Vikan - 26.10.1961, Side 9
af islenzku eftir afS menn eru farnir
héðan. Ég hef ástæðu til að halda,
að það verSi þó lögð meiri áherzla
á íslenzknnám á næstunni og til
dæmis um þá hreyfingu má geta
þess, að Moore aðmiráll flutti sið-
asta kafla ræðu sinnar á islenzku,
þegar sjóherinn tók við i Keflavík.
— Það er kannske eitthvað af hag-
kvæmum ástæðum, að þeir iæra is-
lenzku. Hefurðu annars nokkra
hugmynd um það, hversu margir
varnarliðsmenn fara til Reykjavik-
ur í viku hverri?
— Athugun, sem nýlega fór fram
á þvi, sýndi að meðaltali fara 672
til Reykjavikur á mánuði, 140 á
viku eða 21 á degi hverjum að jafn-
aði. Þetta er þó svolitið mismunandi
eftir árstiSum.
— HeldurSu ekki, að ísland sé i
augum flestra varnarliðsmanna eitt-
hvað ámóta Reykjanesskaganum,
þar sem þeir sjá fæstir aðra lands-
hluta?
— ÞaS er alls ekki rétt að halda
því fram, að þannig sé ísland i aug-
um flestra varnarliðsmanna. Fjöl-
margir hafa farið í ferðalög um
landið og dást að fegurð þess. Fyr-
irlesararnir, sem ég minntist á áS-
an, sýna oft litskuggamyndir af
fallegum stöSum.
— Við höfum heyrt, að meirihluti
varnarliðsmanna í Keflavík sé af
norrænu þjóðerni. Er það rétt?
— Nei, það er ekki rétt, að það sé
meirihluti. Að sjálfsögðu eru alltaf
einhverjir af Norðurlandastofni, en
hað hefur ekkert verið gert sérstak-
lega til þess að svo væri.
_— En er það rétt, að engir negrar
séu meðal varnarliðsmanna hér á
Keflavikurvelli og að islenzk yfir-
völd hafi óskað eftir þvi, að þeir
sæjust ekki hér?
— Ég færist undan þvi að svara
þessari spurningu, ef ykkur er
sama.
— Það er í lagi. En mundirðu
viija svara þeirri spurningu, hvort
rekinn sé einhvers konar áróður
meðal^ varnarliðsmanna, er þeim
liós tilgangurinn með dvölinni á
Keflavikurflugvelli, tilgangur NATO
og svo framvegis?
— Allt starfsfólk við völli
varnarliðsmenn jafnt sem aðrir,
mjög haldgóða vitneskju um þe
hluti. Hvað áróður snertir, þá
rétt að.segja, að varnarliðsmönn
er kennt að þekkja óvininn. þt
er kennt um grundvallarati
kommúnismans. Þetta gildir e
aðeins um liðsmenn hér á Islar
heldur um allan heim.
,7“ Eni margir fslendingar
sforf á vellinum um þessar mund
— Það eru eitthvað nálægt 1
Islendingar ráðnir hér á vellin
eða við störf honum viðkomand
Er fslenzknm kommúnist
bannað að vinna hjá ykkiir?
Það er ráðningarskrifsfofa
vegum fslenzku rfkisstiórnarinr
sem staðsett er við Njnrðvíkurhli
og hun ræður alla íslendinga, .
vinna á vegum varnarliðsins. í
einir eru ráðnir til starfa hjá va
arhðmu, sem taldir eru fyllil
hæfir til að gegna þeim störfi
sem um er að ræða.
Niíjá, loðið svar að vísu, en
skulum láta það goft heita. Við 1
um heyrt, að varnarliðsmenn 1
oft mætt fjandskap svo ekki
meira sagt, þegar þeir hafi brug
ser til Reykjavikur i fristundum í
um. Er það rétt?
