Vikan

Issue

Vikan - 11.03.1965, Page 4

Vikan - 11.03.1965, Page 4
Framhaldssagan Spumingin hékk á milli þeirra í þöglu, björtu herberginu. Svo andvarpaði Noessler lítið eitt og gekk út að glugganum, þar sem Alparnir teygðu sig fyrir utan. Hann stóð þögull eitt andartak: — Fyrirgefið mér. — Þetta er allt í lagi, sagði Julie fljótmælt. — En hvernig vissuð þér það? Hvers vegna komið þér með svona spurningu? — Frú Thorpe, ef ég segi yður svolítið, viljið þér þá lofa að láta það ekki fara lengra? Hann þagnaði og dró djúpt andann. — Annars getur kannske farið illa fyrir okkur. Hann sneri sér frá glugganum og sagði: — Sjáið þér til. Við leyfum að vissir hlut- ir fari fram á þessu hóteli. Yður er náttúrlega kunnugt um ástandið í vissum hlutum Evrópu. Þar er mikil þjáning. Lokuð landamæri. Illa meðfarið og hrætt fólk. Og þetta fólk vill halda áfram að lifa. Vinir þeirra og aðstandendur vilja gjarna ná þeim. Skiljið þér mig, Madame? — Ég held, að ég sé farin að skilja. Hún sat spennt og hlust- aði með lýsandi augum. — Og þess vegna hefur auð- vitað myndazt nokkurskonar svartur markaður, þar sem verzl- að er með þetta fólk. Hann brosti. — í rauninni ætti hann ekki að kallast svartur. Heldur hvítur. Gut. Þetta eru nafnlausir sendi- boðar, sem hætta lífi sínu til að smygla fólki út úr þessum óham- ingjusömu löndum. Og hvaða land er það, sem liggur upp að þessum landamærum? Land, þar sem auðvelt er að gera ýmislegt. Land, sem á banka, sem ekki setja fram neinar spurningar. Land, sem á fjallasvæði og staði þar sem hægt er að fara huldu höfði? Sviss að sjálfsögðu. Skiljið þér nú, Madame? — Þér meinið sem sagt að Alpenstadt sé miðpunktur — miðstöð. — Nei, sagði hann fljótmæltur. — Svo mikið vil ég ekki taka upp í mig. En þar sem málefnið er gott... Þá lokum við augun- um fyrir vissum hlutum. Við fylgjumst ekki með því, hvað gestir okkar gera. Ef einhver vildi halda manni leyndum í her- berginu sínu, stundarkorn, þá tökum við ekki eftir því. Við ger- um ekkert, sem er ólöglegt, en það kemur okkur ekki við ... f yðar landi var til neðanjarðar- björgunarstofnun fyrir stroku- þræla, var það ekki? Þetta er ekki svo mjög fróbrugðið. Við erum óopinber stöð á þessari flóttamannabraut neðanjarðar. — Ég skil, sagði Julie. — Og... það var sem sagt þess vegna, sem tengdamóðir mín kom hingað? Hún var komin í samband við einn hópanna, til að reyna að finna son sinn? -—- Já, ég er viss um það. Það fannst á henni. Framkoma henn- ar var mjög táknræn. Hann kink- aði kolli, hátíðlega. — Sjáið þér til, Madame. Við höldum okkur sjálfum alveg fyrir utan þetta, en við getum ekki komizt hjá því, að vita að það er stofnað til vissra sambanda. Hann þagnaði. Augnaráð hans var milt og dap- urlegt. — Hann var eiginmaður yðar? Var það ekki? — Jú, hann var maðurinn minn. — Svo sorglegt. Þá undra ég mig enn meira á því, að hún skyldi haga sér eins og hún gerði. En þær brellur, sem henni duttu í hug! Hún gekk meira að segja svo langt, að reyna að múta fólki. Noessler hristi höfuðið. — En sú kona! Julie hallaði sér spennt fram á við í stólnum. — Herra Noessl- er, það bjuggu nokkrar mann- eskjur í kofa — stuttur, feitur maður, kona og tvö börn. Voru það barnabörn frú Thorpe? — Barnabörn? Hann var skiln- ingslaus á svipinn. -— Haldið þér að þessi börn hafi verið börn mannsins yðar, Madame? Reyndi tengdamóðir yðar að telja yður trú um það? — Ó, nei, sagði Julie. — Þvert á móti, hún neitaði því alveg ákveðið. Einmitt þess vegna var ég viss í minni sök og drengur- inn