Vikan - 09.11.1961, Side 29
II
* '1
’bifwap
vegna.
lega á
HrútsmerkiÖ (21. marz—20. apr.): Þetta verður
mjög viöburðarík vika, og einkum munu mið-
vikudagur og fimmtudagur verða skemmtilegir.
Þó verður líklega einhver til þess að særa þig ó-
viljandi í vikunni, og átt þú þessi ummæli engan
veginn skilin. Um helgina verður einhver til þess að bæta úr
Þessu,. svo að báðir mega vel við una.
NautsmerkiÖ (21. apr.—21.mai): Það er eitthvað,
sem veldur þér áhyggjum þessa dagana, en það er
eins og þú gerir þér ekki almennilega grein fyrir
því hvað það er. 1 vikulokin er eins og rætist úr
þessu, án þess að þú gerir þér grein fyrir hvers-
Líklega mun einhver í fjölskyldunni koma þér þægi-
óvart á laugardaginn.
TvíburamerkiÖ (22. maí—21. júní): Gamall vinur
þinn kemur nú fram á sjónarsviðið en veldur þér
þó einhverjum vonbrigðum, þvi að þetta er önnur
og breytt persóna. Þú munt umgangast einhvern,
sem þú hefur litið umgengizt til Þessa og hefur
þú gott af þeim samskiptum. Þú ert allt of uppstökkur þessa
dagana, og verður það oft til þess að reiði þín bitnar á
alsaklausum mönnum.
Krabbamerkið (22. júní—23. júlí): Það verður
heldur lítið lesið úr stjörnunum fyrir Krabba-
merkið í þessari viku, en eitt er víst, að einhver
mikil óvissa hvilir yfir vikunni. Þú skalt umfram
allt ekki leggja í nein stórfyrirtæki og alls ekki
tefla á tvær hættur. Ýmislegt bendir til þess að föstudagur-
inn sé þýðingarmikill dagur, líklega skiptir sá dagur fram-
tíð þína miklu.
LjónsmerkiÖ (24. júlí—23. ág.): Einn eiginleiki
þinn, sem hefur verið lítt áberandi til þessa, fær
nú að njóta sin, svo um munar, í þessari viku.
Þetta verður til þess að þér býðst gullvægt tæki-
færi, sem þér er ráðlegt að nýta til hins ýtrasta.
Þér sinnast eitthvað við einn fjölskyldumeðlim út af smá-
munum. Reyndu að ná sættum hið skjótasta.
Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Þetta verður
óvenjuleg vika í alla staði og afar frábrugðin
fyrri viku. Það gerist ýmislegt um helgina, sem
lengi verður í minnum haft, og allt bendir til
þess að þú þurfir síður en svo að kvíða helg-
inni. Eitthvað verður samt til að varpa skugga á ánægjuna
á mánudag, en það er svo smávægilegt, að ekki tjóir að
gera veður út af því.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Þig skortir
einhvern veginn sjálfstraust í þessari viku, og er
það miður, því að þér bjóðast mörg góð tækifæri,
sem þú þorir ekki að notfæra þér sakir skorts á
sjálfstrausti. Líklega græðist þér fé í vikunni.
Láttu ekki þennan nýja félaga verða til þess að þú snúir
baki við gömlu félögum þinum.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þér verður á
glappaskot í vikunni, sem í fyrstu virðist smá-
vægilegt, en það mun síðar koma í ljós, að þetta
glappaskot á eftir að draga dilk á eftir sér ■— þó
mun svo fara að lokum, að þú munt hrósa happi
yfir þessu glappaskoti þínu, hvernig sem það má nú verða.
Þú sýnir þínum nánustu ekki næga tillitssemi þessa dagana.
Bogmannsmerkiö (23. nóv.—21. des.): Þetta verð-
ur ánægjuleg vika I alla staði, þótt ýmislegt bendi
til, að þú reynir að skapa þér óþarfa áhyggjur,
sem þér tekst heldur illa! Það hefur dálítið borið
á þvi í fari þínu, að þú reynir að kvelja sjálfan
þig með alls kyns hugarórum ■— þú verður að venja þ'ig af
þessum leiða vana. Þú færð skemmtilegan gest i heimsókn
GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan.): Þú kemst i
einhverja klípu í vikunni út af einhverju, sem
þér varð á að segja í síðustu viku. Þú verður að
játa fyrir fleirum en sjálfum þér, að þetta var
Ijótt glappaskot, og nú ríður á að þú biðjist af-
sökunar, þótt þú verðir að taka á öllu þinu. Helgin verður
frájjrugðin undanförnum helgum og eftir því skemmtileg.
©Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Þú hefur
eitthvað á prjónunum, sem ekki er ráðlegt að
framkvæma, fyrr en eftir svo sem mánuð —
vertu nú ekki of óþolinmóður, eins og undanfarið.
Þú ættir, þegar að því kemur, að fá einhvern
félaga þinn I lið með þér, til þess að vinna að þessu verk-
efni. Kvöldin verða mjög skemmtileg.
Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Þú ert á báð-
um áttum út af einhverri ákvörðun sem þú þarft
að taka i vikunni, og líklega væri þér hollast að
gera það, sem þér datt fyrst í hug. Þú hefur van-
rækt nokkra vini þína undanfarið, og er það
miður. Gleymska þín gæti komið þér í koll i vikunni —
áttu eftir að endurnýja happdrættismiða?