Vikan - 09.11.1961, Síða 23
Söngkonan Ella Fitzgcrald er fædd 25. april 1918 i Newport, Virg-
inia og vakti fyrst athygli þcg'ar hún var sextán ára í söngkeppni
í Harlem. Hún fékk strax eftir þetta vinnu með hljómsveit Chick
Webb og fyrstu plötur hennar með þessari vinsælu hljómsveit komu
út um það bil ári seinna. Sú alfyrsta hét „Are You Here To Stay“,
þetta var á þeim tíma þegar swingstillinn var alls ráðandi í jazzin-
um. Chick Webb lézt árið 1939 og þá gerðist Ella hljómsveitarstjón,
jafnframt því sem hún kom fram sem söngkona. Það rigndi yfir
Ella Fitzgerald
hana tilboðum um
að koma fram i næt-
urklúbbum og veit-
ingahúsum og eftir
eitt ár sem hljóm-
sveitarstjóri liætti hún og ákvað að halda ein áfram á framabrautinni.
Ella hefur óvenjumikið raddsvið og með fullkomnum takti og öryggi
syngur hún allt frá sígildum jazzlögum til vinsælla dægurlaga. Lag
eftir hana sjálfa, A-Tisket, A-Tasket, varð heimsfrægt árið 1938 og
varð upphafið á vinsældum hennar hér.
Ella vinnur mikið og það er ekki hægt að neita því að á sumum
tímabilum hefur hún staðið dálítið í stað. Einkum á timanum milli
1940 og 1950, þeg-
ar hún söng aðal-
lega hljómlist,
sem litið átti skylt
við jazz. Þá söng
lmn inn á fjölda
af plötum með
hinum og þessum
hljómsveitum og
söngvurum og
þessar plötur
voru greinilega
fyrir fólk, sem
ekki keypti jazz-
plötur. Samt sem
áður eru góðar
jassplötur inn á
milli eins og „Ella
and her Fellas“
sýnir. Á þessari
plötu syngur hún
með Lous Arm-
strong, Mills
Brothers, The Ink
Spots, Lous Jor-
dan, Delta Rythm
Boys, Eddie Hey-
wood, Sy Oliver,
og Chick Webb.
Siðan Ella byrj-
aði að syngja
með Norman
Granz hafa komið út með henni þrjár hæggengar plötur,
þar sem hún syngur svo að segja allt eftir hin banda-
rísku tónskáld Irving Berlin, Cole Porter og Richard
Rodgers. Á fjórum heilum hæggengum plötum syngur
liún lög eftir Duke Ellington. Einnig eru til þrjár plöt-
ur þar sem hún syngur með Louis Armstrong, fyrir
utan síðustu toppplötuna hennar þar sem hún syngur
lög úr Porgy and Bess. Beztu jazzplötur hennar á sið-
ustu árum eru „Jazz at tlie Hollywood Bowl“ og tvi-
söngvar hennar með Louis Armstrong. Hinar nýjustu
eru svo „Ella at the Opera House“ með hinum sígildu
lögum „Lady be Good“ og „Stomping at the Savoy“.
Áætlað er að yfir 25 milljónir platna hafi selzt með
henni á undanförnum árum. Sjálf spilar hún á munn-
hörpu.
Ella á einn son, Ray Brown jr., frá hjónabandi sinu
með bassaleikaranum Ray Brown. Þau skildu árið 1953.
Æ^^ANööLíri^
Afsakið! Þið hafið víst ekki séð Ég vildi að okkur yrði bjargað bráð-
fimm vilta fíla hlaupa hérna hjá? lega. Mér er farið að lítast vel á
hana.
Bréfaviðskipti
Jónina Magnúsdóttir, Árbæjarbletti 60, Reykjavík, óskar
eftir bréfasambandi við pilta eða stúlkur á aldrinum 12—
14 ára. — Anna Garðarsdóttir, Ormsstöðum, Grímsnesi, vill
komast í bréfasamband við pilt á aldrinum 15—16 ára.
Æskilegt að mynd fylgi bréfi. — Jónu Jakobsdóttur, Hörgs-
landi II, Síðu, V.-Skaft. langar til að komast í bréfasam-
band við pilta eða stúlkur á aldrinum 11—13 ára. — Vigdís
Guðrún Þórðardóttir, Bröttuhlið, Húsavík, S.-Þing. biður
um að koma sér i bréfasamband við strák á aldrinum
14—16 ára.
Herbergið
Rafmagnsleiðslur i lofti og á veggjum líta oft leiðinlega út i skemmti-
legum og aðlaðandi herbergjum. En i staðinn fyrir að reyna að
fela þær, eða hafa tvítengla og leiðslur út um allt gólf, er betra að
láta þær bara vera fyrir
allra augum. Litið t. d. á
teikninguna. Það er hægt
að með smábrögðum að
láta jafnvel leiðinlegustu
leiðslur líta skrautlega
út, er það ekki?
C. I
VIKAN 23