Vikan - 09.11.1961, Side 19
aö komast aS segnlbandi, taka rödd sína upp
á það og hlusta svo vandlega. Þær munu komast
að raun, að þær tala ekki aðeins of hátt heldur
renna orðin líka saman. Það er annað mikils-
vert atriði að tala svo að maður skiljist.
2. Hreyfðu þig eins og leikkona. Flestar kon-
ur eru bognari en þær lialda. Það fær þær til að
virðast óánægðar með sjálfa sig. Það fyrsta sem
leikkonur læra er að hreyfa efri hluta hryggs-
ins, andið djúpt og þá finnið þið nákvæmlega
hvar staðurinn er. Leikkona hefur aldrei á-
hyggjur af stöðu sinni, hún hugsar ekki um
að setja axlirnar aftur, magann inn eða að
ganga með alfræðiorðabok a höfðinu, liún man
aðeins eftir að ganga með brjóstkassann hátt,
þá kemur hitt allt af sjálfu sér. Glæsilegt yfir-
bragð nýtur sín alls staðar, hvort sem er á
leiksviði eða í nýlenduvörubúðinni. Leikkonu
er kennt að koma inn i herbergi og halda höfð-
inu hátt, eins og hún stefni að háleitu marki
í lífinu. Henni er kennt að ganga eins og fugl
fljúgi, án þess að vagga til beggja hliða. Og
henni er kennt að líta alltaf niöur fyrir sig,
áður en liún sezt, svo hún skelli ekki niður.
Þegar hún sezt lætur hún ekki tilviljun ráða
hvar fæturnir lenda. Takið eftir næstu kvik-
mynd sem þið sjáið. Leilckonan mun að öllu
forfallalausu setjast niður og krossleggja fæt-
urna, en það er fallegasta stellingin sem völ
er á. Og takið eftir því aS yfirleitt láta leik-
konur ekki sjást i hnén á sér. Það er yfirleitt
ekki fallegt að láta sjást í hnén nema þá að
konan sé í sundbol eða einhverju þess háttar.
Hendurnar eru mikið vandamál fyrir leikkonur.
Það er regluleg list að halda höndunum í
fallegum stellingum. Jafnvel leikstjórarnir eru
hræddir viS hendurnar, þeir nefna þær t. d.
aldrei, því þeir eru hræddir um að það geri
leikkonurnar taugaóstyrkar. En það er einn
hlutur sem leikkonur mega aldrei gera, þær
mega aldrei fikta í andlitinu á sér, ýta á ennið
eða augun, nudda á sér nefið eða kinnarnar
eða róta i liárinu, þetta eru hreyfingar sem
algjörlega eru bannaðar, því þær undirstrika
minnimáttarkennd.
2. Klæddu þig eins og leikkona. Þetta virðist
kannski vera hlægileg ráðlegging, en hún hefur'
mikið að segja. Venjulega klæða leikkonur sig
ekki áberandi. Leiksviðsljósin eru sterk og af-
hjúpa mjskunnarlaust ef kona er of mikið eða
ósmekklega klædd. Takið eftir aSalleikkonunni
í næstu mynd sem þið sjáið og þið verðið
hissa þegar þið sjáið hvað hún er einfaldlega
klædd. Frægur leikstjóri sagði mér einhvern
tíma, aS ef hann vildi láta einhverja konu lita
heimskulega út, hlæði hann á hana skartgripum.
Áberandi einkennilegar konur eru látnar klæða
sig alveg eftir nýjustu tizku eða jafnvel á undan,
það ætti að vera ábending um það, að lilaupa
ekki alltaf eftir tízkunni, heldur biða þangað
til hún hefur unnið sér fastan sess. Ef eitthvað
mjög sérstakt fylgir nýrri tizku, mun þetta at-
riði verða fallcgra eftir dáiítinn tima, heldur
en þegar það er ný til lcomið. Munið svo að
taka tillit til eiginmannsins eða unnustans,
þegar ný föt eru keypt.
4. Hugsaðu eins og ieikkona. Með þessu meina
ég, skiptu þér af því sem fram fer í kringum
þig. Ef leikkona sýnir ekki áhuga á umhverfi
sínu leiðist áhorfendum jafnvel enn meira en
henni sjálfri og frægðarferill hennar tekur skjót-
an endi. Það eru miklir persónutöfrar fólgnir
í því að hafa áhuga á því sem fram fer í kring-
um sig, tala um hugsanir sínar með áhuga og
hlusta á sama hátt. Ég hef umgengizt karlmenn
Ekki fikta með höndunum í andlitinu. Gættu
þess einnig að láta hnén ekki sjást.
Notaðu ekki of mikið af smáhlutum, það er
ekki nauðsynlegt, að nota allt seni þú átt.
Réttu úr þér, þú nýtur þín ekki ef þú stendur
leiðinlega.
Ekki hlaða utan á þig fötunum.
lengi og ég hef aldrei heyrt neinn kvarta undan
því að kona hafi of mikinn áhuga á lífinu í
kringum sig. Og ég meina allar konur, ekki
aðeins leikkonur. Staldraðu aðeins við og at-
hugaðu hver er vinsælasta stúlkan í þínum
kunningjahóp. Er það ekki sú, sem mestan
áhuga hefur á því sem fram fer i kringum
hana? Sú sem lætur sér ekki standa á sama
um allt?
5. Lifðu eins og leikkona. Og það þýðir að
þú verðir að taka tillit til heilsu þinnar. Eng-
inn er svo fallegur að komizt verði hjá skyn-
samlegum og heilsusamlegum siðum. Góð leik-
kona gætir heilsu sinnar jafnvel betur en út-
litsins. Um aldamótin 1800 áttu konur að vera
ósjálfbjarga og veikbyggðar og heil kvæði voru
ort um þessar viðkvæmu verur. Nú skrifar
enginn um heilsulausar konur. Þær gcra heil-
brigða menn taugaóstyrka og eru þeim fjötur
um fót. Þó að leilckonur lifi óreglulégu lifi er
ekki þar með sagt að þær lifi óheilsusamlegu
lífi. Þær fá meiri svefn en flestar aðrar konur,
þó að það sé ekki alltaf á sömu tímunum. Þær
fylgja mjög skynsamlegum reglum um heil-
brigði og gæta vel að húð, liári, nöglum og öðru
þess háttar. Heilsan er þeirra aðaláhugamál.
Leikkonur reykja yfirleitt hvorki né drekka
og þær borða minna en gengur og gerist. Ég
veit ekki hvernig þeirra persónulegu fegrunar-
aðferðir eru, hvort þær taka vitamin eða gera
einhverjar öndunaræfingar, ég veit bara að þær
eyða mikilli orku í það að vera lieilbrigðar og
láta sér liða vel.
Framhald á bls. 33.
VIKAN 19