Vikan - 19.09.1963, Blaðsíða 23
Ef
jakkinn trosnar
Húsráð
Eitt af því fyrsta, sem slitnar
á jakkanum, er framan á erm-
unum. Oft verður því jakkinn
ónothæfur vegna þess slits, þótt
óslitinn sé að öðru leyti.
Hér er sýnd aðferð til að lag-
færa slíkt slit.
1. mynd sýnir slit jakkaerm-
arinnar. — 2. mynd sýnir þegar
verið er að sauma stykki við
ermina. — 3. mynd sýnir, hvernig
stykkið er nælt inn af erminni.
Byrjið á að losa fóðrið, og
klippið síðan á brotlínuna, fram-
an á erminni. Takið því næst
stykkið, sem klippt var af, og
nælið við brúnina á erminni,
þajin enda þess, sem fóðrið saum-
aðist við áður, réttu mót réttu,
þræðið vel og saumið fótbreidd
frá brún.
Pressið saumfarið út, og varpið
það báðum megin með grófum
sporum, svo það rakni síður.
Brjótið nú sauminn inn í erm-
ina, þannig hann sjáist ekki frá
réttu, en þó ekki meir en lengd
ermarinnar leyfir.
Gangið frá fóðrinu í höndum,
og pressið ermarnar.
Einnig má ganga frá sams
konar sliti á jakkaermum með til
þess gerðu leðurbandi, þannig:
leggið leðurbandið réttu mót
réttu við jakkaermina, saumið
1—IV2 sm frá brún, brjótið leð-
urbandið síðan inn á jakkaerm-
ina og leggið niður við það í
höndum, frá röngu.
Húsráð
* Nuddið dökka eða rauða
olnboga með sundurskor-
inni sítrónu og þvoið vel
á eftir. Eftir nokkra daga
sjáið þið mun, hve hvítari
þeir eru orðnir.
* Gott er að leggja silki-
tvinna með ullargarninu
þegar prjónað er hálsmál
eða annað, þar sem hætta
er á að flíkin togni.
* Fyrir þær, sem sjá illa,
og ef dimmt er í herbergi,
er gott að leggja sokkinn,
sem verið er að stoppa, yf-
ir vasaljós.
* Hægt er að koma í veg
fyrir að litir í mislitri ull-
arpeysu renni til, með því
að leggja peysuna nokkra
stund í kalt saltvatn áður
en hún er þvegin.
* Gera má fallegan bakka
úr gömlum, stórum mynda-
ramma með því að leggja
fallegt efni inn undir
rammann þar sem myndin
áður var.
* Límið glært plast fyrir
opnar hillur í kjallara og
á háalofti, sem ekki þarf
að fara daglega í, og losn-
ið þannig við rykið. Það
hefur þann kost, að hægt
er að sjá, hvað er í hill-
unum, án þess að þurfa að
opna.
i
Munsfurpnon
Með slettum og brugðnum
lykkjum er hægt að mynda hvaða
prjónamunstur sem er, með ó-
prjónuðum lykkjum og lausum
böndum.
Hér fara á eftir 4 uppskriftir
af munsturprjóni.
—O—
MUNSTUR I.
1. umf.: brugðin, 2. umf., 1 1.
á jaðri * 1 1. br., 1 1. tekin ó-
prjónuð fram af prjóninum og
garnið látið liggja á réttu # 1 1. á
jaðri. 3. umf. brugðin. 4. umf. 1
1. á jaðri * 1 1. tekin óprj. og
garnið látið liggja á réttu, 1 1.
br. * 1 1. á jaðri.
Endurtakið frá 1.—4. umf., og
myndið með því mynztrið.
MUNSTUR II.
1. umf. brugðin. 2. umf. 1 1. á
jaðri * 2 1. sl., 1 1. tekin óprjónuð
fram af prjóninum og garnið lát-
ið liggja á röngu, 1 1. sl., band-
inu brugðið um prjóninn og ó-
prjónuðu lykkjunni steypt yfir
næstu lykkju og lausa bandið, *
1 1. á jaðri. 3. umf. brugðin. 4.
umf. 1 1. á jaðri * 1 1. tekin ó-
prjónuð og garnið látið liggja á
röngu, 1 1. sl., bandinu brugðið
um prjóninn og óprjónuðu lykkj-
unni síðan steypt yfir sléttu
lykkjuna og bandið, 2 1. sl., * 1 1.
á jaðri.
Endurtakið 1.—4. umf. og
myndið með því munstrið.
MUNSTUR III.
1. umf. 1 1. á jaðri, 1 1. sl., *
2 1. br., 1 1. sl. * 1 1. á jaðri. 2.
umf. 1 1. á jaðri, 1 1. br. * 1 1. sl.,
bandinu brugðið um prjóninn, 1
1. sl., 1 1. br. * 1 1. á jaðri. 3. umf.
Prjónið sléttar 1. sl. og brugðnar
1. br., bandið prjónast brugðið.
4. umf. 1 1. á jaðri, 1 1. br., * 3 1.
sl., 1 1. af næstu 3 1. er steypt
yfir 2 L, 1 1. br. * 1 1. á jaðri.
Endurtakið 1.—4. umf. og
myndið með því munstrið.
MUNSTUR IV.
1. umf. 1 1. á jaðri * 3 1. teknar
óprjónaðar fram af prjóninum og
garnið látið liggja á réttu, bregð-
ið bandinu um prjóninn (frá
röngu, þannig að bandið snúi rétt
yfir prjóninn frá réttu), 1 1. sl. #
3 1. teknar óprjónaðar eins og
áður, bregðið bandinu um prjón-
inn, 1 1. á jaðri. 2. umf. brugðin,
sleppið lausu böndunum frá
fyrri umf., en prjónið ekki. 3.
umf. sl. 4. umf. br. 5. umf. 1 1. á
jaðri, 1 1. sl. * takið nú lausa
bandið frá 1. umf. og prjónið það
sl. með næstu L, 3 1. teknar óprj.
og garnið látið liggja á réttu,
bregðið bandinu um prjóninn. *
prjónið bandið frá fyrri umf. sl.
með næstu L, 1 1. sl. *, 1 1. á
jaðri. 6.—8. umf. eins og 2.—4.
umf. 9. umf. eins og 1. umf., en
þá er lausa bandið prjónað upp
eins og í 5. umf.
Endurtakið frá 2.—9. umf. og
myndið með því munstrið.
VIKAN 38. tbl.
23