Vikan - 17.12.1964, Síða 29
s
Í'X p
í Skál! Skál!
AS þessu sinni er myndin
tekin í Austurríki og iæknir
Krúsjeffs hafði bannað hon-
um að smakka vín heiisunn-
ar vegna. En þá drakk hann
bara sódavatn og lét á engu
bera.
Krúsjeff var mikill sam-
kvæmismaður og góður leik-
ari. Hér er hann staddur í
Frakklandi til að ræða af-
vopnun og bann við kjarn-
orkuvopnum, og sveiflar öxi
í kringum sig. Það var áður
en upp komst um banda-
rísku njósnaflugvélina, sem
skotin var niður í Rússlandi.
Krúsjeff ferðaðist meira en nokkur annar valdhafi í Rússlandi. Hann var
á sífelldum spretti milli leiðtoga í Járntjaldslöndunum, eða innanlands allt
frá villu sinni við Svartahaf og norður í Síberíu. Hér er hann á þeim norð-
lægu slóðum og er hlýlega búinn.
Síðasta skrúðgangan. — Myndin er tekin við minnismerki Lenins á Rauða
torginu á byltingarafmælinu í nóvember 1963. Krúsjeff er lengst til vinstri,
þá Leonid Bresjnev, Anastas Mikoyan og Alexej Kosygin.
Félagi Bresjnev, hvað nú?
Þegar þetta er skrifað sitja þeir saman að krásunum, félagarnir Kosygin
og Bresjnev. Hvorum heppnast að gera hinn að rafveitustjóra í Síberíu er
ekki vitað enn. Allt bendir til þess, að stefnu Krúsjeffs, um friðsamlega sam-
búð við Vesturlönd, verði haldið áfram. l)