Vikan - 17.12.1964, Blaðsíða 36
— en hún hélt á dollarnum sín-
nm í öðrum lófanum og farmið-
anum í hinni, og Hermann tók
við miðanum og sagði: „Komdu
þér aftur i vagninn.“ Og litla
telpan var að flýta sér aftur í
vagninn, þegar hún hrasaði um
annan stafinn hennar Cornfelter
gömlu og skall kylliflöt, en doll-
arsseðilinn þeyttist úr lófa henn-
ar, dragsúgurinn náði tökuin á
honum og bar hann út um opinn
glugga, þó að farþegarnir reyndu
að grípa liann. Litla stúlkan
grét hástöfum og Hermann stöðv-
aði vagninn. En dollaraseðillinn
var horfinn, enda ekki við öðru
að búast, eins og umferðin var
og mikil mannþröng á götun-
um, þar sem jólaösin var í al-
gleymingi.
Cornfelter gamla reisti telp-
una á fætur. „Hættu þessu
grenji, stelpa,“ sagði hún. „Það
er ekki eins og þú hafir meitt
þig.“
„Dollarinn minn,“ mælti telp-
an og grét sáran. „Ég átti að
kaupa jólagjöf handa mér fyrir
hann.“
„Það munaði engu að ég hefði
hendur á honum,“ sagði maður
nokkur á gráum rykfrakká.
„Hann fauk á milli fingranna
á mér.“
„Ég átti að kaupa mér jóla-
gjöf fyrir hann,“ grét telpan
með ekka. „Ég átti hann....“
„Svona, berðu þig að þegja,“
sagði gamla konan. „Það vildi
svo lieppilega til, að seðillinn
fauk i keltu mína. Hérna er
hann, og þegiðu nú.“
Herinann, sem fylgdist með
öllu i speglinum, sá greinilega
að gamla konan dró velktan
seðilinn upp úr aurapyngju
sinni og fékk telpunni. Hann var
í þann veginn að aka af stað,
en þetta kom lionum svo á ó-
vart, að hann hemlaði. Litla
stúlkan tók við seðlinum, fegn-
ari en orð fá lýst og hljóp aft-
ur í vagninn.
„Ekki held ég að liún liefði
farið úr kjálkaliðnum, þó að
hún hefði þakkað fyrir sig,
kindin,“ sagði gamla konan við
alla og engan.
Hermann ók enn af stað. Þá
gerðist það, að töfralæknirinn
reis á fætur, og voru þá eftir
tvær stöðvar þangað, sem hann
var vanur að fara úr vagninum.
Hann studdist með sætunum
þangað, sem gamla konan sat og
nam þar staðar. „Þetta var fal-
lega gert, frú,“ heyrði Hermann
liann segja við gömlu konuna.
„En það vill svo til, að það var
ég, sein greip seðilinn á flug-
inu.“
Hermann hemlaði enn, og
gamla konan hreytti út úr sér.
„Það áttuð þér að segja strax.“
„Það er einmitt það, sem ég
er að segja,“ mælti töfralækn-
irinn góðlátlega um leið og hann
tróð hendinni ofan í vasa á
buxunum, sem skárust inn í
ístruna á honum, og dró saman-
brotinn dollaraseðil með erfið-
ismunum upp úr honum og rétti
gömlu konunni.
Og enn hélt Hermann af stað.
„Þvilíkir kjánar“, tautaði liann
fyrir munni sér.
Töfralæknirinn tók sér sæti
úti við miðdyrnar, rjóður í vöng-
um af ánægju yfir góðverki sinu.
Maðurinn á gráa rykfrakkanum
mjakaði sér út að dyrunum, því
að hann ætlaði úr vagninum á
næstu stöð. Hermann sá í spegl-
inum að hann virti fyrir sér
næstum gatslitna peysuna, sem
ekki náði að hylja fituvömb
töfralæknisins, og hann varð
ekki lítið undrandi, þegar hann
heyrði hann segja: „Ég er
hræddur um að það sé eitthvað
saman við það, að þér hafið
gripið dollarseðilinn, maður
minn. Ég fann hann nefnilega
sjálfur á vagngólfinu. Gerið svo
vel.“ Hann sagði þetta lágt, eins
og hann skammaðist sín fyrir
að hafa leynt fundinum, og um
leið laumaði hann seðli, vand-
lega samanbrotnum svo að sem
minnst færi fyrir lionum, í lófa
töfralæknisins.
„Ég verð víst að taka yður
trúanlegan,“ varð töfralæknin-
um. að orði. Og nú roðnaði hann
upp í liársrætur.
Ilermann stöðvaði vagninn
móts við stöðvarmerkið. En
hann opnaði samt ekki dyrnar,
heldur tók til máls við farþeg-
ana. „Hlustið nú á mig, góðir
hálsar.“ Og hann var staðráð-
inn í að hinda endi á allan þenn-
an leikaraskap og segja mannin-
um á gráa rykfrakkanum það í
allra álieyrn, að sjálfur liefði
liann séð það, þegar dollarseðill-
inn fauk út um opinn vagn-
gluggann. Hann varð því ekki
lítið undrandi, þegar Iiann
heyrði sjálfan sig segja þess í
stað: „Þessi dollarseðill lá hérna
við fæturnar á mér; hann hlýtur
að hafa fokið liingað."
Nú var það maðurinn á gráa
rykfrakkanum, sem roðnaði.
Hann tók þó við seðlinum sera
Hermann rétti að bon.um.
„Þakka yður fyrir,“ sagði hann
lágum rómi.
„Ekkert að þakka.“ Hermann
brosti ástúðlega og opnaði
dyrnar.
Þetta sama kvöld keypti hann
M tr Rapid 0
RAPID ER NY AÐFERÐ
SEM GERIR ÖLLUM KLEIFT
AÐ TAKA GÓÐAR MYNDIR
v Auðvitoð Agfa Rdpid
Þér leggið Rapid-kasettuna á
myndavélina, lokiS henni, snú-
iS þrisvar sinnum, myndavélin
er tilbúin til notkunar.
gg — VIKAN 51. tbl.