Vikan - 26.10.1961, Qupperneq 47
ungi of seint til starfs síns í sjúkra-
húsinu, en Það kom þó ekki að sök.
Þeir í handlækningadeildinni sögðu
honum frá atviki, sem hann ætti eig-
inlega að rannsaka nánar — miðaldra
maður, prúður og vel klæddur, hafði
reynt að stytta sér aldur með rakvél-
arblaði, en þar eð hann komst undir
læknishendur i tækan tið var hann úr
allri hættu.
Jan Stenlund lagði þetta atvik á
minni sér; að sjálfsögðu mundi hann
ræða við mann þennan siðar, bæði
vegna mannsins sjálfs og til þess að
geta fært þetta í skýrslur sínar.
Hann skrapp inn í næturvörzluher-
bergið og fékk Eér kaffisopa hjá
hjúkrunarkonunni. Ekkert athyglis-
vert var að finna í skýrslu vökukon-
unnar; sjúklingarnir sofið væran,
eftri að hún hafði flutt Johanson i
sérherbergi, svo herbergisnautar hans
gætu sofið fyrir hrotunum í honum.
Johanson þessi þjáðist af svefnleysi
sökum þess að hann hafði gert sér
i hugarlund að hann gæti slegið met
Napoleons mikla, sem aldrei svaf
nema fjórar klukkustundir í sólar-
hring, og lengi vel svaf Johanson ekki
nema þrjár. Napoleon var að lokum
fluttur til St. Helenu, en Johanson í
sjúkrahúsið, þar sem hann endur-
heimti sinn glataða svefn með að-
stoð lyfja, og af slíkum dugnaði, að
hann hélt vöku fyrir öðrum.
— Er þetta ekki unaðsleg sönnun
um sigurmátt holdsins yfir andanum ?
spurði Stenlund hjúkrunarkonuna.
Hjúkrunarkonan var honum sam-
mála um að það væri sönnun, en alls
ekki um það, að hún væri unaðsleg.
Einmenningsherbergin eru ekki bein-
línis ætluð til þess að einangra hrot-
ur, fullyrti hún, og spurði hvort lækn-
irinn ætlaði ekki að útskrifa Johan-
son í dag.
— Ég veit það ekki, svaraði lækn-
irinn. Maður verður að fara með
hann eins og brothætt fúlegg. Þegar
ég færði það i tal við hann í gær,
sárbað hann mig um að fá að vera
hér lengur, vegna þess hve rúmdýn-
urnar væru mjúkar.
Síminn hringdi. Hjúkrunarkonan
rétti Stenlund talnemann; það var
Maud, sem tilkynnti honum, að hún
hefði þegið, fyrir þeirra beggja hönd,
boð í samkvæmi þá um kvöldið.
— Þú veizt það, Maud, að ég er
þreyttur að loknu starfi og hef ekki
tíma til að sinna slíku.
— En, Jan, þú veizt að ég er að
fara og verð fjarverandi i nokkrar
vikur, svo þú ættir nú að geta fórnað
mér aðeins einu kvöldi. . .
Hann gat ekki maldað í móinn í
áheyrn hjúkrunarkonunnar. Enn varð
hann því að láta undan.
Stundarkorni síðar var enn hringt;
hann tók talnemann og bjóst við að
Maud þættist hafa gleymt einhverju
eins o gvenjulega. Svo var þó ekki.
—■ Svefnlyfin, rétt einu sinni,
sagði hann við hjúkrunarkonuna.
Hentu hrotukarlinum út úr einmenn-
ingsherberginu. Fengum við súrefnið
i gær?
— Tvo geyma, svaraði hjúkrunar-
konan. Og satt bezt að segja held ég
að þér hefðuð sjálfur þörf fyrir inni-
haldið úr öðrum.
— Þakka yður hugulsemina, en
sjúklingarnir verða að ganga fyrir.
Hann fór niður i lyftunni. Fyrir utan
viðtalsherbergið stóð ung stúlka sem
kvaðst heita Irma Bodén og vera
kunnug Sonju Wallin. Hún hafði
hringt til Sonju, þegar hún mætti
ekki til vinnu um morguninn, og
þegar hún svaraði ekki, þóttist hún
vita að eitthvað alvarlegt hefði komið
fyrir, tók bíl heim til hennar og fékk
húsvörðinn til að opna herbergið.
