Vikan - 29.04.1965, Síða 41
gleði. En hann leitaði beint til
Jeff með óbrigðulli ratvísi karl-
dýrs í leit að maka sínum.
— Jeff, heyrðirðu þetta! Við
eigum eftir heila nótt! Þetta er
eins og úr ævintýrum H. C. And-
ersens. Ég sá þjóninn með bíl-
inn minn niðri á hafnarbakkan-
um, svo að ef þú ert tilbúin,
getum við farið undir eins....
Hann snöggþagnaði, þegar
hann tók eftir svipnum á Jeff og
föður hennar. Hann mundi aldrei
eftir þessum hæverska, gamla
manni, og það hvarflaði aldrei
að honum, að hann gæti lagt
stein í götu þeirra.
— Ég vona, Halden, að þér haf-
ið ekkert á móti því, að ég fari
með Jeff í ökuferð, sagði hann
kurteislega.
— Ég var sjálfur að reyna að
mæla mér mót við þessa ungu
stúlku, sagði Halden hikandi. —
En mér skilst að hún afgreiði
pantanir í þeirri röð, sem þær
berast, og að þér hafið orðið á
undan. Ég þarf hvort sem er að
hitta nokkra gamla kunningja.
Ég sting upp á því að við hitt-
umst klukkan níu — mundi það
henta yður? Eigum við þá að
hittast við portúgölsku bryggj-
una, rétt hjá gömlu fallbyssunni.
Ef ég man rétt, var það afskap-
lega vinsæll staður, og mörgum
plantekrustarfsmönnunum hefur
fundizt viðeigandi að eiga þar
rómantíska fundi. Samþykkt?
Jæja þá, au revoir •— eða eins
og þeir segja hérna: Slamat djal-
an.
Þetta var í fyrsta sinni, sem
Anders heyrði þennan gamla
mann segja svona mörg orð, og
andlit hans stirðnaði af undrun.
Það var einmitt það, sem Halden
vonaðist til, og hann endurgalt
undrunarsvip Anders með góð-
látlegu brosi. Jeff leit frá einum
á annan og rak upp hlátur. Þetta
var eins og sitja á fyrsta bekk
og horfa á gamanleik.
Slamat — Slamat tinggal svar-
aði Anders ósjálfrátt, Jeff þreif
í handlegg hans og dró hann
burt.
— Ég vissi ekki, að faðir þinn
skildi malajisku. Hvernig stend-
ur á því, að hann þekkir þennan
stað hérna svona vel? Hefur hann
verið í Indíum áður? heyrði
Halden hann hvísla, um leið og
þau héldu í átt að landganginum.
Hann horfði á eftir þeim bros-
andi, en þrýsti hendinni að
hjartastað, eins og hann var van-
ur. Þegar þau komu að land-
ganginum, snérist Jeff allt í einu
á hæl, yfirgaf Anderson og hélt
til föður síns.
— Þakka þér fyrir, þakka þér
fyrir, elsku pabbi, hvíslaði hún.
Og sér til undrunar fann Halden
koss á kinn sér, léttan eins og
fiðrildisvæng. Atlot voru sjald-
gæf milli þeirra feðgininna, og
hann tók þennan koss sem ótví-
rætt virðingarmerki.
-— Hvað ætlarðu að gera með-
an við erum í burtu, spurði hún.
— Þú ert of forvifin, sagði
hann.
— Það hlýtur að vera ætt-
gegnt, svaraði hún, og var þar
með þotin. Halden fylgdi þess-
um tveim hávöxnu ungmennum
með augunum niður landgang-
inn og í gegnum þvöguna á hafn-
arbakkanum. Nú gengu þau með-
fram verzlunum hinna innfæddu,
sem stilltu vörum sínum á kassa
og sýndu þær í daufu skini lítilla
gaslampa. Nú var þeim heilsað
á malaiskan hátt, af litlum dreng
í hvítum klæðum. Eitt andartak
í viðbót gnæfði blái túrbaninn
hennar Jeff upp úr þvögunni, en
síðan hvarf hún inn í þrönga
götu, sem ■— minntist Halden
skyndilega um leið og flóð gam-
alla, ljúfsárra minninga skall yf-
ir hann — lá í áttina að fiski-
höfn hinna innfæddu.
— Myndarlegur strákur, var
sagt við hlið hans.
— Hvað? Hver? spurði Halden
Vandengraf, sem allt í einu
hafði holdgazt við hlið honum.
— Ungfrú Pat Houston var
rétt í þessu að segja mér, að
Anders Anderson væri myndar-
legur strákur, sagði huglesarinn.
— Það getur verið, að þú sam-
þykkir það ekki, en ég geri það.
