Vikan - 26.10.1961, Side 51
heimilistækin hafa staðist
lunnar
dom reyns
eru nýtízkuleg
létta hússtörfin
-■ í
H.F. RAFTÆKJAVERKSMIÐJAN, HAFNARFIRÐI
» i jL M
i ••
•§n?!=ö!
Kœri draumráðandi.
Fyrir nokkru dreymdi mig draum,
sem mig langar að fá ráðningu á.
Mig dreymdi að ég ætlaði að fara
að gifta mig og var að athuga
kjóla. Mér fannst tveir koma til
greina, bleikur, en hann mátaði
ég ekki og svo svartur úr satíni.
Hann fór mér mjög vel. Svo ætlaði
ég að hafa hvítt slör plíserað yfir.
Athöfnin átti að vera opinber og
var ég að æfa mig að koma fram,
því að margir mundu verða við-
staddir. Kjólinn hafði ég að láni.
Ekki vissi ég hver maðurinn átti
að vera, en ég er gift og var mað-
urinn minn alltaf að biðja mig að
flýta mér.
Með fyrirfram þökk,
Sallý.
Svar til Sallýar.
Litirnir á kjólunum i draumi
þessum eru athyglisverðustu
táknin. Bleikur er tákn feigðar-
innar, en svartur er í þessu til-
felli tákn um endi. Eftir því
má búast við að slitni upp úr
tengshun þínum við kunningja,
sem þú hefur ált náin kynni við.
Þetta á ckki við nm eiginmann
þinn, en getnr verið lwer annar.
m i : i i hí ■ '■■■'
Kæri draumráðningamaður.
Mig langar til þess að fá ráðn-
ingu á tveimur draumum. Mér
fannst ég eiga ungbarn, sem mér
Jjótti mjög vænt um, en ég varð
að gefa það, en fék/k að hafa það
einn dag i viku. Ég tók sérstaklega
eftir Jjvi livað mér fannst barnið
fallegt og hversu vænt mér fannst
um það. — Hinn darumurinn var
að ég hitti strák, sem ég hef þekkt
dPaUMulBInM
Draumspakur maður ræður drauma
fyrir lesendur Vikunnar.
í nokkur ár. En ég hitti hann i
sjávarþorpi, Jjar sem ég dvaldi í
þrjár vikur i sumar, þá vorum
við saman. Hann er enn úti á
landi. En mig dreymdi að hann
væri kominn til bæjarins og ég
hitti liann. Hann tók utan um mig
og var mjög glaður á svipinn.
Hann faðmaði mig mikið og brosti
og líkaði mér það vel.
Systa.
Talið er að ungbarn i draurni
sé tákn byrði, sem í þinu til-
felli er aðeins einu sinni i viku
eins og það er orðað í draumn-
um. Það merkir hins vegar að
þú verður aðeins sjaldan fyrir
óþægindum af þessu. — Síðari
draumurinn er tákn um ánægju-
legt líferni,þar sem ástamök inn-
an löglegra marka eru talin vera
tákn um slíkt.
Kæri draumaráðandi.
Nú fyrir stuttu dreymdi mig
þennan draum: Mér þótti vera
sunnudagsmorgunn og ég ókomin
á fætur. Heyri ég að einhver er
fyrir utan liurðina hjá mér. Svo
ég opna og inn koina systir mín
og mágur minn og eru þau með
stóra ferðatösku gráa að lit og
segjast vera að fara á grasafjall,
en langi að horða nesti sitt hjá
mér og eru Jiau með lieihnikið af
hangikjöti. En systir min vill að
ég geti hvað þau séu með og sé ég
að það er kettlingur, gulbröndóttur
og voru þau bæði mjög hamingju-
söm með hann, en ég var undrandi
yfir að þau skyldu vilja eiga kett-
ling í bænum. Enn finnst mér ein-
hver vera fyrir utan hurðina, svo
ég opna. Þar stendur maður svo
stór að hann rekur sig upp i dyra-
staf og sé ég að aðrir tveir menn
minni eru í ganginum og Jiótti
mér Jieir vera gestir, en allir þrir,
varu Jieir með svarta sjópoka ineð-
ferðis. Mér tókst að varna stóra
manninum inngöngu, og skeilti í
lás, en hugsaði, sem svo að ég
gæti ekki búið hér lengur.
Með fyrirfram þökk fyrir ráðn-
inguna.
Gerða.
Svar til Gerðu.
Þegar unga stúlku dreymir
kettling er það talið tákn um
biðil, sem hefur meiri áhuga á
kjassi og daðri heldur en rcglu-
legu ástarlífi. Hangikjötið i
draumnum er iákn um að systir
þín og mágur muni hafa mikið
að gera i framtiðinni an tíma
til tómstundaiðkana. Mennirnir
með sjópokana eru tákn um að
þú munir komast í kynni við
sjómenn i náinni framtið.
vikan 51