Vikan


Vikan - 19.03.1964, Síða 17

Vikan - 19.03.1964, Síða 17
hann um mitti hennar, og hún iðaði aftur í dans- stellingar. Nelson fann, hvernig honum þvarr allur kraftur. Andskotinn, hugsaði hann. Það ætlar þó ekki að líða yfir mig? En þegar hann hafði andað djúpt að sér, fékk hann þróttinn á ný. Hann hóf máls. Hratt. Honum óx hugrekki við að hlusta á sjálfan sig. En hann gat ekki horft á hana, því hann vissi, að hún var að horfa á hann, með andliti, sem var jafn girnilegt og diskur, fullur af heitum, frönskum kartöflum. Hann reyndi að halda henni svolítið frá sér, og um tíma lánaðist honum það. Þangað til hún vissi, í hvaða bekk hann var og að hann orti ljóð. Þá hjúfraði hún sig upp að honum eins og kettlingur. Þau dönsuðu saman í fimm mínútur, og á meðan fræddist Nelson mikið um meyna. Hún var frá San Diego. Hún hafði verið í heimavistarskóla ungfrú Tracy. Og hún var svo sannarlega kvenmaður í lagi. Ef hann væri ekki snar í snúningum, myndi einhver fótboltasparkarinn gleypa hana með húð og hári fyrir augunum á honum. Svo hann bað um stefnumót strax næsta kvöld og fékk það samþykkt. Og þar með var laugardagurinn eyðilagður. Hann dró stólinn sinn að borðinu og reyndi að hugsa, en stóð jafnskjótt á fætur aftur og gekk um gólf, dust- aði rykið af gluggasætinu, settist aftur, og svo koll af kolli. Undir kvöld dró hanri Woddy afsíðis. — Heyrðu, sagði hann. — Væri þér ekki sama, þótt þú notaðir ekki herbergið í kvöld? Ég á stefnumót við skratti lögulega hnátu. — En ef mig langaði nú að fara að sofa? spurði Woody ólundarlega. — Stelstu þá inn í herbergið hans Ackerlys. Hann er í New York. Þetta verður svo sem ekki nema til Eins og í draumi tók hann um mitti hennar og hún iðaffi aftur í dansstellingar. Nelson fann, hvernig honum þvarr allur kraftur. Andskotinn, hugsaSi hann. Það ætlar þó ekki að líða yfir mig? V____________________________________________J tólf. Þær mega ekki vera úti eftir tólf. Og við förum fyrst á bíó og komum ekki fyrr en um hálf tíu. Og klukkan var reyndar ekki nema korter yfir níu, þegar þau komu út úr kvikmyndahúsinu. Og til þess að koma ekki of fljótt heim, bauð Nelson henni upp á hressingu inni í sjoppu. Enn sem komið var, hafði allt geng- ið samkvæmt áætlun. Hún hafði ekki einasta lofað honum að halda í höndina á sér, heldur hafði hún þrýst hönd hans á móti, ekki bara einu sinni, held- ur tvisvar. Hann var svo ruglaður, að hann átti erfitt með að fylgjast með því, sem hún var að hjala: um her- bergissystur hennar, sem var frá New York, um sumardvöl hennar á Hawaii og loks um ástamál Deborah Kerr í myndinni, sem þau höfðu verið að horfa á. Allt í einu datt honum gott ráð í hug: — Fannst þér hún gera rangt? spurði hann snögglega. -— Rangt? spurði Shirley, um leið og hún saltaði frönsku kartöflurnar sínar. — Hvernig getur þú notað orð eins og „rétt“ eða „rangt“, þegar hin eina sanna ást er með í spilinu? Um leið og hún beit í hamborgarann, tók Nelson eftir því, að varaliturinn varð að nokkru eftir á brauðinu. — f raun og veru er ég undrandi, hélt hún áfram, — að heyra skáld spyrja svona smá- borgaralegar spurningar. — Ég sagði ekki, að mér fyndist hún hafa gert rangt, sagði hann, óánægð- ur með þá stefnu, sem málin tóku. —- Mig langaði bara að vita, hvernig þú tækir svona spurningu. Hann tók eftir því, að í hvert sinn, sem Shirley tók til máls, var eins og hún iðaði í sætinu. Honum fannst það kynþokkafull hreyfing. Hann hugsaði sér, hvernig hún myndi þá iða síðar, þegar hann tæki hana í arma sína. Því