Vikan - 29.04.1965, Qupperneq 16
FRAMHAIDS
SAGAEFTIR
IANFLEMING
Elj^KARÉTTUR Á ÍSLANDI:
VIKAf^
pensilinn aftur í naglalakksglasið ó
borðinu við hliðina. Nokkra þuml-'
unga fyrir framan augu hennar var
sterklegur siónauki ó þrífæti og nið-
ur úr sjónaukanum hékk hljóðnemi,
en úr honum lógu vírar í kassa,
sem var ó stærð við ferðagrammó-
fón, undir borðinu. Fró kassanum
lágu aðrar leiðslur að gljáfægðu
innanhússloftnet á hliðarborði uppi
við vegginn.
Buxurnar strengdust um hana,
þegar hún hallaði sér aftur áfram
og beindi augunum að sjónaukan-
um. — Dró drottningu og kóng. Flef-
ur fengið kanöstu í droftningum.
Getur gert aðra með kóngum ef
hann notar jóker. Kastar sjöi. FHún
slökkti á hljóðnemanum.
Meðan hún horfði og talaði, gekk
Bond hljóðlega yfir gólfið þar til
hann var beint fyrir aftan hana.
Þar var stóll. Hann steig varlega
upp á hann og bað þess, að það
brakaði ekki í honum. Nú var hann
kominn nógu hátt til að ná öllu í
eina mynd. Hann lagði augað að
leitaranum. Já, það var í beinni
röð, höfuð stúlkunnar, útlínur sjón-
aukans, hljóðneminn, og tuttugu
— Ég ætla ekkert að gera hér.
Það getur verið, að ég stríði Gold-
finger lítið eitt. Vertu nú góða
stúlkan og færðu þig og leyfðu
mér að sjá.
Hann settist í sæti stúlkunnar og
leit í sjónaukann. Spilið hélt áfram
eins og venjulega. Goldfinger lét
ekki á sér sjá nein merki þess,
að sambandið hefði rofnað.
— Verður hann áhyggjufullur ef
hann fær engar fréttir? Heldurðu
að hann hætti að spila?
Hún sagði 'hikandi: — Það hefur
komið fyrir áður, þegar öryggi hef-
ur bilað eða eitthvað svoleiðis.
Hann bíður bara eftir því, að ég
komi því í lag aftur.
Bond brosti við henni: — Jæja,
við skulum steikja hann svolítið.
Fáðu þér sígarettu og slappaðu af.
Hann rétti fram pakka af Chester-
field sígarettum. Hún þáði. — Þar
að auki er kominn tími til að þú
lakkir neglurnar á hægri hendinni.
Dauft bros færðist um varir hennar.
— Hve lengi varstu búinn að
vera þarna? Mér dauðbrá.
— Það var ekki lengi, en mér
Nýir lesendur geta byrjað hér:
Bond var staddur á Miami, á
leið heim eftir að hafa lokið heldur
hvimleiðu starfi vestan hafs við að
uppræta eiturlyfjahring, sem teygt
hafði klær sínar til Englands. Flug-
vél hans frá Miami til New York
seinkar um hálfan sólahring, og þá
gefur sig á tal við hann maður að
nafni Du Pont, sem hafði setið við
hlið hans er hann sprengdi spila-
víti í Frakklandi, og býður honum
að kosta dvöl hans í Miami. Bond
tekur boðinu og þegar þeir eru
setztir við borð í veitingahúsi, seg-
ir Du Pont honum frá því, að hann
hafi á viku tapað 25 þúsund doll-
urum í tveggja manna canasta —
á dularfullan hátt. Það verður úr,
að Bond tekur að sér að koma upp
um spilasvindl Goldfingers, en sér
þegar í stað að hann notar engar
venjulegar aðferðir. En þegar hon-
um verður Ijóst að Goldfinger snýr
alltaf að hótelinu, leggur hann sam-
an tvo og tvo og fær út fjóra.
Þegar lyftan var farin upp aftur
gekk hann að stiganum og gekk
rólega upp á aðra hæð. Innrétting
ánnarrai- hæðar var nákvæmlega
eins og á tólftu hæð. (búð 200 var
þar sem hann hafði gert ráð fyrir
henni. Þarna var engan að sjá.