— Andstæða nokkurra fslendii
gegn útlendingum á
þeirra, hefur orsakað þaS, að margir
halda að innlendir menn séu yfir-
leitt á móti okkur. Samt sem áður
höfum við komizt að þvi, að þegar
kynni eru einu sinni komin á milli
okkar manna og íslendinga, hefur
þessi tilfinning horfið og kynnin
hafa orðið á jöfnum grundvelli. ViS
höfum reynt að sannfæra liðsmenn
okkar um það, að afstaða íslendinga,
sem stundum sýnist vera köld, er af
heilbrigðum rótum runnin og oklcar
menn sætta sig við ástandið, þegar
þeir skilja þetta. Liðsmenn mundu
auðvitað óska eftir þvf að geta
klæðzt borgaralegum fötum, þegar
þeir fara út af vellinum og f ein-
staka tilfellum hafa þeir óhlýðnast
banninu og farið án einkennisbún-
inga, en það er fátitt. í sannleika
sagt er þetta atriði ásamt takmörk-
unum á leyfum til Reykjavfkurferða,
helztu umkvörtunarefni varnarliðs-
manna f Keflavik.
— Hafa menn langan vinnudag
hér á Keflavfkurvelli?
— Fyrir venjulegan liðsmann er
vinnudagurinn frá átta að morgni
til kl. fimm siðdegis, en frá nfu til
tólf á laugardögum. Á sunnudögum
er ekki unnið. Sumt er þess eðlis,
að mannskapur verður að vera við
allan sólarhringinn, flugvélavið-
gerðir, löggæzlustörf og svo fram-
vegis. Þá eru venjulega vaktaskipti
eftir átta klukkustunda vinnu.
— Við höfum séð leikfimissal,
bowling-skála og eitthvað flejra af
því tagi. Er það annars margt, sem
liðsmenn geta gert sér til afþrey-
ingar í tómstundum?
— Það eru tvö kvikmyndahús hér
á vellinum og það er aS minnsta
kosti ein vinsælasta tómstundaiSj-
an aS sækja þau. í hverri viku er
hægt að sjá fimm kvikmyndir og
aðgöngumiðinn kostar 12 lcr. isl.
nema um sfórmyndir sé að
ræða. Þá kostar hann 16 krónur.
Rowling er Ifka mjög vinsælt og
þar kostar hver leikur 13.50 kr. á
manninn. Þar fyrir utan er tóm-
stundaheimili og dansléikir í fjórum
klúbbum. sem oft fá fslenzkar hljóm-
sveitir og söngvara til að skemmta.
— .Tá, við höfum heyrt, að þessir
klúbbar séu vinsælir hjá kvenþjóð-
inni, sem sækir dansleiki þar. En
geta islenzkar stúlkur komizt inn
á völlinn og dvalizt þar næturlangt
án þess að yfirvöld vallarins hafi
bugmynd um?
— Nei, enda þótt íslenzkar stúlkur
gefi komizt inn á völlinn á kvöldin,
er þeim ekki Ieyft að dvelja þar
yfir nóttina. fslenzkir gestir varnar-
liðsmanna fá passa f vallarhliðinu,
sem þeir verða að skila, þegar þeir
fara ut af vellinum og passinn gild-
ir aðeins til ákveðins tfma. Herlög-
reglan og islenzka lögreglan vinna
saman að því að sjá um að þessum
reglugerðum sé blýtt.
—• Ef varnarliSsmaður brýtur is-
lenzk lög, — við skulum segja að
b.ann sé f leyfi f Reykjavík, __ er
hann dæmdur eftir fslenzkum lög-
um eða bandariskum herlögum?
— Samkvæmt varnarsáttmálanum
frá 1951, sem Alþingi lögleiddi, fell-
ur það undir islenzka dómstóla að
dæma í málum varnarliðsmanna og
þeir eru dæmdir eftir íslenzkum
lögum. Samt getur varnarliðið farið
fram á breytingu á dómum og ís-
lenzka stjórnin getur bvort beldur
bún vill, veitt eða neitað því. Það
kemur mjðg sjaldan fyrir, að slík
beiðni sé gerð.
— Mig langar til að minnast litil-
Framhald á bls. 34.
Tómstundaheimilið á Keflavíkurvelli. Þar geta menn unnið að tré-
smfði, ljósmyndavinnslu, leðuriðju, rafmagnstækni og ýmsu öðru.
Við hliðið á Keflavíkurvelli blasir þetta skilti við og skýrir sig sjálft.
Þetta mun vera stærsti leikfimissalur á íslandi og vel kunnur fs-
lenzkum handbolta og körfuknattleiksmönnum, sem oft hafa keppt
þar. Þessi mynd er tekin af keppni íslendinga við varnarliðsmenn.
Kjörbúð á Keflavíkurvelli. Hér verzla húsmæður á vellinum og
annað varnarliðsfólk.
VIKAN 9