Sonja lá i rekkju og með litlu lifs-
marki.
— Þetta töfluglas stóð á borðinu,
sagði hún og rétti Stenlund lækni
það. Haldið þér að hún sé i lifshættu?
— Já, það held ég.
— Að það geti átt sér stað að hún
vakni ekki aftur?
— Veit það ekki. Þér skuluð fara
inn til skrifstofustúlkunnar þarna
segja henni nafn yðar og símanúmer
og allt, sem þér vitið um þessa vin-
stúlku yðar. Þakka yður fyrir.
Hann gekk inn í skoðunarklefann.
Sjúklingurinn reyndist vera stúlka
um það bil hálfþrítug, falleg stúlka,
andlitsfallið mótað hreinum drátt-
um, munnurinn lítið eitt opinn, eins
og á sofandi barni. Hárið sítt og ljós-
gullið.
Jan Stenlund virti hana fyrir sér
eitt andartak. Hvaða saga skyldi
leynast á bak við þessa sjálfsmorðs-
tilraun. Vonbrigði í ástum? Otlit
hennar virtist benda til þess.
— Hvernig lítur þetta út? spurði
hann hjúkrunarkonuna.
— Illa, mælti hún þyrkingslega.
Æðaslátturinn veikur, blóðþrýsting-
urinn undir fimmtíu, hitinn ekki
nema 35,6.
— Tvo dæluskammta enn, og svo
súrefni, sagði hann um leið og hann
tók um hönd sjúklingsins, sem var
óþægilega köld. Yfir svip hennar
hvildi djúpur friður. Hvarmhárin
voru dökk — en augun, mundu þau
gea orðið björt og brosmild? — Við
gerum allt, sem unnt er, sagði hann
við hjúkrunarkonuna. Skiptum um
blóð — og segið skurðlækninum að
vera við því búinn að opna brjóst-
holið, ef með þarf . . .
LES OG SPILAR ...
Framhald af bls. 17.
bjóða út dömum, þó þeir séu ekki
með henni, en sá riddaraskapur
virðist vera að deyja út hér. Þeir
gefa stúlkunni að minnsta kosti
tækifæri til að kynnast sér, áður
en þeir fara fram á meira.
— Skilur þú nokkuð hjartfólgið
eftir hér heima?
— Nei, nei, þannig hlutir rista
ekki svo djúpt á þessum árum, og
svo verður þetta fljótt að liða, ef
út í það færi.
HVERS BER AÐ GÆTA ... ?
Framhald af bls. 32.
i 15 til 20 km hraða í hæsta hraða-
stigi og stigið svo benzíngjafann um
það bil hálfa leið niður. Ef billinn
eykur ferðina upp í 50—60 km án
Þess að rykkja, hika eða missa
kveikju, þá getið þér verið nokkurn
veginn viss um það, að bæði rafkerfið,
blöndungurinn og lokarnir eru i góðu
lagi.
Allra síðasta athugunin snertir
kælinguna. Gangið úr skugga um það
við upphaf reynsluferðarinnar, að
kælivatnið sé ekki of heitt og viftu-
reimin sé spennt og gætið svo að
vatnshitanum eftir aksturinn. Sé hann
allt of hár, þá vitið þér, að kæli-
kerfið er stíflað — af ryði, beyglun
eða öðrum orsökum.
Fjórtán spurningar um bifreið-
ar og svör við þeim.
Erfiðasta timabil ársins fyrir alla
bifreiðaeigendur er vetrartíminn, og
til þess að hjálpa örlítið upp á þetta
skulu teknar hér nokkrar ráðlegg-
ingar, sem sézt hafa í blöðum undan-
farið. Hér koma þær:
1. Notið fjölþykktarolíu.
2. Notið ekki fjölþykktarolíu.
3. Látið vélina ganga í lausagangi
svolitla stund áður en farið er
af stað.
