Vikan - 26.10.1961, Side 42
• •
mm
Ungir sem aldnir kjósa
sér Terylene-buxurnar
frá
Veltusundi 3. — Sími 11616.
Lubitil
Sputnik
vélin
Heildsölubirgðir
firíkur Kedlsson
Garðastræti 2.
— Ég skal láta kopiera íyrir þig,
eí þú lætur mig hafa prufurnar, sagði
Alex.
— Það er óþarfi, ég get vel séð um
það sjálf. Þegar foreldrar Sheilu voru
farnir, sagði Alex: — Þú lætur mig
kannski hafa Þessar tvær, þar sem
ég er í bátnum, mig langar til að
senda mömmu þær.
— Já, það er velkomið, ég hef
prufurnar. Hérna eru þær.
— Þakka Þér fyrir, Sheila, sagði
Alex. Hann stakk þeim í vasa sinn
og leit út undan sér á prufurnar,
sem lágu á borðinu. — Sheila, þú
vildir víst ekki vera svo góð að gefa
mér vatn að drekka. Ég er svo voða-
lega þyrstur.
—• Sjálfsagt, en viltu ekki heldur
coca-cola?
— Nei, takk, bara vatn. Þegar hún
kom með vatnið lágu öll prufuspjöld-
in ásamt kopíum í jakkavasa Alex.
Hann drakk vatnið. — Þakka þér
fyrir, Sheila.
Þau snæddu kvöldverð á litlu veit-
ingahúsi, og Alex sagði henni að
hann ætlaði til Chicago daginn eftir.
— Strax á morgun? Ég hélt að þú
ætlaðir að vera hérna í nokkra daga.
-—• Já, en ég hringdi til Chicago í
dag, og mér var sagt að nú gæti ég
fengið vinnuna, sem ég hef verið að
bíða eftir.
Þegar hann kom til gistihússins
brenndi hann kopiurnar og prufurn-
ar. Hann andvarpaði af feginleik,
þegar allt var brunnið til ösku.
Snemma næsta morgunn fór Alex
flugleiðis til Mexico City. Þegar hann
kom þangað höfðu borizt fréttir af
Raney. Það voru myndir af honum
á forsiðum allra mexíkönsku dag-
blaðanna, og einnig á annarri og
þriðju síðu amerísku stórblaðanna:
KUNNUR BANDARlSKUR UM-
BOÐSMAÐUR HORFXNN 1 ACA-
PULCO. Hann fletti blöðunum, en
hvergi var minnzt á bátsferðina, og
það var aðalatriðið. Það var sagt að
Raneys hefði verið saknað í fimm
daga. Kvarfið hafði ekki verið til-
kynnt fyrr en eftir þrjá daga sam-
kvæmt fyrirmælum yfirvaldanna, sem
létu fyrst leita hans í kyrrþey í
Acapulco og meðal vina hans i
Mexico City. „Menn halda", stóð i
blaðinu „að hr. Raney hafi ef til
vill orðið fyrir hefndaraðgerðum.
McGee gat verið alveg rólegur,
hugsaði Alex. McGee og félagar hans
höfðu sjálfsagt nógar fjarvistarsann-
anir fyrir alla siðast liðna viku. Alex
hringdi til George Bell, sem var einn
aðstoðarmanna McGee.
— Ert þú loksins kominn Alex, við
vorum farnir að undrast um þig.
— Ég hef tekið það rólega, hvað
er að frétta.
— Allt ágætt, við eigum að koma
til fundar við McGee, og ég gæti bezt
trúað að hann hefði annað verkefni
á takteinum handa þér.
Kaffi er kjördrykkur en reynið einnig —
JOHNSON & KAABER
KAFFI-UPPSKRIFT NR. I
ís-kaffi
Fyllið % af háu glasi meS sterku köldu löguðu kaffi. Látið
eina matskeið af vanillu-ís út í og nokkra ísmola (mulda)
ofan á. Setjið síðan nokkrar skeiðar af þeyttum rjóma yfir
og skreytið með ruðum cocktail-berjum.
■fr
JOHNSON & KAABER
KAFFI-UPPSKRIFT NR. 2
ískælt kaffi
Sterkt lagað kaffi er sett í kælingu. Fyllið % af háu glasi
með ískaldri mjólk og % af kaffinu. Sykur eftir vali. Bezt
er að nota sykur-lög, (þ. e. 1 kg sykur og 1 litri af vatni
soðið saman og kælt) til að gera sætt með. Setjið siðan
eina matskeið af vanillu-ís eða þeyttum rjóma út i um
leið og horið er fram.
Kaffibrennsla
InuKicnu o Yl VADCD H/_
KUUnlHbUN ot IV/ \AbtK /f
— KöIluðuS þér, herra minn?