Vikan - 09.11.1961, Blaðsíða 26
Að vera falleg og halda fegurð
sinni með húðsnyrtingu
PLACENTA CREME
Notkunarreglur á íslenzku með hverri túbu.
Því fyrr sem þér byrjið að leggja rækt við húðina því erfiðara
verður að gizka á aldur yðar síðar meir!
MUNIÐ
Suzanne André PLACENTA CREME
Inniheldur náttúrleg efni, sem hörundið drekkur i sig. Styrkið
eðlilega starfsemi húðvefjanna, eykur blóðsóknina til hörundsins,
og gerir það þannig unglegra og mýkra. Hrukkur og drættir
hverfa.
Fæst í snyrtivöruverzlunum.
Framleiðandi:
Suzanrn Andrí
Kosmetik GmbH Wiesbader
26 VIKAN
N-S á hættu, suður gefur.
íþ 10
y G-10-7-6-2
+ K-G-2
^ ' G-8-5-4
* 8-7-5-4-2 N ^ A-G-9-6-3
V 8-3 v A y 9-5
♦ 8-7-6-3 y 9-5
* A-K S jf. D-10-7-2
4 K-D
V A-K-D-4
♦ A-D-10-4
4» 9-6-3
Suður Vestur Norður Austur
1 hjarta pass 2 hjörtu pass
4 hjörtu pass pass pass
Útspil: laufaás.
Spilið í dag sýnir hvernig bridge-
sérfræðingar fara að því að tryggja
sér hámarksslagafjölda í varnar-
spili.
Þegar vestur spilaði út laufaás og
síðan laufakóng á eftir, sýndi það
að hann ætti A-K tvíspil í laufi.
Með þrjú eða fleiri í litnum hefði
hann spilað kóngnum fyrst og ásn-
um á eftir (þessari reglu hefur þó
á seinni árum verið snúið við af
fjölmörgum sérfræðingum).
Ætti vestur aðeins tvö lauf, þá
var suður sannaður með þrjú og
þessvegna var austur fullviss um
að ef hann kæmist inn á spaðaásinn,
þá gæti hann hirt laufaslaginn.
En vestur gat varla verið viss í
hvorum litnum hann ætti að koma,
tígli eða spaða. Kæmi hann í tígli
var allt glatað, svo nú reið á að
koma vestri i skilning um að hann
ætli að koma i spaða.
Austur leysti viðfangsefnið með
því að láta laufadrottninguna í
laufakónginn. Þetta gerði gosann i
borði að hæsta spili, en það gerði
ekkert til, því kæmi vestur ekki í
spaða, var spiiið unnið livort sem
var.
Vestur skildi merkið á augabragði
og spilaði spaða. Austur tók á ás-
inn, spilaði laufi, sem vestur tromp-
aði. Með augljósri fórn á einum
slag tryggði austur sér tvo slagi.
SAUMAKLÚBBSKAKA.
Framhald af bls. 18.
FLJÓTLEGAR SMÁKÖKUR.
Vz bolli smjörlíki, Vi bolli syk-
ur, Vi bolli púðursykur, 1 egg,
1 Vz bolli hveiti, % tesk. natron,
Vi tesk. salt, Vi bolli kókosmjöl,
súkkulaði.
Smjörlíkið er hrært með sykri og
púðursykri. Eggið hrært vel saman
við. Hveiti, natron og salt sáldrað,
hrært varlega saman við ásamt
kókosmjölinu. Látið með teskeið á
vel smurða plötu. Súkkulaðið skorið
í fremur smáa bita, sem látnir eru
á miðju hverrar köku. Bakað við
meðalhita þar til kökurnar eru
fallega gulbrúnar.
RÚGKEX.
250 gr hveiti, 100 gr sykur, 250
gr smjörlíki, 3 tesk. hjartarsalt,
2—2V2 dl mjólk.
Hveitið er sáldrað með hjartar-
saltinu, sykrinum blandað saman
við og smjörlíkið mulið í. Salti og
kúmeni blandað þar saman við.
Vætt í með mjólkinni. Hnoðað fljótt
saman. Flatt fremur þunnt út á
smurðri plötu, skorið i ferkantaða
bita og pikkað.
Bakað við meðalhita ijósgulbrúnt.
ÁSTRÍÐUFJÖTRAR.
Framhald af bls. 9.
legt svið, en banna þeim að brjótast
fram í skefjalausri ástríðu. Þessa
uppeldis hefur margur afbrotamað-
urinn farið á mis, hvort sem því
valda ytri mistök eða óvenjulegir
erfiðleikar og misræmi i eðlisgerð
hans. 1 þessu er fólginn meginmun-
urinn á skapgerð afbrotamannsins
og liins siðvanda. Ágirnd þjófsins
er e. t. v. sterkari en mín, en við-
námsvenjur hans eru laust mótaðar
og óþjálfaðar. Þvi mistekst honum
að hemla i tæka tíð, en leikur við
ósiðlegar tilhneigingar, þangað til
])ær eru orðnar honum ofurefli,
ástríða sem blindar skynsemi hans.
Þetta hugarfar mun verða þvi
hrösulla sem fleiri ineinlitlum cn
óhreinlegum troðningum er ætlað
að stytta löghelgaða alfaralcið.