Vikan - 26.10.1961, Side 21
Neytendasamtökin hafa gefið út bækling um kaup á notuðum bílum
og hafa þau góðfúslega gefið Vikunni leyfi til birtingar á honum. En
rúmsins vegna hefur orðið að stytta hann örlítið hér.
HVERS BER AB GÆTA VIB
KAUP A' NOTUBUM BÍL?
í nýja eða kaupi, endurnýi og selji
notaöa bila. Slíkum fyrirtækjum er
yfirleitt að treysta, enda er ábyrgð
þeirra meiri heldur en þriðja manns-
ins, umboðssalans. Hér er ekki um
annað að ræða en að fara á hina ný-
opnuðu bílamarkaði, til ýmissa ein-
Stígið varlega á „stuðarana“ og látið
yfirbygginguna fjaðra. Ef hún held-
ur áfram að fjaðra, eftir að þér
hafið hoppað niður, þarf bíllinn
nýja höggdeyfa. (Gerist varlega á
litlum bílum).
stakiinga, sem annast umboðssölu,
fara eftir auglýsingum eða auglýsa
sjáifur.
Óhætt er að fullyrða, að í einu til-
felli geti menn talið sig örugga. En
Það er, þegar menn komast í sam-
band við æruverðuga persónu, sem
fullvissir þá um það, að enginn hafi
átt bílinn né heldur keyrt hann nema
hann sjálfur. Hér skal þó ekki reynt
að skilgreina hugtakið æruverðugur,
i stað þess bent á það, að enginn hef-
ur betri aðstöðu en eigandinn sjálfur
til þess að sniðganga einmitt þennan
eða hinn gallann, sem bíllinn hefur
hlotið oftast á erfiðari ævi.
Víða erlendis eru til tæknistofnan-
ir, sem sérstaklega taka að sér að
rannsaka notaða bila, svo að þá er
hægur vandinn að varast meiri hátt-
ar vonbrigði. En þótt hér sé ekki sliku
láni að fagna, þá eru hér þó fjöl-
margir kunnáttumenn, sem ættu að
geta veitt mikilvæga aðstoð við bíl-
kaupin. Þeir, sem ekki eiga slika fag-
menn að vinum eða kunningjum, og
fá sig ekki til að biðja neinn, sem
þeir þekkja, ættu að lesa þennan
bækling mjög vandlega, áður en þeir
gera bílkaup, og það gæti sparað
þeim nokkrar þúsundir króna, ómæl-
anleg vonbrigði og býsn af leiðind-
um. Og þá ættu menn að hringja i
síma 19722 og ganga í Neytendasam-
tökin. Það kostar aðeins 25 kr. á ári,
leiöbeiningarbæklingar og réttindi til
lögfræðilegrar aðstoðar innifalin! En
annars hafa allir bílaeigendur eða á-
hugamenn um bíleign gagn af því að
lesa þennan bækling, eða með öðrum
orðum: Þennan pésa ættu allir að
lesa.
Blýantur kemur upp um ryð-
skemmdir. Hristið framhjólin
með höndunum.
Fyrir þeim, sem kaupir nýjan bíl,
er tegundin yfirleitt aSalatriÖiÖ. En
þegar maöur er aö leita aö góöum,
notuöum bíl, sem sé peninganna viröi,
eru þaö hin ytri eöa innri gœöi ein-
hvers sérstaks bíls, sem ráöa úrslit-
um — og því miöur eru þaö oft hinir
ytri kostir, sem veröa þyngstir á met-
unum. ÞaÖ er svo sjálfsagt, aö þaö
þarf engar nánari skýringar viö, aö
vel meö farinn bíll af ódýrari tegund
er eftirsóknarveröari 'heldur en lúxus-
bíll í lélegu standi!
Það þarf sem sagt aðeins að at-
huga, hvort bíllinn sé í prýðilegu lagi
eða ekki! Og það er í rauninni minni
vandi en ætla mætti að finna sjúk-
dómseinkenni bílsins. Og nú höfum
við, aðallega eftir amerískum fyrir-
myndum, tekið saman það helzta,
sem menn þurfa að athuga, þegar
þeir vilja rannsaka bíl, og sem ekki
krefur neina sérstaka þekkingu
á vélum.
Sá, sem vill selja bíl, getur mót-
mælt því, að hann sé rannsakaður,
af tveimur ástæðum: Hann getur
verið viss um það, að billinn standist
ekki prófið, og hann getur haldið,
að bíllinn skemmist við meðferðina.
En sú athugun, sem hér verður lýst,
gerir seinni ástæðuna algerlega ó-
þarfa. En þér skulið muna, að úr
göllum, sem í ljós koma, má oft bæta,
og það þarf þvi ekki að hætta við
allt saman, að því tilskildu, að verð-
ið standi í réttu hlutfalli við verðgildi
bílsins.
