Vikan - 17.12.1964, Qupperneq 26
Krúsjeff fæddist í Kalinovka í Úkraníu 1894, og gekk í
flokkinn 1918 og vann sér þar fljótt hylli og völd þar til
hann varð einn nónasti samstarfsmaður Stalins.
Nikita Krúsjeff heyrir til sögunni, hvort sem hann er lif-
andi eða dauður; tími hans er liðinn. Með honum kom hláka
og hressandi andblær í alþjóðastjórnmálin og álit hans fór
vaxandi, að minnsta kosti á Vesturlöndum. Mörgum fannst
framan af valdaskeiði hans sem hann væri til alls vís og
stundum þótti hann líkari trúð en ábyrgum leiðtoga stór-
veldis. Krúsjeff var maður víðreistur og sá sjálfur á ferð-
um sínum, að kapítalisminn var hreint ekki svo bölvaður.
Eftir því sem stirðnaði sambúð hans við þá gulu í Kína,
urðu árekstrar hans færri við vestrænar þjóðir. Þegar
Kennedy hafði sett úrslitakosti í Kúbumálinu haustið 1962,
var það á valdi Krúsjeffs, hvort allt færi í bál og brand.
Hann slakaði til; valdi þann kostinn sem sjaldgæft eða
dæmafátt er að einvaldur velji. Af þeim ástæðum og ýms-
um öðrum, var það að minnsta kosti ekki fagnaðarefni á
Vesturlöndum, þegar honum var bolað frá og margir helztu
oddvitar Sovétríkjanna í Evrópu voru sárreiðir yfir þeim
barnalegu aðferðum, sem jafnan eru viðhafðar við vald-
hafaskipti austur þar.
Þegar Jósef Stalin dó fyrrihluta árs 1953, var talað um
sjö menn, sem allir komu til mála sem eftirmenn hans,
Molotov, Beria, Malenkov, Bulganin, Kaganovits, Mikojan
og Krúsjeff. Þá varð Malenkov hlutskarpastur, og það er
ekki fyrr en löngu síðar að það fréttist að Beria var tek-
inn af lífi. Nokkru síðar verður Malenkov svo að víkja
fyrir Bulganin. Arið 1957 reyndu „félagar" Krúsjeffs að reka
hann úr flokksstjórninni, en hann komst að því á síðustu
stundu og tókst að ná auknum völdum. Eitt hans fyrsta verk
var þá að reka Molotov, Malenkov og Kaganovits, og
snemma ársins 1958 fellir hann Bulganin úr stóli. Eftir
það var Krúsjeff einvaldur í sessi, þar til nú í haust, að til-
kynnt var að „Krúsjeff hefði verið veitt lausn frá em-
bætti að eigin ósk, vegna hins háa aldurs og hnignandi
heislu."
Hér sjást vinirnir og félagarnir með átrúnaðargoði sínu, Jósef Stalin, þeim Eyjólfi
sem aldrei hresstist. Lengst til vinstri er Mikojan, þá Krúsjeff og Stalin fremstur.
Við hlið hans í hvítum fötum er Malenkov, síðan Beria og Molotov. Allir meira
og minna dauðir.
26
VIKAN 51. tbl,