Vikan - 17.12.1964, Síða 45
iSunfíe&K
APPELSÍN
SÍTRÖN
L I M E
Svalandi - ómissandi
á hverju heimili
á lestarvörðinn. Tatiana, sagði
hann. — Hafðu ekki óhyggjur af
neinu. Farðu í rúmið, þegar mað-
urinn er farinn. Opnaðu ekki dyrn-
ar, nema þú vitir fyrir víst, að það
er ég. Eg ætla að vaka f nótt og
vera á verði. Kannske verður þetta
auðveldara á morgun. Eg ætla að
gera mínar áætlanir með Kerim.
Hann er góður maður.
Lestarvörðurinn barði að dyrum.
Bond hleypti honum inn og fór
fram á ganginn. Kerim stóð þarna
ennþá og horfði út. Lestin hafði
nú aukið hraðann og þaut í gegn-
um nóttina. Kerim hreyfði sig ekki,
en augu hans i spegli gluggans
voru vökul.
Bond sagði honum, hvað fram
hafði farið. Það var ekki auðvelt
að útskýra fyrir Kerim, hvers vegna
hann treysli stúlkunni eins og hann
gerði. Hann horfði á hæðnisvipr-
urnar kringum stóra munninn í
glugganum, þegar hann reyndi að
lýsa þvi, sem hann hefði lesið í
augum hennar og hvað eðlisávís-
un hans segði honum.
Kerim andvarpaði í uppgjöf: —
James, sagði hann. — Nú ert þú
yfirmaðurinn. Þetta er þinn hluti
framkvæmdarinnar. Við höfum
þegar rifizt nóg um flest af þess-
um hlutum — hættuna af þvi að
fara með lest, möguleikana á því
að koma vélinni heim í diplomata-
tösku. Einlægni þessarar stúlku eða
undirferli. Það lítur svo sannarlega
út fyrir, að hún hafi gefizt upp
fyrir þér án skilmála. En þú verð-
ur að viðurkenna, að þú hefur líka
gefizt upp fyrir henni. Kannske að-
eins að nokkrum hluta, en þú hefur
ákveðið að treysta henni. Þegar ég
talaði við M í síma í morgun, sagð-
ist hann myndi standa með ákvörð-
un þinni. Hann hefur látið þig um
þetta. Þá verður það þannig. En
hann vissi ekki að við myndum
hafa fylgd þriggja MGB manna.
Það vissum við ekki heldur. Og ég
held að það myndi hafa breytt
öllum okkar sjónarmiðum. Já?
— Já.
— Þá er ekki um annað að ræða
en að losna við þessa þrjá menn.
Koma þeim úr lestinni. Guð má
vita hvers vegna þeir eru hér. Eg
trúi ekki á tilviljunina fremur en
þú. En eitt er víst. Við verðum
ekki í sömu lest og þessir menn.
Rétt?
- Rétt.
— Láttu mig þá um það, að
minnsta kosti ( nótt. V(ð erum
ennþá í mínu landi, og ég á hér
nokkur ítök. Ég hef ekki efni á að
drepa þá. Lestin myndi tefjast. Þú
og stúlkan gætuð flækzt í málið.
En ég skal gera eitthvað. Tveir
af þeim hafa kojur. Þessi með yfir-
skeggið og litlu pípuna er við hlið-
ina á þér — hérna númer sex.
Hann hnykkti höfðinu aftur á bak.
— Hann ferðast á þýzku vegabréfi
undir nafninu Melchior Benz, sölu-
maður. Sá dökki, Armeniumaður-
inn, býr á númer tólf. Hann hefur
líka þýzkt vegabréf. Kurt Goldfarb,
'/W\
Austurstræti 22, sími 11595 - Vesturveri, Aðalstræti 6, sími 11575.
VIKAN 51. tl>L —
HOLMEGAARDS-GLASVÆRK
G. B. Silffurbúðin
Laugaveg 55 — Sfmi 11066