Fréttablaðið - 19.12.2009, Síða 132
96 19. desember 2009 LAUGARDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 19. desember 2009
➜ Tónleikar
15.45 Þórhildur Örvarsdóttir syngur
jólalög á Hljómalindarreitnum í Jólaþorp-
inu á Hjartatorgi.
21.00 Camerarctica heldur tónleika í
Kópavogskirkju. Á efnisskránni verður
tónlist eftir W.A. Mozart, þar á meðal
Eine kleine Nachtmusk.
23.00 Cliff Clavin, Foreign Monkeys og
Jeff Who verða á Batteríinu við Hafnar-
stræti. Húsið verður opnað kl. 23.
23.30 Hjálmar og Hjaltalín verða með
tónleika á NASA við Austurvöll.
➜ Kvikmyndir
16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir
kvikmynd leikstjórans Marks Rydel On
Golden Pond (1982). Sýningin fer fram
í Bæjarbíói við Strandgötu í Hafnarfirði.
Íslenskur texti. Nánari upplýsingar á
www.kvikmyndasafn.is.
➜ Dansleikir
Hljómsveitin Buff verður á Breiðinni á
Akranesi.
➜ Dagskrá
Þjóðfræðistofa stendur fyrir þjóðfræði-
þingi, útgáfuhófi og menningardagskrá í
Bragganum á Hólmavík. Nánari upplýs-
ingar á www.icef.is.
➜ Fyrirlestrar
13.00 Terry Gunnell þjóðfræðingur
flytur erindi um íslenska jólasiði í Þjóð-
minjasafninu við Suðurgötu. Fyrirlesturinn
fer fram á ensku. Allir velkomnir.
Sunnudagur 20. desember 2009
➜ Tónleikar
20.00 Tónleikar til styrktar Einstökum
börnum verða haldnir í Mózaik kirkju
við Skógarhlið 20. Meðal þeirra sem fram
koma eru Páll Óskar Hjálmtýsson, Berg-
lind Magnúsdóttir, Heiða Ólafsdóttir og
Ína Valgerður Pétursdóttir.
20.00 Gospelkór Háskólans í Reykja-
víkur verður með jólatónleika í Iðnó við
Vonarstræti.
21.00 Camerarctica heldur tónleika í
Garðakirkju á Álftanesi. Á efnisskránni
verður tónlist eftir W.A. Mozart, þar á
meðal Eine kleine Nachtmusk.
21.00 Andrea Gylfa og Eddi Lár koma
fram á tónleikum í Gallery - Bar 46 að
Hverfisgötu 46.
➜ Brúðuleikhús
14.00 Bernd Ogrodnik brúðugerðar-
maður sýnir verkið Pönnukakan hennar
Grýlu á Sögulofti Landnámssetursins við
Brákarbraut í Borgarnesi.
➜ Kvikmyndir
15.00 Ballettmyndin Hnotubrjóturinn
verður sýnd hjá MÍR við Hverfisgötu 105.
Tónlist eftir P. Tsjaíkovskíj og dansarar úr
ballettflokki Slóvakíu. Enginn aðgangs-
eyrir.
➜ Leikrit
15.00 og 18.00 Leikfélagið Peðið
verður með tvær sýningar á kabarettnum
Grandlendingasögu eftir Jón Benjamín
Einarsson. Sýningar fara fram á Grand
Rokk við Smiðjustíg. Nánari upplýsingar á
www.pedid.is.
➜ Upplestur
16.00 Huldar Breiðfjörð, Bergsveinn
Birgisson, Páll Valsson og Óskar Guð-
mundsson lesa úr verkum sínum í
Gljúfrasteini, húsi skáldsins í Mosfellsdal.
➜ Leiðsögn
14.00 Ólafur Ingi Jónsson verður með
leiðsögn um sýningu á verkum Svavars
Guðnasonar sem nú stendur yfir í Lista-
safni Íslands við Fríkirkjuveg.
➜ Messa
16.00 Hin árlega jólamessa „Festival of
Nine Lessons and Carols“ fer fram í Hall-
grímskirkju við Skólavörðuholt. Messan
verður flutt á ensku. Allir velkomnir. Nán-
ari upplýsingar á www.hallgrimskirkja.is.
Bókmenntir ★★★★
Svavar Guðnason
Kristín G. Guðnadóttir
Hún er stór í sniðum bókin um
Svavar Guðnason listmálara. Hún
fer best á borði, brotið 30x30 cm
og blaðsíðufjöldinn 356. Umbrotið
er hreinlegt, línur í lesmáli nokkuð
langar, aftanmálsgreinar og skrár
og allur frágangur fyrsta flokks.
Kristín skrifar stillilegan texta og
öfgalausan. Það er þannig umhverfi
sem verkin hans Svavars eru sett í
því bókin er ríkulega myndskreytt.
Þetta er fyrsti stóri litprentaði
mónógrafinn um hann og hefði
í raun átt að koma út á þremur
tungumálum: íslensku, dönsku og
ensku. Það er samhengið sem verk
eins og þetta verður að vera í – hið
stóra samhengi vestrænnar mynd-
listar, hann er jú okkar eini maður
sem nær alþjóðlegu máli þótt þekk-
ing og áhugi á verkum hans sé enn
bundinn við Danmörku og Niður-
lönd vegna hinnar veiku tenging-
ar við CoBrA, eins og rakið er í
bókinni. Aðrir sem komast nálægt
honum eru Erró með sín Frakk-
landstengsl, Sigurður Guðmunds-
son og loks Ólafur Elíasson.
