Vikan - 09.11.1961, Qupperneq 39
ekki rúntinn“
:rix Liver frá
sra á Islandi
allar trissur. Norður og vestur og
austur. Og ekki má gleyma óbyggð-
unum. Ég er meira að segja búin að
koma að Öskju. Ég fór þrjár ferðir
með Guðmundi Jónassyni. Það var
mjög glatt á hjalla stundum og í
þessum ferðum kynntist ég mörgu
fólki. Svo hef ég ferðazt á eigin
spýtur.
— Ertu trúlofuð, Beatrix?
;— Það er nú einkamál.
Beatrix.
Sviss, sem
í rúmt ár
Nei, nei, svoleiðis lagað er
nefnilega ekki einkamál hér á ís-
landi. Hver einasti lesandi Vikunnar
mundi telja sig eiga heimtingu á
þvi að vita, hvort þú sért trúlofuð
og hverra manna kærastinn sé.
— Jæja þá. Ég er trúlofuð.
— Ekki þó íslendingi?
— Nei, ég var trúlofuð' áður en
ég kom til Islands. Ilann er Sviss-
lendingur eins og ég og lieitir Beat.
— Beat og þú heitir Beatrix. Það
var skrýtið. Hvernig finnst honum,
að þú sért með Eskimóum og bar-
börum hér uppi á íslandi?
— Hann veit, hvernig það er
hérna. Hann kom hér i fyrra og
var hér um skeið. Ég lield, að hon-
um hafi bara líkað vel. Hann lærði
lika svolitla íslenzku og nú ætla ég
að kenna honum meira svo við get-
um talað saman á íslenzku. Ég skrif-
aði honum meira að segja nýlega
á islenzku.
— Iivað gerir hann, kærastinn
þinn?
— Hann er i lierjjjónustu núna.
— Og búinn að vera lengi i henni?
— Já, alveg óskaplega lengi.
— Jæja, við skulum ekki fara að
rifja það upp. Finnst þér ekki
Reykjavík skrýtinn bær að mörgu
leyti?
— Iíannski svolítið. Jú, stundum
finnst mér ungt fólk dálítið skrýtið.
Til dæmis þessi rúntur þarna niðri
í bæ.
— Rúnturinn?
— Já, ég skil ekki rúntinn. Að
ganga svona hring eftir hring eða
aka i bílum.
— Einhvern veginn verða gæjarn-
ir að ná sér i skvisur.
— Ha?
— Skilurðu ekki slang. Það er
ekki von. Það hefur verið reynt að
hafa gott mál fyrir þér.
— Jú, jú, ég skil það vel. Ég
hef oft heyrt þessi orð.
— Er enginn rúntur i Bern?
— Ekki eins og þessi hérna. Og
það er annað, sem mér hefur oft
dottið i hug, og það er það, að i
Sviss væri alveg ómögulegt fyrir
ungar stúlkur að fara á dansleik eða
restauration eins og þær gera al-
mennt hér.
— Af hverju væri það ekki hægt
i Bern?
— Þær væru bara ósköp einfakl-
lega álitnar lausar á kostunum. Það
er ekki álitið sæmandi fyrir heið-
virða og siðprúða stúlku að fara á
skemmtistað án þess að vera í sam-
fylgd með herra.
— Svo þá eru allar dömur upp-
teknar á svissneskum skemmtistöð-
um.
— Það er hægt að ganga að borði
og spyrja herrann um leyfi til að
dansa við dömuna.
—- Ojá, það er nú hægt líka
hér og þykir ekki uppá marga fiska.
Mér virðist, að það sé þá miklu
verra fyrir svissneskar stúlkur að
ganga út heldur en hér á ísiandi.
Þær verða að bíða uppá von og
óvon að einhver komi og bjóði þeim
út. En svo ég kúvendi nú heldur
snarlega; þú ætlar að fara að lialda
málverkasýningu, eða hvað?
— Já, en ég var of sein að ákveða
það og svo fékk ég ekkert sýningar-
pláss. Það var allt upptekið. En ég
er að iiugsa um að fá mér stórt tjald
og tjalda á auðri lóð við Tjarnar-
götuna. Ég er búin að fá tjaldið
og ég má tjalda þarna, en ég er
í dálitlum vandræðum með lýsing-
una. Fyrst ætlaði ég að hafa lampa,
en það var víst ekki gott og nú er
ég að hugsa um flúrósentlýsingu
með einhverju móti. Ég ætla að
hafa opið til 19. nóv.
— Hefurðu málað þessar myndir
hér á íslandi?
— Já allar. Sumt eru landslags-
myndir og sumt eru myndir liéðan
úr Reykjavík og svo eru uppstill-
ingar.
— Áttu enga mynd hérna til að
sýna mér?
— Nei, ekki hér á teiknistofunni,
en ég er með ljósmynd af einni,
sem þú mátt fá í þlaðið. Það er
komposition með svartadauða.
-— Hún er þjóðleg og góð. Eru
myndirnar yfirleitt i þessum stil?
— Þær eru allavega. Sumar eru
dálitið stílfærðar. En mér finnst
fjöllin og landslagið hérna svo fall-
egt. Og það er svo fljótt að skipta
um liti. Það er varla hægt að gera
svo mynd, að litirnir i landslaginu
hafi ekki gerbreytzt á meðan.
Komposition með Svartadauða.
Mynd eftir Beatrix.
— Ertu svo á förum?
— í desember. Þá fer ég fyrst
heim til min og svo langar mig til
þess að fara eitthvað suður á bóg-
inn. Til dæmis til Spánar. Mig lang-
ar til þess að vinna þar eitthvað
við auglýsingateikningar.
— Góða ferð. Verst að þú skulir
fara án þess að skilja rúntinn.
— Já, mér þykir það mjög leitt.
En ég hugsa nú samt að ég eigi
eftir að koma hingað aftur.
I GS.
Tímans maður kaupir
VEGGHÚSGÖGN:
Hornhillur
Barskápar
Borðstofuborð
Borðstofuskápar
Sófaborð S gerðir
|Lm!J| I 1 1 sTIBt^
Skrifborð Borðstofustólar S gerðir Cannes
; Glerskapar Ruggustólar ... - ufhýáí Crown
Rennihurðaskápar
Skrifborðsskápar
Spegilsett 2 gerðir
Svefnbekkir
Bergamó
E I. sett.
TM-húsgögn fást í flestum húsgagnaverzlunum.
Biðjið um TM-húsgögn.
Trésmiðjan
MEIÐIIR
HALLARMÚLA 1. — SÍMI: 35585.
VIKAN 39