Vikan - 29.04.1965, Blaðsíða 49
kunna að játa og neita á réttum
stað. Þegar þið vitið, að eitthvað
stendur til visst lcvöld, getið þið
hæglega komið því þannig fyrir,
að lesa námsefni þess dags ein-
hvern daganna á undan. að mestu
leyti, því að mjög erfitt er að ná
því upp, sem úr fellur.
Afstaða ykkar til námsins hef-
ur líka mikla þýðingu. Allt, sem
gert er með glöðu geði, verður
auðvelt, hvort sem það er nám
eða vinna. Gerið ykkur ljóst, að
þó að þið hættuð í skóla, þyrft-
uð þið líka að leggja mikið að
ykkur — engin vinna er fyrir-
hafnarlaus. Svo get ég líka full-
vissað ykkur um, að það er ekki
til nein leiðinleg námsgrein —
aðeins námsgreinar, sem þið
kunnið vel eða illa. Reynið
t.d. að leggja ykkur sérstaklega
fram við leiðinlegasta fagið og
sjáið hvernig fer. Þegar þið kunn-
ið það orðið vel og hafið náð
tökum á því, verður það áreið-
anlegasta skemmtilegasta náms-
greinin í ykkar augum. *
VIEAN U. tbL