Vikan - 09.11.1961, Blaðsíða 22
Bezti gamanleikari í lieiminum. Mexikaninn Cantinflas, sem
lék Passepartout í „Umhverfis jörðina á áttatiu dögum“, fer nú
sigurför um allan heim í kvikmyndinni Pépé. Hann er cinn
af frægustu kvikmyndaleikurum jarðarinnar og sá alfræg-
asti -I Suður-Ameríku.
Milce .Todd vissi vel hvað hann gerði þegar hann valdi
Cantinflas í hlutverk Passepartout í kvikmyndinni Umhverfis
jörðina á áttatíu dögum. Þessi litli töfrandi Mexikani hefur
ótrúlega kímnigáfu. Og hann hittir beint í mark með leik
sínum. Þess vegna var það ekki undarlegt að hann skyldi
verða heimsfrægur eftir hlutverk sitt í þessari mynd. Og þar
með var ferli hans ekki lokið, hann er eins og áður er sagt
frægasti kvikmyndaleikarinn í Suður-Ameríku og sá allra
ríkasti.
P’aðir hans var fátækur póstur og lítið menntaður. Þess
vegna vildi hann að sonurinn fengi betri tækifæri í lífinu
en liann. Cantinflas, sem upphaflega heitir Mario Morcno, fékk
að ganga í skóla þó að það kostaði föðurinn næstum aleiguna.
Strákurinn var skarpur og vel gefinn, en hafði lítinn áhuga
á náminu. Aftur á móti dvaldi hann langtímum á markaðs-
torgunum þar sem umferðaleikarar og flækingar liéldu til.
Eroll Garner
Píanóleikarinn Eroll Garner er sérstakur í sinni röð,
ekki aðeins þegar hann situr við píanóið. Henn hefur t. d.
mjög ákveðnar hugmyndir um það, hvernig samningar
eigi að hljóða. Einn liður samninga hans hljóðar alltaf
þaning, að hann hafi rétt til að henda píanói því í hljóm-
leikasölum, sem hann er ekki ánægður með. Hann mtindi
víst hafa nóg að gera hér á landi.
Jill og Sal. Með þeim á myndinni er Eva Maria Saint.
Fyrir nokkru töluðum við hér um myndina Exodus, en þar fóru
með tvö af fjórum aðalhlutverkum, Sal Mineo og Jill Haworth.
Jill hefur þroskazt mikið síðan þessi myndataka fór fram og er
nú orðin falleg dama og það hefur ekki farið fram hjá Sal Mineo,
því þau voru í París nýlega og opinberuðu þar trúlofun sína. Þau
leiddust þar um göturnar, ljósmyndurum og öðrum til ánægju, gáfu
dúfunum og höguðu sér að öllu leyti eins og ástfangið ungt fólk
gerir í París.
Og á hvíta hestinum
sínum í sömu mynd.
Hann fylgdist nákvæmlega með öllu, sem þeir tóku sér fyrir hendur. Og
einn góðan veðurdag fékk hann eftir margítrekaðar tilraunir ieyfi til að
ferðast um með einum þeirra.
Það kom brátt í ljós að Cantinflas var fæddur til þessa starfs. Án þess að
hafa nokkuð fyrir þvi tileinkaði hann sér hina vanabundnu hluti á bak við
sönginn, dansinn og dollarabrögðin. Svo kryddaði hann þetta allt með sín-
um persónulega stíl og sló í gegn.
Árði 1940, þegar hann var 23 ára gamall, yfirgaf hann lífið í hringleika-
húsinu og fékk stöðu við leikhús. Einnig lék hann í nokkrum stuttum
kvikmyndum, sem voru svo góðar að gera varð heila kvikmynd úr þeim.
Cantinflas var orðinn upp-
áhald allra Mexicobúa og
hann var nógu „sniðugur"
til að sjá þá möguleilca sem
fólust i kvilcmyndunum,
bæði til að verða listamað-
ur og businessmaður. Hann
kom á fót sínu eigin kvik-
myndafélagi og græddi á
því dágóðan skilding.
Cantinflas er óvenjulega
gáfaður maður. Charlie
Chaplin, sem einnig er al-
veg í sérflokki, hefur sagt,
að Cantinflas sé mesti gam-
anleikari í heiminum.
Hann hefði einnig getað
orðið frægur nautabani ef
hann hefði farið út á þá
braut. Hin eldsnöggu brögð
hans hafa sigrað mörg
hættuleg naut. En Cantinflas finnst
allt of vænt um dýr til að geta
verið að særa þau. Þess vegna kem-
ur hann aðeins fram á vígvöllunum,
sem gamanleikari eins og í hinu
ógleymanlega atriði i myndinni
Umhverfis jörðina á áttatíu dögum.
Gerið göt
leðurbelti
a
Það getur verið erfitt að setja aukagöt á dýr leðurbelti, en á þennan
hátt er það auðvelt. Þið glóðhitið prjón í passandi stærð yfir eldi.
haldið svo um prjóninn með naglbít, meðan götin eru stungin á beltið
saumaklúbbinn
FYLLTIR TÓMATAR.
4 stórir tómatar, 4 salatblöð, íVi dl rjómi, % matsk.
edik, % matsk. sykur, Vi tsk. rifin piparrót, 1 krydd-
sildarflak, steinselja.
Setjið tómatana hola að innan á salatblöðin. Niðurskorið
síldarflakið er sett í tómatana. Þeytið rjómann þar til
hann er næstum þvi stifur, bætið i hann ediki, sykri og
piparrót, og leggið svo blönduna yfir síldina. Skreytið
svo með steinseljunni og berið fram með rúnnstykki.
22 VIKAN