Vikan - 09.11.1961, Síða 14
Á ferð með fegurðardrottningum
Bananar og blóm hjá Páli
— með bændum úr Ölfusi
Þegar komið var £ Skíðaskálann í Hveradölum, beið þar fallega
búið borð £ vinalegri setustofu. Það er Miss Norden, Rigmor frá
Noregi, sem virðir borðið fyrir sér.
í Ölfusinu mættum við fjárrekstri og voru þar Ölfusbændur að reka
fé sitt til slátrunar á Selfoss. Þær vildu endilega sjá hestana og
heilsa upp á islenzka bændur og hér sjást þær £ áköfum faðmlögum
við hrossin. Bændurnir voru bræður sr. Jóhanns Hannessonar,
prófessors og fyrrum þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum. — Þeir eru
nákvæmlega eins og sænskir bændur, sagði Inger frá Stokkhólmi.
— Þeir eru veðurbarðir og það er pabbi lika. Hann er bóndi rétt
hjá Örebro. —
V
Hjá Páli Michelsen voru bananar og dýrindis rósir i fullum blóma
og Páll leysti fegurðardrottningarnar út með fögrum blómvönd-
um. Hér er sigurvegarinn í þessari keppni, Rigmor Trengereid,
að dást að bananaklasa í gróðurhúsinu hjá Páli.
Það var sólskin um hádegið, en svo dró fyrir
sól og var heldur napurt eins og sjá má á Rigmor
frá Bergen; hún dregur stakkinn upp á nef.
Hún sagðist annars vera öllu vön frá Bergen,
hvað veðurfar snerti.