Vikan - 26.10.1961, Side 16
Ef þið hafið fylgzt með vetrartizk-
unni í ár eruð þið ábyggilega ekki i
vafa, það er ekki hægt að lifa út vet-
urinn án þess að hafa uppháan kraga
einhvers staðar, helzt á kápunni, ef
þið á annað borð fylgizt með. Þið eruð
auðvitað ekki lengi á ykkur og bjargið
kápunni frá i fyrra. Þið takið af henni
gamla kragann og setjið lausan á stað-
inn sem lokað er að aftan. Hinn feyki-
iega stóri prjónakragi er hér kantaður
með ræmu af efninu sem er i ltápunni.
Ræmuna takið þið neðan af, því þið
styttuð kápuna i fyrra, var það ekki?
Þá hafið þið mjúkan og góðan prjóna-
kraga við hálsinn og ekki væri úr vegi
að gefa ermunum sams konar skjól,
það kemur sér vel þegar hitamælirinn
sýnir 0°. Kannski kaupið þið ykkur
líka tösku úr skinni og prjónið í kápu-
litunum, en þá má ekki sjást mikið
í ermaprjónið.
Ef þið eigið grófan, kannski köflótt-
an kjól eða stóra blússu, er einnig
hægt að gera hann hæstmóðins með miklu prjóni við háls og úlnliði. En
athugið, prjónið i miðjan kragann röð af lóðréttum hnappagötum og dragið
tvöfalda rússkinnssnúru i gegnum þau, sem þið bindið lauslega saman á
miðjum hálsinum.
Og nú örvæntið þið kannski, því ykkur fara alls ekki uppháir kragar, en
látið ekki hugfallast, það er hægt að gera kjólinn nýtízkulegan með prjón-
uðum ermum og breiðum uppslögum og hafið þá breiða prjónaða ræmu yfir
mjaðmirnar, en i því tilfelli mega mjaðmirnar ekki vera of breiðar.
Hin þroskaða kona og ungi maðurinn, sem hneigjast hvort
af öðru.
Hin margumtalaða mynd eftir skáldsögu Francoise Sagan,
Geðjast yður að Brahms. Nafnið á við eina að þeim setn-
ingum, sem notaðar eru í samkvæmislífinu til að koma af
stað samræðum og kynnast fólki. En fljótleg samkvæmis-
kynni geta orðið örlagarík. Paula (Ingrid Bergman) hefur
litla húsgagnaverzlun. Dag nokkúrn ætlar hún út að borða
Það sem síminn leiðir
1
Þegar stúlka talar i sima segir hún heilmikið um sjálfa sig án þess
að vita af því. Við erum alltaf að koma upp um sjálfa okkur. Enginn
er fær um að skýla eiginleikum sínum fyrir athugulum áhorfanda. Á
hverju augnabliki komum við upp um okkur með hreyfingum og öðru
sem stendur i sambandi við okkar persónuleika. Við komum upp um
okkur með göngulaginu, talsmátanum, hvernig við reykjum og stúlkan
hér á myndunum sýnir hvernig við komum upp um okkur þegar við
tölum i síma. Við viðurkennum að skap hennar gagnvart þeim sem
hún talar við getur haft mikið að segja, en flestir hafa þó vana eða siði,
sem alltaf koma 1 Ijós þegar þeir tala í síma. Athugið stúlkuna hér á
myndunum, sjáið þið ekki sjálfa ykkur i anda í einhverjum af þessum
aðstæðum?
Þannig talar manneskja í sfm-
ann sem er í góðu andlegu jafn'-
vægi. Hún rækir vel sín eigin
áhugamál, en er einnig tilbúin til
að ráðleggja og hjálpa öðrum.
Framkoma hennar er látlaus og
þægileg.
Með vonleysissvip heldur hún
símtólinu frá sér. Hún verður
fljótt leið á öllu og er áköf og
óþolinmóð. Hún kemur sjálfri
sér hvað eftir annað í óþægindi
eins og hún sé ekki alveg full-
orðin. Hún þarf að þroskast bet-
ur og læra umburðarlyndi.
Þessi er alltaf tilbúin til að gera
að gamni sínu og tekur sjálfa sig
ekki of alvarlega. Hún hefur gott
sjálfstraust og það er óhætt að
treysta henni.
16 VIKAN