Bókin er í raun fjórða verkið sem
samið er um Svavar og verk hans,
það fyrsta í röð Helhesten rétt eftir
stríð, þá bók Halldórs Laxness um
hann og síðast bók Thors um Svav-
ar frá 1991. Verk Kristínar er því
heildstæðasta yfirlitið sem nú má
fá um verk hans. Ekki er enn tekið
að vinna að verkaskrá hans með
skipulögðum hætti en vísast að það
sé best að gera á neti og ætti þá að
falla á hendur Listasafn Íslands.
Það er ekkert minna en ævintýri,
kraftaverk að piltur frá Hornafirði
skyldi ákveða það snemma upp úr
tvítugu að gerast myndlistarmað-
ur. Í landi þar sem markaður fyrir
myndlist var varla til og menntun á
því sviði takmörkuð. Og hann leitar
sér uppi einhverja kennslu, nóg til
að vilja sækja lengra, læra meira,
sest í Konunglegu dönsku akademí-
una og hættir. Byrjar upp á eigin
spýtur, auralaus og við hungur-
mörk. Hann finnur hilluna sína,
skapar sinn persónulega stíl og
trommar inn í hið alþjóðlega sam-
hengi, alveg sér á parti. Gat sem
best eftir stríðið setið sæll í útlönd-
um en kom hingað heim og stríddi
svo við það um áratugi að vera
alþjóðlegur listamaður – var sett-
ur inn í eina merkilegustu hreyf-
ingu myndlistarmanna heimsins
en passaði heldur ekki þar inn. Gaf
raunar ekki mikið fyrir það.
„Hér kemst allt upp, sem menn
vilja koma upp, jafnvel þó menn
hafi einga peninga, af því íslend-
íngar eru einhvern veginn í stuð-
inu, og komast ekki útúr því hvern-
ig sem reynt er til,“ segir Halldór
Laxness 1948. Svavar var alltaf í
stuðinu. Halldór kenndi litunum
milli hafs og jökuls um, og það er
engu logið að Svavar var litarins
maður. Verk Kristínar leiðir aftur
vel í ljós hvernig bygging hans í
verkum þróast á ferlinum og hvern-
ig hann sprengir upp festuna þegar
hún er komin til að vera í verka röð-
inni. Skapið heimtar nýtt.
Athyglisverður er sá lestur að í
raun megi lesa litsprengjur hans
sem málverk sprottin af náttúru,
átök lita og forma séu í raun túlk-
un á náttúru gnæfandi fjalla. Guð-
bergur Bergsson segir nýlega í riti
um Ásgerði Ester um hina óhlut-
bundnu myndlist: „Ég tók snemma
eftir að einkum hvössu formin í
henni leituðu gjarna inn í önnur
mýkri, en með þessu háttalagi,
fleyguninni, fengu þau ekki lit
formanna sem þau ruddust inn í,
kannski óvelkomin, heldur annan
og leituðu síðan galvösk út úr form-
inu, sem þoldi innrásina, og voru
þá aftur í sínum upprunalega lit.
Líklega mun ég hafa skynjað þess-
ar árásir formanna í líkingu við
óskhyggju um breytingu, svipaða
þeirri sem var á þessum tíma áber-
andi í samfélaginu: nýjar stéttir
brutust fram neðst úr samfélaginu,
hinn langkúgaði hluti þjóðarinn-
ar, og klufu næstum óhagganleg-
ar valdastéttirnar sem fyrir voru.
... Afstraktið og geómetrían voru
þannig félagslegs eðlis...“ Svavar
leit á sig sem félagslegan málara,
eins og raunar allur sá hópur sem
lifði fasismann, stríðið, kalda stríð
og loks velferðar- og velmegunar-
samfélag Vesturlanda. Myndlistin
var pólitík.
Hér skal helst fundið að því að
í verkið vantar gögn um viðtökur
erlendis víðar en í stöku blöðum:
vakti sýning Svavars á Biennial-
inum engin viðbrögð? Eins hefði
verið fróðlegt að sjá hann stillt-
an saman við helstu samferðar-
menn sína á erlendri grund, átti
hann enga samherja hvorki í lita-
notkun né formtilraunum og þá
hverja? En það er frekja að biðja
um meira en hér er gert. Ekki hef
ég átt kost á að bera prent á lit í
verkum hans saman við verkin
á veggjum Listasafns Íslands til
að meta hvernig hefur tekist til
um myndatökur og litvinnslu. Nú
er tími ljósmynda með tölvum og
þar er auðvelt að véla um lit. En
treysta verður því að myndir af
verkum litglaðasta myndlistar-
manns séu í prentun réttar. Bókin
er merkilegt verk, loksins loksins
fáum við aðgang að nákvæmu og
stilltu yfirliti um þennan mann þar
sem á tókust mikið skap og mildi,
gleði og harka eins og myndir hans
bera svo glöggt vitni um í formum
sínum og litaátökum.
Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða: Glæsilegt verk um okkar
helsta mann.
Hin sjálfsprottna tjáning
MYNDLIST Meistarinn Svavar Guðnason árið 1980. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Skóli fyrir þig?
Ertu strákur eða stelpa á aldrinum 16-25?
Langar þig að stunda skemmtilegt nám:
* í heimavistarskóla?
* í góðum félagsskap?
* í fögru umhverfi?
Vegna forfalla getum við bætt
við nemendum á komandi
önn sem hefst
9. janúar.
Uppl. www.hushall.is eða í síma 471 1761
Handverks- og hússtjórnarskólinn
Hallormsstað
6.
allt hitt dótið.
Sigríður Klingenberg
Ve m
Sm óla.
jólaspá...
w
w
w
.h
ir
zl
an
.i
s
Smiðsbúð 6 210 Garðabæ Sími 564 5040
monaco veggsamstæður
Auglýsingasími
– Mest lesið