Vikan


Vikan - 19.03.1964, Síða 40

Vikan - 19.03.1964, Síða 40
Myrkrið var að skella á. Him- inninn, sem ekki var lengur gull- inn af sólsetrinu ,hafði nú tek- ið á sig dimmbiáan lit, og bjarg- ið, sem gnæfði hátt uppi yfir Marian, var dimmt og ógnvekj- andi. Það féll óðum að — en mun- urinn á flóði og fjöru þarna á ströndinni var margir margi|r metrar — og öldurnar teygðu sig upp á klettasylluna, þar sem hún stóð og þrýsti sér af fremsta megni upp að snarbröttu og hálu berginu, meðan hún horfði eft- irvæntingarfull upp á fjallsbrún- ina. En hún gat ekki komið auga á Paul. Brátt mundi flæða yfir sylluna og öldurnar soga hana burt. — Þú verður að hafast við hér á syllunni, vina mín, hafði hann sagt. -— Það er ekkert nema sjálfsmorðstilraun að ætla sér að klifra hér upp án þess að hafa taug. En ég verð að reyna það. Einhvern veginn verð ég að ná í hjálp! En hún var viss um, að hon- um mundi ekki takast það. Eng- um gat heppnazt þetta. Ekki án reipis og fjallastígvéla eða nokk- urrar æfingar. En ekkert af þessu hafði Paul. Hún horfði upp eft- ir hrjúfum klettaveggnum og ótt- aðist að þessi tilraun hans hefði mistekizt. — Paul! Paul! Rödd hennar var hás af hræðslu. — Paul... Pauli... Paul... Hrópin bergmál- uðu í klettunum í kring. Ekkert nema bergmál. Ekkert annað hljóð og engin hreyfing. Meira að segja mávarnir virtust hafa yfirgefið hana. Marian fann blóðbragð á tungu sér, en hún gerði sér ekki ljóst, að hún hafði bitið sig til hlóðs í vörina. Hún fann engan sárs- auka. Það var eins og hún væri dofin. Fingurnir voru sárir og hnén hrufluð eftir að klifra upp á sylluna, en skelfingin í huga hennar yfirgnæfði sársaukann. Líkami hennar var eins og dauð- ur. Það var aðeins heilinn, sem var lifandi og hann sagði henni að dauðinn væri á næstu grös- um.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.