miður var þetta eina hreyfingin, sem Shirley fannst alls ekki kynþokkafull, en hún réði ekki við þetta. Það var í rauninni sokkabandabeltið, sem olli henni þessum óþægindum. Teinarnir í því meiddu hana, hve lítið sem hún hreyfði sig. Losk stóðst hún þetta ekki lengur, heldur bað hann að hafa sig afsakaða og flýtti sér inn í snyrtiherbergið. Þar reif hún af sér þetta pyndingartæki, l)raut það saman og stakk því í tösku sína. Svo vafði hún sokkafitirnar nið- ur í þétta vafninga rétt ofan við hnén, eins og hún hafði séð hreingerninga- konuna heima gera, og gekk svo aftur fram til félaga síns. Það vottaði fyrir kálfsfótum, en það var lítilfjörlegur ágalli í samanburði við þann létti, að vera laus við sokkabandabeltið. Nelson beið með kápuna hennar. Um leið og hann hjálpaði henni í, lét hún hárið falla niður yfir kragann að aft- an, eins og gullinn foss. Meðan þetta gerðist, störðu öll karlkyns augu í sjoppunni á Shirley Easter. Nelson tók undir handlegg hennar og leiddi hana fram að dyrunum. Þegar þau komu heim í herbergið hans, tók hann af sér bindið og hengdi það á hurðarhúninn. Það var merki til her- bergisfélagans um það, að herbergið væri upptekið. Ef Shirley tók eftir því, lét hún sem hún hefði ekki séð það. Hún hafði breytzt. Hún var allt í einu orðin þögul og hugsandi. Og í fyrsta sinn um þetta kvöld, fannst Nelson erfitt að tala við hana. — Hvernig lízt þér á hreiðrið mitt? spurði hann og kastaði frakkanum sínum í áttina að gluggasætinu, en dró ekki, og frakkinn lenti á gólfinu. — Vel. Mjög vel, svaraði Shirley, sem enn stóð frammi við dyr. — Ég er hrif- in af gluggasætinu. Ég vildi, að við hefðum gluggasæti. Og er arinninn í lagi? — Já, svaraði Nelson. — Ég skal kveikja upp fyrir þig í vetur, þegar fer að kólna. Farðu úr kápunni og láttu fara vel um þig. — Heldurðu, að ég ætti að stanza? spurði hún. — Megið þið taka á móti stúlkum í heimsókn? — Hvað heldurðu, að þetta sé? Munka- klaustur? Nú eyðilagði hún auðvitað allt, þessi stelpa. Með einni asnalegri setningu hafði hún eyðilagt fyrir honum stuðið, sem hann hafði verið í allt kvöldið. Og nú var hún ekki einu sinni neitt kyn- þokkafull. En hann varð samt að ljúka þessu af. Úr því hann var kominn þetta langt, ætlaði hann ekki að hætta hálfnuð- um leik. Með einbeitnina í meitluðum augna- brúnunum skálmaði Nelson til Shirley. — Ég ætla að taka við kápunni. Nú var hann fyrir aftan hana. Milli hennar og dyranna. Hann beygði sig niður að henni og kyssti hana aftan á hálsinn. Hún þeyttist út að glugganum, eins og hún hefði verið stungin.. Þau stóðu augliti til auglits, eins og hnefaleikamenn í hring, og störðu hvort á annað. Hún stóð framan við gluggasætið. Hann gæti flogið á hana. Þá myndi hún missa jafnvægið, og falla ofan í sætið. Það væri kannske ekki vert. Kannske myndi hún jafna sig og setjast sjálf. Hann breytti um aðferð og fleygði sér niður í armstólinn, sem hann stóð hjá. — Hvað kom fyrir? spurði hann. — Hef- ur þú aldrei verið kysst áður? Shirley svaraði ekki strax. Hún breytti ekki heldur um stellingu. Hún stóð eins og júdókappi tilbúinn til að hrinda árás; hafði langt milli fótanna, setti í herðarn- ar, með fingurna glennta. Smám saman var sem hún tæki eftir spennunni í hönd- unum. Hún liðkaði þær einu sinni eða tvisvar og settist svo í gluggasætið, eins og Nelson hafði spáð fyrir um. — Jú, víst hef ég verið kysst, sagði hún, og tyllti sér varlega á brún sætisins. Framhald á bls. 43. VIKAN 12. tbl. —

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.