögunni um strákinn Núma með höfuðin sjö eftir Sjón og verður sýnt klukk- an 10 og aftur klukkan 11. Jólaleikur heitir annað verk sem er flutt klukkan 13 og aftur klukk- an 14. Þar er Leikhópur- inn Tíu fingur með sérstaka uppfærslu á jólaguðspjallinu í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar en mikil áhersla er lögð á þátttöku barnanna í salnum. Súpan hennar Grýlu er sýningin sem rekur lestina. Helga Arnalds og Hallveig Thorlacius standa á bak við hana. Þar segir af því þegar minnsta tröll í heimi lendir í pottinum hennar Grýlu. Fyrri sýningin verður klukkan 16 og seinni klukkan 17. Bergsteinn segir þessa litlu fjöl- skylduhátíð vera á vegum UNICEF, sem er Barnahjálp Sameinuðu þjóð- anna, og UNIMA sem eru alþjóðleg samtök brúðuleik- húsfólks og hafa að hans sögn áður staðið fyrir viðburðum hér á landi þar sem sýningargestir eru leiddir inn í töfrandi heim brúðu- leikhússins. gun@frettabladid.is Eitthvað fyrir smáfólkið Fjölskylduhátíð verður í miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Laugavegi 42 á morgun. Hún felst í sex brúðu- leiksýningum yfir daginn sem eru ætlaðar börnum á leikskólaaldri og í fyrsta bekk grunnskóla. Jólaleikur fjallar um persónur jólaguð- spjallsins. Bergsteinn í versluninni sem UNICEF á Íslandi rekur á Laugavegi 42, sömu húsakynn- um og opin verða fjölskyldufólki á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Hulda Guðrún er tónmenntakenn- ari við Laugarnesskóla og stjórnar Barnakór Laugarness. Hún hefur gefið út barnadiskinn Sólargeisla en öll lögin á disknum eru eftir hana sjálfa, nema eitt sem er eftir ömmu hennar, Guðnýju Eyjólfs- dóttur. Lögin eru full af góðum boð- skap og sjálfsagt góð viðbót við það barnaefni sem til er. „Fyrir mér er hvert mannsbarn eins og sólargeisli, stundum bjart- ur, stundum daufur, brennir og vermir, sem sagt lífsnauðsynlegur,“ segir Hulda Guðrún, sem telur börnin það dýrmætasta í lífinu. Á disknum syngja börn úr Barnakór Laugarness, dóttir Huldu Guðrúnar, Hugrún Britta, og tvö systrabörn hennar. Hægt er að nálgast diskinn hjá Huldu Guðrúnu sjálfri, í Kirkjuhús- inu Laugavegi og 12 tónum Skóla- vörðustíg. Sólargeislar lýsa upp skammdegið HULDA GUÐRÚN GEIRSDÓTTIR TÓN- MENNTAKENNARI HEFUR GEFIÐ ÚT BARNADISKINN SÓLARGEISLA. Börn elska að syngja.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.