Vikan - 26.10.1961, Qupperneq 31
Allir utan hættu, suður gefur.
4 7-5
V 10-7-3
+ A-8-7-4
4, A-K-10-3
A
V
♦
*
D-10-6-4-2
K-6-5
D-2
D-6-5
N
V A
S
4
V
♦
4
G-9-8
D-9
K-9-6-5
0-8-7-2
4 A-K 3
y A-G-8-4-2
y G-10-3
4 G-4
Suður
1 hjarta
2 grönd
pass
Vestur
pass
pass
pass
Útspil: spaðafjarki.
Norður Austur
2 lauf pass
3 grönd pass
í spilinu í dag skulum við athuga
Iitameðferð. Það er hægt að spila
hjartalitinn í spilinu að ofan á
nokkra vegu, þó að flestir þekki ekki
r.ema eina leið.
Með aðeins tvo spaðaslagi, tvo
til þrjá laufaslagi og tígulásinn, þá
þurfti sagnhafi að fá þrjá eða fleiri
slagi i hjarta. T þessari stöðu er
rétt hjá sagnhafa að gera ráð fyrir
að hjörtun séu skipt 3-2 og að há-
spilin séu skipt, þ. e. annar and-
stæðinganna sé með K-x-x og hinn
með D-x.
Haldi sagnhafi að véstur sé með
ivíspil í hjarta, verður hann að spila
lágu yfir á tíuna í horði. Láti vestur
háspil sitt í, þá getur suður seinna
svínað fyrir hitt háspilið lijá austri.
Láti vestur ekki sitt háspil i, kostar
tian háspil austurs og sagnhafi tek-
ur síðan ásinn og þá kemur háspil
vesturs í. Geri sagnhafi hins vegar
ráð fyrir að austur eigi tvíspil í
hjarta, verður liann að spila lágu
úr borði og svína gosanum. Þegar
hann síðan tekur ásinn fellur liá-
spil austurs í hann.
Hafi sagnhafi engar upplýsingar
í spilinu, er rétt að spila lágu úr
borði. Þessi spilamennska vinnur
ekki aðeins þegar austur hefur tví-
spil í hjarta, heldur líka þegar hann
liefur K-D-x.
Vestur spilaði út spaðafjarka,
austur lét gosann og hélt slagnum.
Enn kom spaði og nú spilaði suður
líiufagosa. Vestur lét drottninguna
og horðið kónginn. Nú kom lág-
hjarta úr borði, austur lét drottn-
inguna í von um að geta ruglað
sagnhafa. Þar eð „Önnur liendi
lágt“ er hin venjulega spilamennska,
og venjulega réttasta spilamennsk-
an, grunaði sagnhafa ekki að aust-
ur hefði byrjað með D-9 i hjarta.
Suðri fannst liklegra að austur
hefði byrjað með drottninguna ein-
spil, K-D-x eða K-D tvíspil. Hann
spilaði því lágu hjarta að heiman
og svínaði sjöinu, Nú tók austur
sigri hrósandi á níuna og tók spaða-
ásinn af suðri. Nú gat suður ekki
unnið spilið, því að vestur átti
hjartakónginn valdaðan eftir og
fríspaðana.
Nú hefur verið dregið í seinni
gátusamkeppninni og fyrstu verð-
laun hlaut Hróðný Bogadóttir, 8 ára,
Patreksfirði. Önnur verðlaun fékk
Guðbjörg Hjörleifsdóttir, Laufási 1,
Garðalireppi. Þriðju verðlaun fékk
svo Sigrún Ágústsdóttir, 11 ára,
Laugarásvegi 13. Þær eru allar beðn'-
ar um að vitja vinninganna á skrif-
stofu Vikunnar, Skipholti 33.
— f nafni laganna, Valborg —
Haltu þér saman!!!
býður upp á nýja landbúnaðar-
bifreið með framdrifi.
INTERNATIONAL SCOUT bif-
reiðin hentar mjög vel íslenzk-
um staðháttum og hefur hlotið
einróma lof og vinsældir í
Bandaríkjunum.
Áætlunarverð:
SCOUT, húslaus kr. 122.000,00
SCOUT, með stálhúsi kr. 131.
000,00
„SCOUT“ er bifreiðin, sem
allir vilja eiga. — Allar nánari
upplýsingar hjá umboði fyrir:
International Harvester Export
Co.
OXULL h.f.
Borgartúni 7 — Sími 12506
VIKAN 31