Vikan - 26.10.1961, Blaðsíða 35
Það leynir sér ekki að í
slíku tilliti er aðdáun og
viss ótti — um að gefa of
mikið til kynna.
Oryooi
Hún skapar sjálfstraust og
öryggi, vissan um það að
vekja jákvæða eftirtekt.
k
II
i
'HUPlnair’
HrútsmerkiÖ (21. marz—20. apr.): Þú átt í ein-
hverju stríði við sjálfan þig i þessari viku og
hegðar þér yfirleitt heldur undarlega. En úr þessu
rætist liklega um helgina, fyrir tilstilli eins vinar
þíns. Þú munt þurfa að sinan erfiðu verkefni í
næstu viku, og væri þér hollast að búa Þig vel undir það
i þes^ari viku. Talan 5 skiptir ungt fólk afar miklu.
Nautvsmerkið (21. apr.—21. mai). Undanfarið
hefur verið einhver órói og ólga í kringum þig,
en nú breytist þetta áberandi mikið til batnaðar.
Þú munt verða potturinn og pannan í einhverju,
sem þú og nokkrir félagarnir takið ykkur fyrir
hendur, og þú munt fá það hrós fyrir, sem þú átt skilið. Þú
hefur verið allt of eigingjarn gagnvart fjölskyldumeðlim.
___Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Þú hefur átt
þér háleita hugsjón, en nú verður eitthvað til
þess að varpa skugga á ljóma hugsjónarinnar, en
þú rnátt vel við una, því að þetta var ekki annað
en sjálfsblekking. Vikan er mjög vel fallin til alls
kyns kaupsýslu — þú munt að líkindum gera góð kaup um
helgina. Þú hefur haft kunningja þinn fyrir rangri sök.
KrabbamerkiÖ (22. júní—23 júlí): Þú munt taka
veigamikla ákvörðun í vikunni, en ekki er víst
að þú standir við orð þín. Þú lendir í einhverri
deilu út af eintómum smámunum i vikunni, en
líklega mun þessi deila draga einhvern dilk á
eftir sér. Þú skalt forðast allt óhóf í vikunni, sérstaklega
skaltu varast næturrölt.
LjónsmerkiÖ (24 júií—23. ág.): Þú munt kynn-
ast alis kyns fólki í vikunni, þar á meðal manni,
sem er afar sérstæður persónuleiki. 1 fyrstu
muntu ekki kunna nema miðlungi vel við þenn-
an mann. en hann vinnur mjög á við kynningu.
Þú virðist óvenjugleyminn þessa dagana, og á gleymska
þín nú eftir að koma þér illilega í koll.
Meyjarmerkiö (24. ág—23. sept ): Þú munt
þurfa að glíma við ýmiss konar nýstárleg verk-
efni í vikunni, og verður það til þess að gera
vikuna mjög óvenjulega og skemmtilega, ef þú
heldur rétt á spöðunum. Atburður frá fyrra mán-
uði endurtekur sig nú, og nú munt hú kunna að bregðast
rétt við. Þú munt umgangast mikið gamlan félaga þinn.
VoqarmerkiÖ (24. sept—23. okt.): Laugardag-
urinn verður sá dagur, sem skiptir big langmestu
i vikunni, en hinsvegar skaltu fara að öllu með
pát á fimmtudag, þvi að þá verður lögð fyrir big
alvarleg gildra, sem þú munt falla i, ef þú hegð-
ar bér ekki af skynsemi. Þér gefst got.t tækifæri i vikunni,
en líklega munt.u ekki kunna að nýta Þér það til fullnustu
vegna vantrausts á sjálfum þér.
DrekamerkiÖ (24. okt—22. nóv.): Það mun ger-
ast margt markvert í vikunni. Þú átt við erfitt
vandamál að etja, og væri þér hollast að trúá
góðvini þínum fyrir þessu — hann gæti orðið þér
að ómetanlegu liði. Þú munt eignast nýtt áhuga-
mál í vikunni. en þó mun áhuginn é því dofna áður en var-
ir. Föstudagurinn er mjög mikilvægur dagur í lifi þínu.
BoqmannsmerkiÖ (23 nóv.—21. des.): Undanfarið
hefur eitthvað valdið Þér miklum áhyggjum, en
nú muntu loks geta litið lífið réttum augum, þvi
að eitthvað gerist í vikunni, sem verður til þess
að 'bú öðlast sjálftraust þitt að nýiu. Þú skemmtir
þér óvenjumikið í vikunni, og er það vel. Mundu bara. að
vinir þínir meta þig mikils — þér hættir t.il að vanmeta þá.
GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan.): Það mun margt
koma þér á óvart í vikunni, og yfirleitt Þægilega
á óvart. Þér mun vegna mjög vel, en hætt er viö.
að frami þinn vaxi þér dálítið í augum. Helgin
verður mjög ánægjuleg, en þá muntu kynnast
skemmtilegum hóp manna, sem því miður hverfa brátt aft-
ur af sjónarsviðinu. Talan 12 virðist skipta þig miklu
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb ): Á vinnustað
gerist eitthvað, sem á eftir að valda þér óþörfum
áhyggjum. — Það virðist vera leiðinlegur þáttur
í fari þínu þessa dagana, að þú reynir að kvelja
siálfan þig með alls kyns smámunum. Þú færð
skemmtilegt verkefni að glíma við í vikunni, en Þú virðist
allt of bjartsýnn — verkinu verður ekki lokið eins fljótt
og þú gerir ráð fyrir.
F’iskamerkiö (20. feb—20. marz): Þú munt hafa
heppnina með þér í vikunni. og veitir vist ekki af.
því að þú leggur út í alls kyns glæfrafyrirtæki
Þó skaltu fara að öllu með gát í öllum peninga-
málum — það er einhver að revna að leika á
þig í 'þeim efnum. Þú ferð í undarlegt samkvæmi í v'kunn'
Sunnudagurinn er mjög góður dagur — þá munt þú og
vinur þinn taka veigamikla ákvörðun.