Hann tók upp allsherjarlykilinn og
Jg VIKAN 17. tbl,
opnaði dyrnar hljóðlaust og lokaði
þeim á eftir sér. I litlu forstofunni
héngu regnkápa, Ijós kamelullar-
frakki og fölgrár, linur hattur á
snaga. Bond tók öruggu taki um
myndavélina í hægri hendi, hélt
henni fast upp að andlitinu og
reyndi varlega á dyrnar á setu-
stofunni. Þær voru ekki læstar. Bond
opnaði þær ofurvarlega.
Jafnvel áður en hann sá það
sem hann bjóst við að sjá, heyrði
hann röddina. Það var lág, aðlað-
andi stúlkurödd; ensk rödd. Hún
sagði: — Dró fimm og fjarka, hef-
ur fengið heila kanöstu í fimmum
og tveimur tvistum, ætlar að kasta
fjarka. Hefur þar að auki tvennd
af kóngum, gosum, níum og sjöum.
Bond renndi sér inn í herbergið.
Stúlkan sat á tveimur sessum upp
á borði, sem hafði verið dregið
næstum upp að opnum svalardyr-
unum. Hún þurfti á sessunum að
halda til að vera nægilega hátt.
Það var nú eins heitt og það gat
orðið þennan daginn, og hún var
allsnakin nema hvað hún var í
svörtum brjóstahaldara og litlum,
svörtum silkibuxum. Hún sveiflaði
fótunum eins og henni leiddist.
Hún hafði rétt lokið við að lakka
neglurnar á vinstri hendi. Nú teygði
hún úr hendinni framfyrir sig til
að athuga árangurinn. Hún rétti
hægri höndina til hliðar og setti
metrum framar, mennirnir tveir við
borðið og spil Du Ponts fyrir fram-
an hann. Bond sá hvaða spil voru
rauð og hvaða spil voru svört. Hann
smellti af.
Stúlkan rak upp lágt óp. Hún
sneri sér snöggt við. Bond steig
niður af stólnum. — Góðan dag.
— Hver ert þú? Hvað vilt þú?
Stúlkan greip um munninn. Augu
hennar æptu á hann.
— Ég hef fengið það, sem ég
vildi. Hafðu ekki áhyggjur. Það er
allt búið. Ég heiti Bond. James
Bond.
Bond lagði myndavélina varlega
frá sér á stólinn og gekk inn í ilm-
hring stúlkunnar. Hún var mjög
fögur. Hún hafði Ijósguliið hár. Það
féll í þykkum bylgjum niður um
axlir hennar, síðara en tízkan sam-
þykkti. Augu hennar voru djúpblá
og fóru vel við örlítið sólbrennt
hörundið, munnur hennar var
frekjulegur og örlátur og myndi
verða fallegur í brosi.
Hún stóð upp og tók höndina frá
munninum. Hún var há, sennilega
175—178, og fætur hennar og hand-
leggir voru sterklegir, eins og hún
væri sundkona. Brjóst hennar þrýst-
ust út í svart silki brjóstahaldar-
ans.
Nokkur hluti óttans var horfinn
úr augum hennar. Hún sagði lágri
röddú: — Hvað ætlarðu að gera?
þykir leitt að ég skyldi gera þér
bilt við. En Goldfinger hefur verið
að gera vesalings Du Pont lífið leitt
í heila viku.
— Já, sagði hún og dró það við
sig. — Ég býst við að þetta sé frem-
ur kvikindislegt, en er hann ekki
ógurlega ríkur?
— Þú skalt ekki hafa miklar
áhyggjur af Du Pont, en það gæti
verið, að Goldfinger veldi einhvern,
sem ekki hefur efni á því, og hann
er margmilljóneri sjálfur. Hvers-
vegna er hann að þessu? Hann
getur ekki snúið sér við fyrir pen-
ingum.
Það færðist líf í andlit hennar.
— Ég skil það bara alls ekki. Þetta
er einskonar brjálæði hjá honum
að græða peninga. Hann getur ekki
látið það ógert. Ég hef spurt hann
hversvegna það sé, og allt sem
hann segir er það, að það sé brjál-
æði að græða ekki peninga, þegar
tækifæri gefst. Og hann er alltaf
að gera það sama, að finna sér
tækifæri. Þegar hann talaði við mig
um að gera þetta, hún veifaði með
sígarettunni í áttina að sjónaukan-
um — og ég spurði hann hvers-
vegna í ósköpunum hann væri að
þessu, tæki þessa heimskulegu á-
hættu, svaraði hann bara: Það er
lexía númer tvö. Þegar tækifæri
gefst ekki, verður maður að búa
sér það til.