Vikan - 26.10.1961, Blaðsíða 8
avi urflugvelli. * Bowling er mjög vinsæl tómstundaiðja á Keflavíkurflugvelli.
Leikurinn er fólginn í því að renna kúlum inn eftir gólfinu
og fella hvítu keilurnar, sem standa þar.
Við höfðum farið þess á leit við
yfirvöld á Keflavikurflugvelli, að
þau svöruðu nokkrum spurningum
nm völlinn og varnarliðið. Því var
vel tekið og var t þvi skyni ekið
með okkur til aðalbækistöðvanna,
sem eru sunnarlega á svæðinu. Það
eru raunar aðeins nokkrir bragg-
ar sambyggðir og hlaðið sniddu all-
hátt uppá veggina. Aðalinngangur-
inn i þennan belgidóm er gegnum
torfvegginn og minnir mjög á gam-
alt kotbýli. Þarna voru nokkrir
strákar, íslenzkir, og höfðu það fyr-
ir stafni að steypa stétf að bragg-
anum. Það voru elcki aðrir íslenzk-
ir menn að störfum úti við á vell-
inum þennan dag það við sæjum,
Fyrir nokkrum árum, meðan vallar-
vinnan stóð sem hæst, fóru miklar
sögur af vinnusvikum og það þótti
nánast skrýtið að vinna vel. Enginn
hafði samvizkubit af þvi að snuða
Kanann og það varð einskonar vís-
indagrein á vellinum, hvernig ætti
að komast sem allra léttast út úr
vinnu. í þvi sambandi dettur mér
I hug saga af íslenzkum húsamál-
urum, sem unnu þar. Þeir þóttu
svo snjallir að blanda liti, að miklar
sögur fóru af hæfni þeirra. Amerisk-
ir létu þá hafa litaprufur til þess
að vinna eftir og það brást ekki,
að ekkert mannlegt auga sá mismun
á þeim lit, sem þeir blönduðu og
litaprufunni. Leyndardómur snill-
innar var sá, að þeir blönduðu citt-
hvað svipaðan lit og prufan sagði
til um og máluðu siðan prufuspjald-
ið með þeim lit.
Þarna inni i bragganum var upp-
lýsingaskrifstofan og við hittum að
máli ungan og viðfelldinn mann,
Haymond W. French að nafni. Hann
var iautinant að tign og yfirmaður
yfir þessari skrifstofu. Við sögðum
frá erindi okkar og hann lofaði að
leysa úr spurningum okkar eftir
fremsta megni.
•— Til að byrja með, lautinant,
hvað er svæðið stórt innan vallar-
girðingarinnar?
— Svæðið innan sjálfrar girðing-
arinnar er 5.825 ekrur. Svo er
hið svokallaða umsamda svæði úti
í hrauninu og það er nokkru
stærra. Það er samtals 21.349 ekrur
sem varnarliðið hefur til um-
ráða.
— Við vildum gjarnan fá upplýs-
ingar um það, hversu margir Banda-
ríkjamenn eru á vellinum núna,
hve margir eru einhleypir, og
hversu margir hafa fjölskyldur sín-
ar með sér af þeim sem kvæntir
eru?
— Það eru samtals 4000 manns
á vellinum um þessar mundir. Ég
held ég megi segja, að það séu 270
fjölskyldur. Hvað hinu viðvikur, þá
hef ég engar upplýsingar um tölu
einhleypra, en það er öruggt að
KEFLAVÍKUR-
FLUGVÖLLUR
KOSTAR 7826
MILLJ. KRÓNUR
algjör meirihluti kvæntra manna á
fjölskyldur sínar ytra og það er
einkum fyrir húsnæðisskort hér á
vellinum.
■— Kenið þið liðsmönnum liér á
vellinum eitthvað um ísland, nátt-
úru þess, menningu og sögu?
— Þegar liðsmenn koma hingað
í fyrsta sinn, sækja þeir stutt nám-
skeið, þar sem þe-ssi afriði eru tekin
til meðferðar og ])eim eru sýndar
kvikmyndir, sem gefa hugmynd um
náttúru landsins og menningu þjóð-
arinnar. Auk þess er starfandi svo-
nefndur Víkingaklúbbur Iiér á
Keflavíkurflugvelli og á hans vegum
koma stundum fyrirlesarar hingað
frá Reykjavík. í þessu sambandi má
taka það fram, að Henrik Tliorla-
citis licfttr kennt varnarliðsmönnum
islenzku og það hafa að jafnaði ver-
ið 36 manns á þeim námskeiðum.
Það er að vísu ekki há hundra'ðs-
tala, en það ber að hafa í huga, að
málið er erfitt, dvalartíminn hér i
Keflavík stuttur og takmörkuð not
Tveir ungir fslendingar í vallar-
vinnu. Þ‘^ir voru að steypa stétt
heim að bragganum þar sem aðal-
bækistöðvarnar eru.
0 VIKAM