Vikan - 09.11.1961, Page 13
Alltaf getur það komið fyrir, að brjóstahaldararnir bili, en það átti ekki að sjást og sízt af öllu að koma á mynd. En hver varar sig á nútima ljós-
myndatækni? Það er Birgitta frá Danmörku, sem gerir við bilunina hjá Rigmor frá Noregi.
ÁFERÐ
IHfflNHWI
Það var einn sunnudag um réttaleytið, að það stytti upp eftir langvarandi
slagviðri. Þá voru hér staddar norrænar fegurðardrottningar og hafði varla
verið hægt að sýna þeim bæinn fyrir veðurvonzku. Þennan sunnudag voru
þær á lausum kili og Vikan sá sér leik á borði og bauð þeim í ferð austur á
Þingvelli, niður með Sogi, til Hveragerðis og þaðan suður yfir Hellisheiði til
Reykjavíkur. Það var lagt af stað uppúr hádeginu og það var afskaplega haust-
legt, þegar út fyrir bæinn kom; móarnir i Mosfellssveitinni orðnir bleikir eftir
haustrigningarnar. En þegar austur á Þingvöll kom, var litadýrðin einstök eins
og alltaf þegar kjarrið er að fella laufin á haustin. Það var dálítið napurt á
Þingvöllum og þeim var kalt, enda þótt þær væru allar í þessum ágætu stökkum
frá Sportveri. Það var gengið á Lögberg og síðan upp að fossinum. Þjóðgarðs-
yfirvöldin á Þingvöllum hafa víst ekki gefið því gætur ennþá, að það er varla
fært þennan spotta af veginum og upp i gjána hjá Öxarárfossi. Að minnsta
kosti hefur ekkert verið gert í því skyni að auðvelda fólki gönguna þangað
Framhald á bls. 38.
<] Nælonsokkarnir voru látnir hafa það, því háu hælarnir reyndust ekki sem
beztir á hraunfláanum upp að Öxarárfossinum. María gengur á undan,
Inger frá Svíþjóð á eftir.
Inger frá Stokkhólmi er afskaplega blíðlynd stúlka — og
alvarleg, að því er hún sjálf segir. Hér fagnar hún hvítum
hesti austur í Ölfusi.