líktist. .. —- Nei, greip Noessler fram í fyrir henni og hristi ákafur höf- uðið. — Ég er viss um að þannig var það ekki, Madame. Þessi börn og þessi stutti, feiti maður og konan, þau hafa verið hér áður. Ég er viss um, að þau eru aðeins milliliður. Og börnin voru með sem dulargervi, til þess að þetta liti út eins og venjuleg fjölskylda í fríi í Ölpunum. Sjáið þér til, hélt Noessler mjög vin- gjarnlega áfram, — það var það, sem ég gat ekki skilið. Ef maður yðar hefði gifzt og átt börn með annarri — þá hefði ég getað skilið, að frú Thorpe hefði vilj- að losna við yður. En þar sem sú var ekki raunin, var ekki hægt að búast við að það væri af öðru en hún hataði yður ... Eða vegna þess, að maðurinn yðar hataði yður ... — Það get ég ekki ímyndað mér að hann geri, sagði Julie með hálfkæfðri rödd. — Ég get ekki skilið, hversvegna hann ætti að gera það. Og hvað henni viðkem- ur ... Þá býst ég við, að hún hafi í rauninni alltaf hatað mig. Henni fannst ég ekki nógu fín. Ég gæti trúað hverju sem er um hana. — Hún var frámunalega áköf í því að losna við yður frá Alpen- stadt, sagði herra Noessler. - Strax sama dag kom hún og reyndi að fá mig til að hjálpa sér við að hrekja yður héðan burt. Hún stakk upp á því að við skild- um falsa símskeyti og síðan ætlaði hún að útbúa smáslys ... Julie hélt krampataki í stól- armana og leið bölvanlega. Svif- brautin, sem nam staðar ... Mað- urinn við brúna, ýtti í bakið á henni með lurknum sínum ... — Hún vildi ekki að þér dæj- uð, sagði Noessler. — Vegna rétt- lætisins verð ég að láta þess get ið, að hún vildi ekki að þér dæj- uð. Hún ætlaði aðeins að hræða yður, sagði hann. Hún var mjög glöð yfir þessu atviki með fjósa- manninn. Kannske að hún hafi mútað honum? Hver veit? Ég veit bara, að hún var bálreið út í mig, vegna þess að ég vildi ekki hjálpa henni. Ég bað alltaf til guðs að ekkert myndi henda yð- ur, frú Thorpe. Julie reis á fætur, tók um hönd hans og hélt henni eitt andartak. — Þér eruð heillandi kona, frú Thorpe. Eitt andartak leit hann beint í augu hennar. Svo leit hann undan. — En hvað sem þetta allt saman hefur nú átt að þýða, þá finnst mér að þér ætt- uð ekki að gefast upp. Þessi fyrstu sambönd þeirra í gegnum síma, eru táknræn vinnubrögð. Ég hef nægilega mikil sambönd í flugfélaginu til að geta komið því í kring að nafn yðar standi efst á biðlistanum, dag frá degi, þótt þér ekki notið það. -—• Og má ég vera hér kyrr? Er ég yður ekki tiT óþæginda? — Að sjálfsögðu ekki, Ma- dame. Að vísu erum við farnir að fækka starfsliði. Starfstíma bilið er mjög stutt hérna uppi í fjöllunum og regnið hrekur menn fjótt í burtu. En fyrir yður höf- um við alltaf möguleika. Það færðist dapurlegur svipur yfir fallegt, karmannlegt andlit hans. — Þér voruð mjög ástfangin af manni yðar, frú Thorpe ... Þetta var ekki beinlínis spurning, held- ur öllu fremur staðhæfing. Julie kinkaði kolli: — Já, ég var það og er það enn. — Einmitt! Hann hló stuttara- lega. — Gott. Og hversvegna ekki? Þá er bara um að gera að vera þolinmóð. Hann brosti, og nú var meðaumkun í brosi hans. — Fólkið er undarlegt, en þeir eru furðulegir þessir björgunar- menn. Þeir eru svo varir um sig. Þeir vilja gera hlutina á sinn hátt og stundum gera þeir þá mjög hægt. En þegar þeir hafa gefið sig fram, er orrustan unnin til hálfs. Nú var hún ekki lengur ein- mana í Alpenstadt. Noessler hafði gefið henni Russel Thorpe. Ekki skuggaveru, ekki aumkun- arverða raggeit, sem var yfir- ^ VIKAN 10. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.