Vikan


Vikan - 19.03.1964, Blaðsíða 12

Vikan - 19.03.1964, Blaðsíða 12
■ ALDARIN NAR 0 Paul Maymont hefur tengt hinn aldagamla draum um Babelsturninn möguleikum 21. aldarinnar. Turnarnir í hugarheimi hans gætu umbylt útliti nútímaborga. Fólk gæti búið þar árum saman án þess að finna hjá sér þörf fyrir að fara út úr tuminum sín- um. Hver turn mundi hýsa 20—50 þús. manns á 40—60 hæðum. Neðanjarðar bílabraut- ir tengja turnana saman innbyrðis og við gömlu París. Þó undarlegt megi virðast hef- ur málarinn Claude Genisson, sem ekki hafði hugmynd um viðleitni Maymonts, fundið upp samskonar turna af listamannsnæmleik sínum og málað þá á meðfylgjandi mynd (til hægri) skv. sínu eigin hugarflugi, að því er hann hélt. Þannig hefur hann af skáldlegu innsæi sýnt í þessu verki sínu það sem á eftir að verða í framtíðinni, skv. hug- mynd Maymonts. Ó Borgarturnarnir yrðu 200—300 m. á hæð hver um sig. Neðan jarðar yrði komið fyrir bílageymsl- umum, einkaverksmiðjum, þar sem íbúar úr turn- inum sjálfum störfuðu og þjónustufyrirtækjum og skrifstofum turnsins. Eftir miðsúlunni liggja raf- magnskaplar, skolpræsi og aðallyftumar. Hver turn mundi hafa sínar eigin götur og verk- smiðjur. Þar væri hægt að búa, án þess að fara nokkru sinni út. Steinsteyptur holur stólpi, 20 m í þvermál, er nokkurs konar mæna turnanna. Hann heldur uppi neti af tengiköplum úr járni, sem mynda beina- grind hverrar byggingar (kaplarnir eru 15 cm á þykkt og til vamar tæringu eru þeir þakktir vatns-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.