Fyrst og fremst þurfið þér að sann-
færa yður um það, að bíllinn hafi
ekki verið málaður á ný. Með því að
rispa svolítið hurð að innanverðu má
sjá, hvort gamalt litarlag leynist
undir yfirborðinu. Bill, sem hefur
verið málaður oftar en einu sinni,
hefur oft lifað hátt.
GangiÖ úr skugga um þaö, hvort
málmurinn í yfirbyggingunni sé ryö-
étinn, meö því aö þrýsta fingri eöa
enn frekar blýantsenda í liorniö milli
liúss og afturbrettis, og eins viö
gangbrettislistana undir dyrunum. Sé
málumurinn mjúkur, er ryögunin
langt á veg komin. Viögerö á ryöét-
inni yfirbyggingu er dýrari en svo,
aö þaö taki því aö hugsa um hana.
Rispur og beyglur á aurbrettum
og hjólkoppum tala sínu máli. Bíllinn
hefur verið illa meðhöndlaður, og ef
til vill hefur hann verið keyrður af
manni, sem er mjög slysgjarnt.
Það þarf nokkra sérþekkingu til
að geta rannsakað hjólbarðana þann-
ig, að hægt sé að lesa þær rúnir, sem
þar eru ristar. Ef þér getið ekki séð
eða kannizt ekki við munstrið á slit-
laginu, er sennilegt, að dekkið sé
sólað, mikið keyrt og lítils virði. En
óvanur ökumaður getur einnig séð,
hvort dekkin séu ójafnt slitin. Það
sýnir, að hjólastillingin er skökk og
að sennilega er undirvagn bílsins að
framan mjög slitinn.
Kreistið sannleikann út úr
framhjólunum.
Leggizt á kné við hliðina á fram-
hjóli, takið höndum um dekkið efst
og hristið hjólið fram og aftur. Ef
þér heyrið óþægilega smelli, þá eru
óeðlilega stór hlaup annað hvort í
framhjólslegunum, spindilboltunum
eða fjaðrafestingunum. Fyrstnefndi
gallinn er sennilega ekki alvarlegs
eðlis, en hinir tveir þeim mun verri.
Biðjið seljandann að sjá um það, að
framhjólslegurnar séu hertar, — það
tekur ekki meira en 10 mínútur fyrir
bæði hjólin — og endurtakið rann-
sóknina. Ef óhljóðið heyrist ennþá,
getið þér séð fram á háan viðgerðar-
reikning.
Stígið upp á annan ,,stuðarann“ og
svo á hinn, og látið yfirbygginguna
fjaðra. Ef hún heldur áfram að fjaðra
eftir að þér hafið hoppað niður, þarf
bíllinn nýja höggdeyfa.
Nú skuluö þér reyna aö beita enn
meiri vélaþekkingu og lyfta vélar-
hlífinni. Oft finniö þér ryöbletti á vél-
inni ,sem benda til þess aö vatnskass-
inn hafi lekiö, eöa merki um raka á
sveifarhúsinu, vegna þess aö olía hafi
dropiö út.
ÞaÖ getur oröiö dýrt aö gera viö
leka á vantskassanum eöa vélinni, og
olíublettirnar sýna a. m. k., aö þaö
þurfti að setja ný þétti (pakningar).
Dragið oliukvarðann út, lítið á
olíuna og komið við hana og berið
saman við venjulega olíu i bíl með
kaldri vél. Sé hún þykkari, getið þér
verið sannfærður um það, að allt hafi
verið gert, sem hægt var, til þess að
fá mjög slitna vél til að ganga hljóð-
lega við reynslukeyrsluna.
Það sakar ekki að skrúfa allar rúð-
ur upp og niður og reyna dyralæs-
ingarnar. Opnið síðan allar fjórar
Reynið hemlana í langri og brattri
brekku.
dyrnar (eða báðar) og takið eftir því,
hvort þær síga, þegar þær eru opn-
aðar. Lokið siðan dyrunum — með
rúðurnar niðurdregnar — og ef það
þarf að skella einhverri hurðinni ó-
eðlilega fast aftur, getur það verið
merki um það, að bíllinn hafi oltið
um koll.
Fótstigin eru lausmál.
Það en enginn vandi að leika
Sherlock Holmes, þegar maður stíg-
ur upp í vagninn og lítur í kringum
sig. Að visu gæti aðeins maðurinn
frá Bakerstreet séð það á rykinu á
gólfinu fyrir framan bílstjórasætið,
að fyrri eingandi bilsins myndi hafa
verið rauðhærður, einhentur maður
á fimmtugsaldri, en þér getið sjálfur
dregið miklu mikilvægari ályktanir
af fótstigunum („pedölunum") og
gólfmottunni en nokkru sinni kíló-
metramælinum, jafnauðvelt og er að
setja hann úr sambandi. Ef kíló-
metrafjöldinn nemur nokkrum tugum
Framhald á bls. 32
vikanT 21