Vikan - 09.11.1961, Side 11
Hann virtist að lotum kominn af hungri og þreytu og föt
hans voru öll í tætlum. Hann hafði hina mestu furðusögu
að segja; kvaðst hafa haldið langt upp með ánni í leit að
staðnum, en „ég fann hann ... ég fann demantana og fjár-
sjóðinn," sagði hann.
Ekki kvaðst hann hafa tekið nema nokkra demanta með
sér, en þegar hann hefði reynt að komast aftur til sam-
ferðamannanna, hefði hann vil'lzt af leið, flækzt um frum-
skóginn, og glatað demöntunum. „En það er nóg eftir af
þeim,“ sagði hann. Þegar þeir gengu á hann, gerðist hann
móðgaður. „Ég hef heitið því, að fjársjóðnum skuli skipt
jafnt á milli okkar, og við það stend ég. Mér þykir leitt að
ég skuli hafa glatað þessum fáu, sem ég tók með mér, en
það er ekkert við því að gera. Og við verðum allir auðugir
áður en lýkur.“
Þegar þeir sögðu honum frá bréfinu frá Philip, sagði hann:
Á leiðinni ræddu þeir Swartz og Smorenberg margt um
það, hvaða brögðum yrði að beita til þess að komast hjá því
stjómin gerði sjóð þeirra upphækan, þar eð sala á óslíp-
uðum demöntum og ómótuðu gulli var talin alvarlegur glæp-
ur í Suður-Afríku, og lá þung refsing við. Kom þeim því
saman um að fara yrði að öllu með hinni mestu leynd.
Þeir héldu i slóð fyrri leiðangursins. En þegar þá bar að
Makoetsifljóti, tók Swartz byssu sína og fór á undan til að
athuga kennileiti. Þegar tveir dagar liðu og hann kom ekki
aftur, urðu deilur nokkrar með leiðangursmönnum. Vildu
sumir halda því fram, að þeir Smorenberg og Swartz hefðu
gert með sér félag um að sitja sjálfir að auðæfunum; væri
Swartz nú farinn til að grafa upp gullið og demantana, en
Smorenberg ætti að sjá svo um að þeir hinir biðu rólegir
átekta. Smorenberg lézt hinsvegar ekki hafa hugmynd um
hvað gerði, að Swartz kom ekki aftur.
SONN FRASOGN UR BUA-
STRIÐINU AF ÓTRÚLEGUM
ÆVINTÝRUM, GULLFUNDI í
FRUMSKÓGINUM, SVIKUM
OG MANNDRÁPUM
SÍÐARI HLUTI
„Það var glappaskot að taka hann með. En hann skal ekki
heldur fá neitt af fjársjóðnum fyrir bragðið."
Þreyttir, hungraðir og illa til reika náðu þeir til Leydsdorp
þann 22. maí; þeir spurðust þar fyrir í öllum verzlunum, en
enginn virtist kannast við það, að Philip hefði verið þar á
ferð. Vildu þá sumir snúa aftur inn í frumskóginn og leita
hans, en Swartz kvað það óráð; múldýrin þyrftu alllangrar
hvíldar við, áður en þau gætu lagt upp í aðra slíka ferð.
„Auk þess hef ég ekki neinar áhyggjur af Philip; hann er
áreiðanlega ekki í neinni hættu," sagði Swartz.
Þeir sneru því heim aftur; eftir að þeir höfðu greint lög-
regluyfirvöldunum í Pietersburg frá atburðum, tóku þeir sér
far með járnbrautarlestinni til Jóhannesarborgar. Ekki hafði
Philip komið heim til sín. Van Dyk sagði önnu greinilegast
frá hvarfi hans, og fullyrti, að þeir hefðu gert allt, sem í
þeirra valdi stóð til að finna hann. Swartz fullyrti hinsvegar
að Philip væri einhversstaðar á flótta. „Hann stal nesti okk-
ar, áfengi og peningum," sagði hann.
„Því skal ég aldrei trúa,“ sagði Anna. „Hann hefur aldrei
stolið neinu af neinum."
Ekki leið á löngu áður en Swartz hafði skipulagt annan
leiðangur á laun. Gerðust þeir félagar hans, Carl Langler,
hollenzkur að uppruna, Andrew Smorenberg, fyrverandi lög-
reglumaður en nýkominn heim úr stríðsfangabúðum, Jon
Cullinan og Peter Potgieter. Fyrrverandi leiðangursfélagar
hans lögðu nú á hann þungan grun og ræddu málið við lög-
regluyfirvöldin, en þá var Swartz allur á bak og burt, —
kominn inn i frumskóginn með hinum nýju félögum sínum.
„Ekki kemur okkur það að neinu haidi að bíða hérna og
éta upp vistirnar," sagði Potgieter. „Við höfum ekki neinn
leiðsögumann, sem getur visað okkur á fjársjóðinn, fyrst
Swartz er horfinn."
Þeir sneru þvi við heimleiðis, en þá bar svo kynlega við,
að Swartz kom til Leydsdorp, skömmu eftir að þá bar þar að
garði. Þegar leiðangursmenn hófu yfir honum reiðilesturinn,
lét hann sem þetta stafaði allt af misskilningi; kvað svo hafa
verið ráð fyrir gert, að þeir kæmu í humáttina á eftir sér,
eða það hefði hann minnsta kosti haldið, og þvi hefði haxm
beðið þeirra lengi, en síðan haldið til baka og hefðu þeir þá
hvergi verið sjáanlegir á tjaldstöðunum.
Á meðan þeir leiðangursmenn dvöldust þama í borginni,
höfðu fyrri leiðangursfélagar Swarts haldið út í frumskóg-
inn, og var leynilögreglumaður í fylgd með þeim. Skammt
frá tjaldstaðnum, þar sem Philip van Niekerck hvarf forðum,
fann leynilögreglumaðurinn hjálm illa farinn, höfuðkúpu, tvö
herðablöð og slitur af buxum, skyrtu, sokkum og öðrum
fatnaði. Tvihleypa fannst i runna rétt hjá, og voru bæði
hlaupin hlaðin. Þótlist lögreglcm nú hafa fengið sannanir
fyrir því, að Swartz hefði skotið Philip, er þeir fóru að sækja
vatnið. Hvort Swartz hefði í rauninni fundið fjársjóðinn í
þeirri sömu ferð, en komið honum undan, — um það höfðu
lögreglumennirnir deildar skoðanir. Ef svo hefði verið, þá
var seinni leiðangurinn því nær óskiljanlegt tiltæki.
Þegar lögreglan handtók Swartz, varðist hann allra svara,
nema hvað hann neitaði harðlega að hann hefði ráðið Philip
Framhald á bls. 32.
VIKAN