4. Látið vélina ekki ganga í lausa-
gangi. Skiptið strax og farið er
af stað.
5. Sjálfskiptur vagn er hreint og
beint stórhættulegur í hálku.
6. Sjálfskiptur vagn hefur alla kosti
fram yfir aðra vagna í hálku.
7. Setjið vetrardekk á, þegar færið
fer að verða hált.
8. Trúið ekki öllum þessum áróðri
um vetrardekk. 1 mikilli hálku
er miklu beti’a að hafa vel slitin
dekk, þar sem þau leggjast betur
á vegínn.
9. Gardinur fyrir vatnskassa eru
óþarfar.
10. Vatnskassagardínur eru nauð-
synlegar.
11. Að setja vax á lakkið er alveg
ónauðsynlegt.
12. Vaxberið lakkið.
13. Nýtízku vagn hefur miklu betra
af því að standa úti.
14. Ekkert fer eins vel með bifreið-
ina og upphitaður skúr.
Fyrir þá, sem hafa lifað af þessar
ráðleggingar, skulu hér birtar ráð-
leggingar, sem eru eins konar svar
við öllu þessu. Það er sænska blaðið
„Svensk Motor“, sem lætur sérfræð-
ing sinn svara. Hér koma svörin:
I. -2. Auðvitað á maður að nota
fjölþykktarolíu. Það hefur sýnt sig
að fjölþykktarolía hentar ekki á-
kveðnum tegundum bifreiða (Kamb-
ásinn bræddi úr sér). Sérfræðingar
framleiðenda þessara bifreiða héldu
því fram að þetta væri oliunni að
kenna og oliufyrirtækin að þetta
kæmi til af Því, að of veikbyggðir
málmar væru í legum vélanna. Fjöl-
þykktarolian hefur þann hæfileika að
laga sig eftir hitastiginu, þvi Þarf
maður ekki að velja milli þykkta.
3.-4. Áður fyrr var það venja að
láta vélina ganga 5—10 mínútur i
lausagangi, en nú er talið réttara að
setja nærri strax í gir og aka af stað,
ef maður sér, að olíuþrýstingurinn
er eðlilegur .Með þessu móti nær
maður fljótast eðlilegum vélarhita
og minna sliti á vélinni.
5.-6. Sjálfskiptingin hefur allt fram
yfir. Sá vagn, sem er með sjálfskipt-
ingu, skiptir betur niður en bifreiðar-
stjóri getur nokkurn tima. Allir rykk-
ir, sem komið geta fyrir um leið og
skipt er, hverfa algerlega.
7.-8. Ágætt er að hafa vetrardekk
og í vissum tilfellum snjókeðjur. Það
er hreinasta fjarstæða að hafa slitin
dekk.
9.-10. Bifreiðir með góðum vatns-
lásum þurfa ekki gardínu fyrir vatns-
kassann, en sumir viija sjálfir ráða
hitanum og með því gera Þeir engan
skaða fyrr en þeir gleyma sér og það
sýður á vélinni. Hafi maður gardinu
er það ágætt t. d. þegar bifreiðin er
stöðvuð augnablik, hún heldur þá véi-
inni lengur heitri.
II. -12. Ný' bifreið þarf ekki
vax. „Póleringsefnin“ hafa nú orðið
það mikið vax í sér að ekki þarf
meira með en þau. Volvo hefur enga
trú á vaxinu.
13.-14. Allt tal um það, að ekki sé
gott eða ekki nauðsynlegt að hafa
upphitaðan skúr, er og verður út í
hött.
Tímans maður kaupir
VEGGHÚSGÖGN
Hornhillur
Hillur
I RenniHúrðal
Skrifborðsskápar
TM-húsgögn fástefestum húsgagnaverzlunum.
Biðjið um TM-hú^|ögn.
Barskápar
Borðstofuborð
Borðstofuskápar
Svefnbekkir
Borðstofuskápar
Sófaborð S gerðir
SÓFASETT:
fca
ltoyál Croí
E I. sett.
Trésmiðjan
NEIÐIIR
HALLARMÚLA 1. — SÍMI: 35585.
VIKAN 47