Halden fannst þetta ekki svars
virði. — Hvað gengur á þarna
niðri, spurði hann þess í stað.
— Hversvegna setja þeir ekki
kúlíana í land?
— Það er mér sérstakur heið-
ur, að þú skulir snúa þér til mín
til þess að fá upplýsingar, sagði
Vandengraf og hneigði sig
hæðnislega. — En það stendur
þannig á, að vörubílarnir frá
plantekrunni urðu fyrir töfum.
Þú virðist hafa gleymt hinu
þunna blóði, lága blóðþrýstingi
og þar af leiðandi seinagangi
hitabeltisins. Pan, Pan, rólega, er
kjörorð þeirra. Vörubílarnir
komast hingað, ef guðirnir vilja.
Á meðan hefur Grader næði til
þess að framkvæma læknisskoð-
un sína.
Maverick fylkti kúlíunum upp
á neðra þilfarinu og smalaði þeim
fram hjá Grader, sem var fulltrúi
stjórnarinnar. Hann skoðaðf þá
alla til málamynda, taldi æða-
slög þeirra og rannsakaði hvít-
una í augunum á þeim og leyfði
þeim svo að fara. Tveir Hollend-
ingar voru komnir frá Lombok
til þess að taka á móti kúlíunum,
en þeir forðuðu sér frá stybbunni
af líkömum þessa óttaslegna
fólks, svefnmottum og farangri,
nestiskörfum og kjúklingabúrum.
Hollendingarnir settust að uppi
á þilfari með nokkrar bjórflösk-
ur, meðan hinir fjórir kínversku
mandoers eða verkstjórar, sem
fylgdu Hollendingunum skipu-
lögðu landgöngu kúlíanna. Kín-
verjarnir og Fong ræddust stutt-
lega við á kínversku, sem engir
aðrir skildu, og síðan voru kúlí-
arnir reknir frá borði með hróp-
NILFISK
NILFISK
bónvélar
eins og NILFISK
ryksugur:
Afburða verkfæri
í sérflokki.
---------------------------1
verndargólfteppin -
því að hún hefur nægilegt sogafl
og afburða teppasogstykki, sem
rennur mjúklega yfir teppin, kemst
undir lægstu húsgögn og DJÚP-
HREINSAR jafnvcl þykkustu gólf-
teppi fullkomlega, þ.e. nær upp
sandi, smásteinum, glersalla og
öðrum grófum óhreinindum, sem
berast inn, setjast djúpt í teppin,
renna til, þegar gengið er á þeim,
sarga undirvefnaðinn og slfta
þannig tcppunum ótrúlega fljótt.
NILFISK slítur alls ekki tepp-
unum, þar scm hún hvorki bankar
né burstar, en hrelnsar aðeins
með rétt gerðu sogstykki og
nægilegu sogafli.
Aðrir NILFISK kostir:
* Stilianlegt sogafl * Hljóður
gangur * Tvöfalt flelri (10) og
betri sogstykki. áhaldahilla og
hjólagrind með gúmmíhjólum
fylgja, auk vcnjulcgra fylgihluta
* Bónkústur, hárþurrka, málning-
arsprauta, fatabursti o. m. fl.
fæst aukalega.
* 100% hreinleg og auöveld tæm-
ing, þar sem nota má jöfnum
höndum, tvo hreinlcgustu ryk-
geyma, sem þekkjast í ryksugum,
málmfötu eða pappírspoka.
* Dæmalaus ending. NILFISK
ryksugur hafa verið notaðar hér-
lendis jafn lengi og rafmagnið, og
cru flestar f notkun enn, þótt
ótrúlegt sé.
* Fullkomna varahluta- og við-
gcrðaþjónustu önnumst við.
* Hagstætt verð.
* Góðir greiðsluskilmálar.
* Sendum um allt land.
ÚRVAL ANNARRA HEIMILISTÆKJA:
ATLAS kæliskápar, frystikistur — BALLERUP hrærivélar — BAHCO eld-
húsviftur, tauþurrkarar, gufubaðstofutæki — FERM þvottavélar, þeytivindur,
strauvélar — GRILLFIX grillofnar — FLAMINGO straujárn, úðarar, snúru-
lialdarar — ZASSENHAUS rafmagnskaffikvarnir, brauð- og áleggssnelð-
arar — Hraðsuðukatlar, vöfflujárn, brauðristar, eldhúsvogir, baðvogir o.fl.
SÍMI 1-26-06
SUÐURGATA 10
REYKJAVÍK
Klippið hér
Undirrit. óskar nánari upplýsinga (mynd, verð og greiðsluskllmála)
um: ...
Nafn ..
Heimiii
Til FÖNIX s.f., Suðurgötu ft), Reyk^avök.